11. tbl. 94. árg. 2008

Umræða og fréttir

Jákvæðni og hjálpsemi - Læknakandídatar starfrækja Gleðispítala. Viðtal við Árdísi Ármannsdóttur

„Mér datt í hug í valnáminu á sjötta ári í vor að þegar ég og minn árgangur værum komin á kandídatsárið væri gaman að breyta andrúmsloftinu hér á spítalanum til hins betra undir yfirskriftinni „Gleðispítalinn“,“ segir Árdís Ármannsdóttir læknakandídat en hún og félagar hennar hafa vakið athygli fyrir einstaklega jákvæða og glaðlega framkomu í störfum sínum.

„Það er einmitt það sem felst í Gleðispítalanum, að vera jákvæður og taka öllum vel, taka vel í allt sem um er að vera og láta gott af sér leiða í samskiptum við sjúklinga og samstarfsfólk.“

u06-fig11

Árdís segir að ástæðan sé ekki beinlínis sú að henni hafi fundist andrúmsloftið á Landspítalanum svo neikvætt og þrúgandi að breytinga hafi verið brýn þörf. „Það má hins vegar alltaf bæta og mér fannst best að byrja á þeim sem væru að koma inn á spítalann til starfa, læknanemunum, frekar en reyna að hafa áhrif á þá eldri og ráðsettari. Við höfum sett upp prógramm fyrir læknanemana, þar sem við kynnum starfsemi spítalans og leiðbeinum þeim með ýmiss konar praktísk atriði í daglegum störfum sem eru í rauninni ekki hluti af kennslunni en geta valdið talsverðum heilabrotum og misskilningi. Okkur fannst sjálfum þegar við komum hingað á 4. ári að okkur væri kastað út í djúpu laugina og sagt að bjarga okkur. Oft var maður einn og vissi ekki alveg til hvers var ætlast af manni.“

Hún segir að það sé gríðarlega mikilvæg og skemmtileg upplifun að koma inn á spítalann í fyrsta sinn. „Læknanemar hefja verknám á fjórða ári og það er kvíðablandin tilhlökkun hjá flestum. Þetta er langskemmtilegasti hluti námsins, en sem læknanemi hefur maður í byrjun ekki hugmynd um hvernig hlutirnir ganga fyrir sig á spítalanum. Það er ótrúlega margt sem manni finnst algerlega sjálfsagt í dag sem var það ekki fyrir þremur árum. Við vorum til dæmis að tala við krakka á 4. ári um daginn sem vissu ekki hvað „teymi“ eða „dagáll“ er og vita ekki hvað felst í stofugangi svo eitthvað sé nefnt. Auðvitað er maður fljótur að átta sig en þetta getur verið óþægilegt og stressandi. Starfsmenn eru vissulega allir af vilja gerðir að upplýsa og aðstoða, en þar sem spítalinn er undirmannaður þá er enginn sem hefur það hlutverk að sinna læknanemunum sérstaklega.“

Þegar Árdís telur upp það sem helst verður útundan í fræðslunni til nýnemanna þá skilur maður betur hvað hún á við. „Hvernig virkar píptækið, hvernig biður maður um konsúlt, hvernig pantar maður röntgenmynd, hvað er sagan og hvernig virka tölvukerfin. Mér skilst að nú sé nýnemum í fyrsta sinn boðið upp á einn dag í almenna kynningu á spítalanum, og þeim sýnt hvar hægt er að ná í slopp, hafa fataskipti og fleira í þeim dúr. Annars hefur þetta bara verið þannig að maður mætir á mánudegi og á kannski að vera á hjartateyminu en maður veit ekki einu sinni hvar eða hvað það er! Og þá er nauðsynlegt að komast að því sem fyrst! Starfsnámið er svo skemmtilegur tími að það er ómögulegt að eyða dýrmætum hluta af honum í vandræði með algjör aukaatriði. Það er brýnt að fá sem mest út úr þessum tíma.“

Gleðispítalinn snýst sumsé meðal annars um það að læknanemar sem koma fullir eftirvænting-ar í starfsnám á Landspítala lendi ekki í angistarfullum hremmingum yfir að finna ekki teymið sitt, ná ekki sambandi við neinn í síma, vita ekki hvernig á að diktera eða skrifa dagála og síðast en ekki síst vita ekki hvert þeir eiga að snúa sér eftir upplýsingunum. Nú hafa læknakandídatar tekið að sér þetta hlutverk og Árdís segir að auðvitað sé öllum starfsmönnum spítalans frjálst að tileinka sér mottó Gleðispítalans með því að vera jákvæðir, hjálpsamir og glaðlegir á hverju sem gengur. Það kostar ekkert, segir hún.

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica