09. tbl. 90. árg. 2004

Hvað er að gerast á þessari grænleitu mynd? Þar má sjá konu og við andlit hennar glampa ljósgeislar af óljósum uppruna. Aðstæður eru allar óskýrar, óljóst hvort konan er með meðvitund og myndin gæti allt eins verið tekin neðansjávar.

Konan er listamaðurinn sjálfur, Ás­dís Sif Gunnarsdóttir (f. 1976), sem nýverið lauk námi í Bandaríkjunum. Hún hefur gert töluvert af gjörningum og myndbandsverkum auk innsetninga og ljósmynda. Myndin á forsíðu Læknablaðsins að þessu sinni er stillimynd úr mynd­bandi og voru bæði til sýnis nú í ár í Listasafni Reykjavíkur, myndbandinu varpað á veggi þar sem prentaðar stillimyndirnar héngu. Myndbandið hafði enga sérstaka frásögn en sýndi stutt myndskeið þar sem litir og ljós ásamt Ásdísi sjálfri léku stórt hlutverk. Hægt var á því þannig að hreyfingin varð höktandi og óskýr svo úr varð athyglisvert samspil við myndirnar á veggjunum. Framsetningin minnti mann á frumforsendur ljósmyndar, að frysta eitt augnablik frá ákveðnum sjónarhóli. Þannig getur maður bæði gaumgæft ýmis smáatriði sem færu fyrir ofan garð og neðan í raunveruleikanum en líka mistúlkað eitthvað sem í veru­leikanum liggur ljóst fyrir. Gylltu glamparnir stafa til dæmis af lítilfjörlegu jólaskrauti sem Ásdís hristi við höfuð sér.

Með titlinum Golden Streams’ vísar listakonan hugsanlega í kunnuglegt minni í listasögunni um gullregnið sem Seifur breytti sér í og þegar því rigndi yfir Danae varð hún ólétt að Perseifi. Þannig má lesa þetta verk Ásdísar á goðsögulegan hátt en umbreyting, grímubúningar og ýmis leikur er einkennandi fyrir verk hennar ásamt skírskotun í helgisiði eða athafnir. Í gjörningum hefur hún mölvað jólakúlur á hælaháum skóm, farið með texta, brotið leirtau og klæðst ýmsum búningum. Skrautlegir þættir eins og flugeldar, jólaskraut og annað glys eru áberandi. Þannig verða verkin óhjákvæmilega áferðarfalleg og oft kvenleg en einn­ig kraftmikil, lifandi og gamansöm. Í gegnum dulúðugt yfirborð skynjar maður einlæga endurspeglun mannlegra samskipta og tilfinninga. Það gildir þó um grænu myndina eins og öll góð listaverk að hennar má njóta á ólíkum forsendum og má hvetja fólk til að fylgjast með frekari störfum Ásdísar sem er mjög forvitnilegur listamaður.

Markús Þór Andrésson

© Ásdís Sif Gunnarsdóttir

Ljósm. Einar Falur



Þetta vefsvæði byggir á Eplica