03. tbl. 95. árg. 2009

Umræða og fréttir

Úr penna stjórnarmanna LÍ. Sparnaður á kostnað hvers? Sigurveig Pétursdóttir

Öllum er ljóst að nú ekki verður komist hjá að grípa til alvarlegra sparnaðaraðgerða í heilbrigðiskerfinu. Fæst okkar muna þó eftir öðru en að sparnaðaráform hafi tröllriðið húsum þar árum saman þrátt fyrir „góðærið“. Alltaf hefur það verið kallað hagræðing og alls engin þjónustuskerðing átt að felast í þeim aðgerðum. Reynslan hefur oft sýnt annað.

Einu árin sem ég man ekki eftir sparnaðartali stjórnenda voru fyrstu 2-3 árin sem ég vann eftir útskrift úr læknadeildinni 1984. Sennilegast er það vegna þess að ég, eins og svo margir aðrir nýútskrifaðir læknar, var upptekin af læknastarfinu og fræðunum og með takmarkaða innsýn og áhuga á stjórnsýslu.

Við tóku síðan ár í Svíþjóð við framhaldsnám. Þau ár áttu upphaflega að verða um það bil 5-6 en urðu 15 þegar upp var staðið. Allan þann tíma var meira og minna verið að spara í sænska heilbrigðiskerfinu. Hagræðingar, sameiningar og ráðningastopp voru daglegt brauð. Þar, líkt og hér, átti þetta aldrei að bitna á þjónustunni.

Þessir dagar eru löngu liðnir og nú síðustu mánuði hefur sparnaðarkrafan verið meiri en nokkru sinni. Samt sem áður hefur heyrst hið „fornkveðna“: engin þjónustuskerðing!!

Nú er mikilvægara en nokkru sinni að sýna heiðarleika í orði og verki. Samstaða heilbrigðisstétta er mikilvæg á tímum sem þessum. Öllum er ljóst að um þjónustuskerðingu verður að ræða á flestum ef ekki öllum sviðum innan heilbrigðisgeirans, eins og útlitið er í dag. Skora ég því eindregið á stjórnendur í heilbrigðiskerfinu að sýna öllu starfsfólki og sjúklingum þann heiðarleika og virðingu að gera skýra grein fyrir því hver þjónustuskerðingin verður og ekki láta þá sem á gólfinu standa og sinna veiku fólki taka alfarið skellinn af óánægjunni sem af því hlýst ef misræmi er í orði og verki.

Einnig er afar mikilvægt að við höfum heildarmyndina í huga við sparnaðaráformin, látum ekki niðurskurð á einum stað auka kostnað á öðum.

Einfaldur sparnaður á einum stað, með því að draga inn vaktalínu, getur auðveldlega leitt af sér að fjöldi sjúklinga leiti lausnar á öðrum stöðum sem neyðast til þess að leysa vandann, svo sem bráðamóttökum.

Ef hreint er gengið til verks, niðurskurðurinn kallaður réttum nöfnum og alþjóð gerð grein fyrir þeirri þjónustuskerðingu sem ekki verður hjá því komist að sætta sig við, er auðveldara fyrir starfsfólk heilbrigðisgeirans og sjúklinga að sætta sig við orðinn hlut.

Alla þyrstir í að sannleikurinn liggi uppi á borðum eftir holskeflur sem gengið hafa yfir þjóðfélagið. Enginn trúir því að með skipulagningu vakta og hagræðingu launakostnaðar megi spara það sem til þarf án þess að sjúklingar og starfsfólk finni verulega fyrir því. Eitthvað hlýtur að hafa verið gert í vinnutímanum fyrir sparnaðaráformin!

Skýr skilaboð takk, hvaða þjónusta verður ekki veitt?



Þetta vefsvæði byggir á Eplica