07/08. tbl. 90.árg. 2004
Tvær stöður
lækna hjá Rannsóknarstöð Hjartaverndar
Lausar eru til umsóknar tvær tveggja ára stöður lækna hjá Hjartavernd. Um er að ræða 50% rannsóknastöðu og 50% starf við útskriftir þeirra sem koma í rannsóknir til Hjartaverndar. Sjá nánari upplýsingar á hjarta.is undir atvinna.
Stöðurnar eru lausar frá 15. ágúst næstkomandi eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veita Vilmundur Guðnason forstöðulæknir Hjartaverndar og læknarnir Pálmi V. Jónsson, Gunnar Sigurðsson og Guðmundur Þorgeirsson á Landspítala.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. ágúst næstkomandi til Vilmundar Guðnasonar, Hjartavernd, á netfangið atvinna@hjarta.is
HjartaverndHoltasmára 1
201 Kópavogi
Sími 535 1800 - www.hjarta.is