03. tbl. 95. árg. 2009

Hugleiðing höfundar. Svalasta atvinnugreinin. Þráinn Bertelsson

p01-fig2p01-fig1Á læknabiðstofum blaða ég stundum í gegnum hetju- og afrekssögur í tímaritum. Þar getur að lesa um marga sem eru „svalir“ í merkingunni „kaldir“, „hugrakkir“.

En með fullri virðingu fyrir ljónatemjurum, nautabönum, fjallgöngumönnum, áhættuleikurum, geimförum og öðrum þeim sem vinna fyrir sínu daglega brauði með því að leggja eigið líf og limi í hættu er læknastarfið sennilega svalasta atvinnugrein sem hægt er að stunda.

Með einum eða öðrum hætti berum við öll ábyrgð á eigin lífi og bitamunur en ekki fjár á því hvað við erum reiðubúin að taka mikla áhættu með þetta líf okkar. Sumir sækja sér lífsfyllingu í að stökkva í fallhlíf af þökum háhýsa, aðrir komast í adrenalín-vímu við að raða upp frímerkjasafninu sínu.

En svalast af öllu er að velja sér dauðann að andstæðingi og berjast fyrir lífinu með allri sinni færni, fingrafimi, þekkingu og æðruleysi og vita frá upphafi að í besta falli er hægt að vinna nokkrar lotur í viðureigninni við þennan andstæðing sem alla sigrar að lokum.

Hver einasti maður þarf á nokkru hugrekki að halda gagnvart sínu eigin lífi, en læknastéttin gengur skrefinu lengra og tekur fjöregg annarra fúslega í sínar hendur. Það finnst mér svalt.

Þegar ég geng til minna daglegu starfa kvíði ég því stundum að mér takist ekki nógu vel upp við að raða saman þeir orðum sem er hlutskipti mitt í lífinu að glíma við. Stundum verð ég úrkula vonar um að mér muni takast að blása lífi í þann texta sem ég er að reyna að reisa á fætur. Mína áhættu tek ég með nafnorð, sagnorð, fornöfn, lýsingarorð, atviksorð, forsetningar og samtengingar og reyni að tengja saman orð og tilfinningar, orð og hugsanir til að kveikja smáljóstýru þar sem áður var myrkur eða ónumið land.

Og á meðan ég er að rísla mér við þetta eru þúsundir lækna úti um allan heim að græða líffæri í fólk, saga sundur hauskúpur, krukkandi í lifandi heila og hjörtu, þræðandi myndavélar um æðakerfi eða meltingarvegi og mistök kosta mannslíf sem vel unnið verk hefði annars lengt um ár eða áratugi. Það finnst mér ofursvalt. Þess vegna tek ég ofan fyrir læknastéttinni og líka vegna þess að ef ekki hefði verið fyrir fumlaus og fagleg vinnubrögð lækna á krítísku augnabliki væri ég nú búinn að vera dauður í fimmtán ár.

Í aldanna rás hafa ýmsir mætir menn tjáð sig um læknastéttina, því að hversu svöl sem hún kann að vera eru læknar ekki yfir það hafnir að verða að þola umtal og meira að segja háð og spott, jafnvel þótt þeir séu svalir, svo að maður rifji upp hvað franski snillingurinn Voltaire (1694-1778) lét út úr sér. En hann sagði:

„Læknar eru menn sem skrifa upp á lyf sem þeir vita lítið um til að lækna sjúkdóma sem þeir vita ennþá minna um handa fólki sem þeir vita ekkert um.“ Og Voltaire lét ekki bara við þetta sitja heldur bætti við: „Læknislistin felst í því að hafa ofan af fyrir sjúklingnum meðan náttúran læknar sjúkdóminn.“

***

 

Napóleón mikli (1769-1821) gat líka verið meinfyndinn. Hann sagði:

„Á næsta tilverustigi munu læknar hafa fleiri mannslíf á samviskunni en við herforingjarnir.“

„Drottinn læknar, en læknirinn tekur við greiðslunni.“ Þetta sagði Benjamin Franklin (1706-1790).

Latneskur málsháttur segir: „Manni stafar meiri hætta af lækninum en sjúkdómnum.“

Ekki hefur sá borið mikinn hlýhug til lækna sem sagði: „Hjúkrun væri draumastarf ef engir væru læknarnir.“

Jonathan Swift, írskur rithöfundur, 1667-1745, taldi upp þrjá lækna sem hann hafði tröllatrú á og sagði: „Bestu læknar í heimi eru dr. Mataræði, dr. Kyrrð og dr. Glaðværð.“

 

***

 

Ástæðan fyrir því hversu mörg snjallyrði um lækna og læknisfræði eru neikvæð í garð lækna og sum allt að því móðgandi er hugsanlega að mönnum finnst súrt í brotið að læknar skuli ekki vera alvitrir og vilja minna þá á að þeir kunna því miður ekki allra meina bót.

Þótt læknar séu ekki fullkomnir frekar en aðrir dauðlegir menn er að minnsta kosti enginn ástæða til annars en ganga óttalaus á þeirra fund, og hafa í huga gamlan málshátt sem er svona:

„Ef þú ert ekki bráðfeigur geta meira að segja læknar ekki grandað þér.“

Þótt þeir séu auðvitað með svalari mönnum!

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica