01. tbl. 95. árg. 2009

Ritstjórnargrein

Læknadagar 2009

Arna Guðmundsdóttirsérfræðingur í innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum á LSH og formaður Fræðslustofnunar LÍ sem stendur fyrir Læknadögum

Nú líður að Læknadögum 2009 og birtist dagskráin í heild sinni í þessu tölublaði Læknablaðsins. Þetta er í 14. sinn sem þingið er haldið og langar mig til að nota þetta tækifæri og auglýsa eftir góðri enskri þýðingu á orðinu Læknadagar. Hér verður farið stuttlega yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið milli ára og hvað er í sjónmáli. Fyrst ber að nefna breyttan þingstað. Eins og menn muna voru Læknadagar haldnir á Radisson SAS hóteli í janúar 2008. Þar sáu ráðstefnugestir illa á skjái í fyrirlestrasölum og sýningarsvæði þótti dimmt og úr alfaraleið. Nú verður snúið aftur á Hilton Reykjavík Nordica hótel þó að á því húsnæði séu ýmsir vankantar. Undirbúningsnefndin hafði hlakkað mikið til að slá um sig í nýju Tónlistar- og ráðstefnuhúsi árið 2010 en verður líklegast að bíða aðeins lengur eftir þeirri ánægju, af augljósum ástæðum.

Læknadaga 2008 sóttu yfir 900 manns. Þar af voru rúmlega 200 sem ekki greiða aðgangseyri þ.m.t. fyrirlesarar, gestir og nemar. Erlendir gestir voru 22 í fyrra en verða eitthvað færri á þessu ári eða um 15. Það er athyglisvert þegar reikningar fyrra árs eru skoðaðir að flugfargjöld hingað til lands voru á bilinu 40-60 þúsund, með einni undantekningu upp á 160 þúsund. Nú ber svo við að einstakir flugmiðar frá Bandaríkjunum kosta okkur yfir 400 þúsund krónur og segir sig sjálft að það kann að verða enn frekari fækkun erlendra gesta ef ástandið verður viðvarandi. Ekki svo að skilja að Læknadagar séu háðir erlendum gestum en það kryddar vissulega tilveruna að geta boðið hingað þekktum vísindamönnum og góðum fyrirlesurum sem oft á tíðum hafa einnig verið yfirmenn eða samstarfsmenn íslenskra lækna sem námu á erlendri grundu. Þá er þetta gott tækifæri til að styrkja enn frekar tengslanetið sem er okkur svo mikilvægt. Undirbúningsnefndin í ár tók þó ákvörðun í ljósi þessa að þeir erlendu fyrirlesarar sem kæmu hingað í okkar boði myndu taka þátt í málþingum en myndu ekki halda hádegisfyrirlestra eingöngu. Til þess höfum við nóg af góðu fólki innanlands.

Áhuginn fyrir þinginu fer enn vaxandi, gríðarlegt magn var sent inn af áhugaverðu efni og má segja að dagskráin hafi verið fullskipuð eftir fyrsta fund nefndarinnar síðastliðið vor. Það er óvenjulegt. Breytingar verða oft á síðustu stundu og þetta ár var engin undantekning. Hér skall á kreppa mikil og brugðust menn skjótt við með því að setja saman áhugaverð málþing sem snúa bæði að heilsufari þjóða á krepputímum og okkar sjálfra sem tilheyrum læknastétt.

Tvö fyrirtæki eru aðalstyrktaraðilar þingsins, GlaxoSmithKline og Novartis. Við munum bjóða upp á þá nýjung að aukabakhjarlar geta staðið fyrir morgunverðarfundum kl. 7:30-9:00. Þessu er ætlað að auka möguleika lækna til að sækja fræðslu sem síðan eru bókaðir í móttöku eða annað það sem eftir er dagsins en einnig til að minni lyfjafyrirtækin hafi tækifæri til að halda málþing án þess að leggja í þann kostnað sem fylgir aðalstyrktaraðild. Fyrirfram skráning á hádegisverðarfundi verður lögð af og gildir þá að fyrstur kemur, fyrstur fær. Aðgangseyri verður sem fyrr stillt í hóf en netskráning fyrirfram er ódýrari en skráning á staðnum.

Sú skemmtilega hefð að setja þingið með nokkurri viðhöfn er að festa sig í sessi. Í ár höfum við leitað til Margrétar Guðnadóttur prófessors sem er okkur mörgum að góðu kunn.Við höfum bryddað upp á þeirri nýjung að halda heiðursmálþing í samvinnu við sjóð prófessors Níelsar Dungals sem að þessu sinni verður tileinkað Margréti. Þar verður rætt um orsakir og meðferð MS-sjúkdómsins.

Mér þótti kaldhæðnislegt að sjá dagskrá Læknadaga í desemberhefti Læknablaðsins enda á auglýsingu frá dönsku fyrirtæki sem gerði íslenskum læknum gylliboð um að flytja úr landi og kanna hvort ekki væri grænna hinum megin við hafið. Ég vonast til að það muni koma skýrt í ljós á þessu þingi að hér er mikið af góðu fólki sem er í mun að standa saman á þessum tímum og fara hvergi. Standa saman um hag stéttarinnar, standa saman um að varðveita gott heilbrigðiskerfi og viðhalda góðu heilsufari þjóðar. Þessari samkomu er ætlað að gera einmitt þetta, efla samkennd og samstöðu íslenskra lækna ásamt því að stuðla að símenntun okkar.

Góðar stundir.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica