09. tbl 93. árg. 2007

Umræða og fréttir

Formaður LÍ sótti aðalfund British Medical Association

"Pólitískari fundur en ég átti von á"

Sigurbirni Sveinssyni, formanni Læknafélags Íslands, var í júní síðastliðnum boðið að sækja ársfund breska læknafélagsins, British Medical Association. Fundurinn var haldinn í Torquay á suðurströnd Englands í Devon. Svæðið er oft kallað ,,Enska rivieran." Læknablaðið innti hann eftir tíðindum frá þessum fundi.

Það hlýtur að hafa verið forvitnilegt að sækja þennan fund bæði vegna merkilegs læknafélags og svo er staðurinn vinsæll ferðamannastaður?

,,Já að sjálfsögðu nema fyrir þær sakir að lítið fór fyrir túrismanum á þessum slóðum. Hinn þráláti rigningakafli var hafinn í Bretlandi og var hálf nöturlegt að sjá tjallann, sem vafalítið hafði margur hver önglað fyrir þessu draumafríi lengi, berjast um af þrákelkni í stuttbuxunum í rigningunni. Þetta skipti mig raunar litlu máli, þar sem tímaplan fundarins var ákaflega stíft og með okkur erlendu gestunum reiknað við flest tækifæri."

Er eitthvað líkt með breska læknafélaginu og LÍ og aðalfundum þessara félaga?

,,Að sjálfsögðu er engu saman að jafna að stærð og BMA hefur ekki jafn sterka stöðu stéttarfélags og LÍ lögum samkvæmt. Uppbygging félaganna er þó svipuð, fulltrúafundur með aðild landshlutafélaga en sérgreinarnar hafa líka skipulega aðkomu. Aðalfundurinn hafði gríðarlega mörg mál til meðferðar allt frá þröngum innri málum félagsins til opinberra mjög svo pólitískra yfirlýsinga um þjóðmál á Bretlandi tengdum heilbrigðispóltík. Þannig kom formanni LÍ fátt á óvart nema hvað fundurinn var ef til vill enn pólitískari en ég átti von á."

Þú segir að gríðarlega mörg mál hafi verið til umfjöllunar. Hvernig tókst BMA á nokkrum dögum að komast yfir það allt?

,,Það var mjög áhugavert. Fundarsköpin réðu því og þau voru einföld, knöpp en um leið sveigjanleg og árangursrík. Þó í grundvallaratriðum lík okkar. Fundarstjóri þ.e. ,,formaður fundarins" hefur mikil völd og fundarmenn líka fyrst og fremst með framíköllum. Ræðutími er stuttur, yfirleitt tvær mínútur og kallar þá fundarstjóri t.d.: ,,Þú mátt klára setninguna". Ef fundurinn vill fá meira frá viðkomandi þá er kallað: ,,More, more" og tekur ef til vill kór undir þá athugasemd. Fundarstjóri virðir slíkar óskir.

Allsherjarnefnd fer fyrir fundinn yfir öll innkomin erindi og tillögur og setur fram tillögur sínar á grundvelli þeirra. Frávikstillögur eru prentaðar með þeim en koma ekki til sérstakrar umræðu. Þátttakendur í umræðum gefa fundarstjóra upp hvort þeir eru með eða móti og reynir hann að koma sjónarmiðum að jöfnum höndum. Ef mælendaskrá er löng styttir hann hana jafnan en hleypir áfram andstæðum fylkingum að. Ef allir sem vilja taka til máls eru á einu máli, þá leggur hann jafnan til að ályktunin verði tekin til atkvæða strax með leyfi fundarins. Fundurinn leggur oft það sama til og þá með framíkalli sem fundarstjóri ber þegar upp. Frávísanir eru afgreiddar þegar í stað. Þær koma með framíkalli ,,move to next item" og ræður einfaldur meirihluti niðurstöðu."

Hver er staða yngri lækna í svona rótgrónu samfélagi?

,,Mér sýndist hún býsna sterk. Fulltrúar unglækna virtust mér mjög atkvæðamiklir á fundinum, skapandi og oft róttækir og yfirleitt var gerður góður rómur að máli þeirra. Mörg mál, sem þeir báru upp hlutu brautargengi. Enn athyglisverðara var að læknanemar höfðu þarna sína stöðu, tóku virkan þátt í fundinum með málfrelsi, tillögufrelsi og atkvæðum.

Niðurstaða mín er, að við þurfum aðeins að víkka sjónarhornið þegar litið er til Norðurlandanna og Bretlands og vera samferða kollegum okkar inn í framtíðina."

Konungsfjölskyldan er í forsæti BMA tuttugasta hvert ár. Hér er Sigurbjörn Sveinsson, formaður LÍ, kynntur fyrir Önnu prinsessu við innsetningu hennar í embætti.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica