09. tbl. 90. árg. 2004

Umræða og fréttir

Sjö heilbrigðisstofnanir sameinaðar

Magnús Skúlason ráðinn framkvæmdastjóri á Suðurlandi

Um þessi mánaðamót verða þau tímamót að allar heilbrigðisstofnanir á Suðurlandi sameinast í eina sem hefur hlotið nafnið Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Undir þeim hatti verða framvegis sjö heilsugæslustöðvar frá Þorlákshöfn austur að Kirkjubæjar­klaustri, auk sjúkrahússins á Selfossi. Þessi nýja stofnun verður meðal stærri heilbrigðisstofnana landsins. Hún þjónar um 17 þúsund íbúum og velta hennar er um 1.230 milljónir króna á þessu ári.

Heilbrigðisráðherra skipaði á dögunum framkvæmdastjóra fyrir þessa nýju stofnun og varð fyrir valinu Magnús Skúlason deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og starfaði um fimmtán ára skeið á Borgarspítalanum og síðar Sjúkrahúsi Reykjavíkur en hefur starfað á fjármálaskrifstofu ráðuneytisins undanfarin fjögur ár. Þar hefur hans hlutverk meðal annars verið að fylgjast með rekstri heilbrigðisstofnana sem ráðuneytið hefur verið að sameina á Austurlandi, í Þingeyjarsýslu og á Vestfjörðum.

Þjónustan aukin

lbl-forsida 7-2004Læknablaðið hitti Magnús að máli og innti hann eftir því hvernig hefði gengið að sameina þessar stofnanir.

"Það hefur gengið nokkuð vel. Ráðuneytið kynnti þessi áform fyrst á miðju ári 2003 og þá var fundað með sveitarstjórnum á Suðurlandi og stjórnendum stofnananna sem hluta eiga að máli. Viðbrögð þeirra voru jákvæð þótt vissulega hefðu komið fram athugasemdir. Sveitarstjórnarmenn óttuðust sumir hverjir að til stæði að skerða þjónustu en það var ekki ætlunin, þvert á móti er stefnt að því að styrkja hana. Sumar þessara stofnana eru litlar og þess vegna ekki sterkar stjórnsýslueiningar en með sameiningu er hægt að búa til öfluga stofnun sem getur aukið þjónustu við íbúana. Með því móti er hægt að veita meiri þjónustu heima í héraði og draga úr því að fólk þurfi að leita til Reykjavíkur."

Eins og áður segir eru heilsugæslustöðvarnar á Suðurlandi sjö talsins; í Þorlákshöfn, Hveragerði, á Selfossi, í Laugarási í Biskupstungum, á Hvolsvelli/Hellu, í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarklaustri. Tvö sjúkrahús eru á Suðurlandi, annað á Selfossi en hitt er réttargeðdeildin á Sogni í Ölfusi. Hún verður ekki hluti af hinni nýju stofnun, ekki frekar en elli- og hjúkrunarheimilin sem starfrækt eru af sveitarfélögum á Suðurlandi. Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands munu hins vegar hafa umsjón með rekstri réttargeðdeildarinnar.

Framkvæmdastjórar stofnananna sjö munu starfa með Magnúsi að sameiningunni fram til 1. desember en þá verða stöður þeirra lagðar niður. Stjórnsýslan verður sameinuð en ekki eru fyrirhugaðar sérstakar breytingar á þjónustu við þessa sameiningu á stjórnsýslunni, að sögn Magnúsar.

Þrengsli á Selfossi

Hann segir að héraðið sé nokkuð vel mannað en eins og annars staðar á landinu hefur gengið mis­jafn­lega að manna minnstu stöðvarnar. "Það er hins veg­ar reynslan af Austurlandi og Þingeyjarsýslu að þar hefur gengið betur að manna stöðvarnar eft­ir sameiningu. Starfsmenn sjá að þeir verða hluti af stærri stofnun sem getur boðið upp á fræðslu og af­leys­ing­ar. Stöðvarnar eru ekki eins viðkvæmar fyrir því ef einhver veikist eða hættir og vaktabyrðin verður ekki eins stíf. Það er verið að gera þessar stofnanir að eftirsóknarverðari vinnustöðum fyrir lækna og aðra heilbrigðisstarfsmenn," segir Magnús. Hann bæt­ir því við að með sameiningu verði auðveldara að mennta heilbrigðisstarfsmenn á Suðurlandi, bæði læknakandídata, nema í framhaldsnámi og aðrar heil­brigðisstéttir. "Það er mikilvægt að kynna þeim starfsemina því hugsanlega koma þeir hingað til starfa síðar."

Vinnustaður Magnúsar verður á Selfossi og segist hann fyrst um sinn ætla að keyra á milli. "Það eru tölu­verð þrengsli í stofnuninni á Selfossi en það stendur vonandi til bóta á næstunni þegar hafist verður handa við að byggja við núverandi húsnæði. Það stendur til að reisa tveggja hæða hús og í það flytur heilsugæslan og verður á neðri hæð. Á efri hæðinni verður hjúkrun­arrými fyrir aldraða sem nú dvelja í Ljósheimum, gamla sjúkrahúsinu við Austurveg. Ástand þess er orð­ið óviðunandi og heimilið starfrækt á undanþágu frá heilbrigðiseftirliti. Úr þessu þarf að bæta sem fyrst og ég er bjartsýnn á að hafist verði handa við bygginguna áður en langt um líður," segir Magnús Skúlason.

Magnús Skúlason deildar­stjóri í heilbrigðisráðu­neyt­inu hefur verið ráð­inn framkvæmdastjóri Heil­brigðisstofnunar Suðurlands með aðsetur á Selfossi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica