10. tbl. 95. árg. 2009

Umræða og fréttir

FÍFLa fréttir: Náttfaravíkur og GPS námskeið. Tómas Guðbjartsson, Engilbert Sigurðsson

Haustferð FÍFL var farin helgina 4. - 6. september síðastliðinn í frábæru veðri. Að þessu sinni var gengið í Náttfaravíkur vestan Húsavíkur frá bænum Björgum. Í þessum grösugu en snjóþungu víkum mun Náttfari, þræll Garðars Svavarssonar, hafa haft vetursetu nokkra vetur í kringum 970. Gengið var vestur yfir Víknafjöll og niður á Flateyjardalsheiði. Eftir að Dalsá hafði verið vaðin var komið í sæluhús í Heiðarhúsum og gist þar. Daginn eftir var haldið áfram suður Flateyjardalsheiði að Dalsmynni, en alls var gangan um 45 km. Valgarður Egilsson læknir var FÍFL innan handar við undirbúning þessarar skemmtilegu ferðar, en hann hefur oft verið fararstjóri á þessum slóðum. Ásgeir Böðvarsson læknir á Húsavík nýtti einnig ættartengsl sín við bændur á svæðinu í þágu hópsins og eru þeim færðar þakkir fyrir aðstoðina. Skoða má myndir úr ferðinni og úr öðrum fjallaferðum félagsmanna á árinu á síðunni FÍFL á Facebook.com

 

Á Flateyjardalsheiði, frá vinstri: Engilbert Sigurðsson, Magnús Gottfreðsson, Tómas Guðbjartsson og Finnur Sveinsson.

Myndina tók Dagný Heiðdal.

 

Fimmtudaginn 8. október fyrirhugar FÍFL námskeið fyrir lækna þar sem kennd verður notkun GPS-staðsetningartækja. Þorvaldur Þórsson hátindahöfðingi og tölvunarfræðingur verður leiðbeinandi á námskeiðinu sem haldið verður í Hringssal og stendur frá kl. 20-22. Námskeiðið er sérstaklega ætlað göngufólki en getur einnig nýst þeim sem nota slík tæki við siglingar og fjallahjólreiðar. Æskilegt er að þátttakendur taki með sér GPS-staðsetningartæki og gjarnan ferðatölvu. Þátttökugjald er 1500 kr. og er fjöldi þátttakenda takmarkaður við 20 manns.

 

 

 

 

 

Merki Félags íslenskra fjallalækna sem Guðbjörg Tómasdóttir hannaði og líkir eftir hjartalínuriti.

 

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica