07/08. tbl 93. árg. 2007

Umræða og fréttir

Íslenskur læknanemi - Hlaut viðurkenningu á norrænu lungnalæknaþingi

Læknaneminn Ólöf Birna Margrétardóttir hlaut verðlaun á þingi norrænna lungnalækna í Uppsala í Svíþjóð dagana 26.-28. apríl fyrir veggspjald er hún gerði um langvinna lungnateppu og CRP en hún vann verkefnið undir stjórn lungnalæknanna Þórarins Gíslasonar og Gunnars Guðmundssonar, Bryndísar Benediktsdóttur heimilislæknis og Ísleifs Ólafssonar, yfirlæknis rannsóknarstofu LSH.Sambýlismaður Ólafar, Sigurður James Þorleifsson, sem einnig er læknanemi, var höfundar annars veggspjalds er sýnt var á þinginu og er unnið upp úr sömu rannsókn. „Hann hefði nú alveg eins getað unnið verðlaunin,“ segir Ólöf og vill að það komi skýrt fram að þau hafi unnið saman að rannsóknarverkefninu og eigi jafnan þátt í niðurstöðunum.

Ólöf og Sigurður James voru að ljúka 4. ári í læknisfræði í vor en þetta var 3. árs rannsóknarverkefnið þeirra.

Benda má á að í síðasta tölublaði Læknablaðsins voru birtar niðurstöður rannsóknar þeirra Þórarins, Bryndísar og Gunnars en Ólöf og Sigurður voru starfsmenn við rannsóknina og fengu að sögn Ólafar að nota gögn úr rannsókninni til að vinna veggspjöldin. „Við byrjuðum að vinna við þessa rannsókn þegar við vorum á 2. ári og þetta hefur verið ótrúlega góður og lærdómsríkur skóli og frábært að vinna undir leiðsögn þeirra Þórarins og Bryndísar. Þau hvöttu okkur áfram og leyfðu okkur síðan að kynna niðurstöðurnar á heimilislæknaþingi í nóvember í fyrra og síðan vorum við með fyrirlestur á þingi um líf- og heilbrigðisvísindi í janúar og loks veggspjöldin tvö í Uppsala í apríl. Við Siggi gerðum einnig saman veggspjald sem sýnt var í þingi amerískra lungnalækna í San Francisco í maí en þá gátum við ekki farið því við vorum á kafi í prófum.”

Ólöf segir að það hafi sannarlega verið gaman að hljóta verðlaunin á þinginu í Uppsala. „Þetta var alveg óvænt en þarna voru sýnd 27 veggspjöld og þrjú þeirra voru valin til viðurkenningar. Dómnefndin var skipuð þremur læknum frá Norðurlöndunum en við vissum ekki að stæði til að veita verðlaun fyrr en við komum á staðinn.”

Vinna Ólafar og Sigurðar við rannsóknina við langvinnri lungnateppu fólst í að taka blóðprufur, taka blásturspróf og leggja spurningalista fyrir þátttakendur.„Okkur stóð til boða að nota blóðprufurnar og blástursprófin við rannsóknarverkefni okkar og unnum það undir handleiðslu Þórarins og Bryndísar.

Rannsóknarverkefni okkar sérstaklega var að mæla CRP og Interleukin-6, frumuboðefni í blóðsermi, sem við fengum mælt fyrir okkur úr þeim prufum sem teknar höfðu verið vegna lungna-teppurannsóknarinnar.Við lásum síðan heilmikið af greinum og öllu efni sem við komumst yfir til að vinna verkefnið og skila því á 3. ári.”

Sigurður segir að þau stefni að því að skrifa grein í sumar byggðaá niðurstöðunum og fá hana birta í góðu alþjóðlegu tímariti. „Gögnin sem liggja fyrir eftir rannsóknina eru gríðarlega umfangsmikil og hægt að vinna heilmikið úr þeim ennþá,” segir Ólöf Birna að lokum.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica