Umræða og fréttir
  • 2004-05-u15-fig1

Orlofsnefnd kaupir hús á Klaustri

Orlofsnefnd Læknafélags Íslands festi í lok mars kaup á nýjum orlofsbústað. Um er að ræða einbýlishús sem stendur við götuna Skaftárvelli í þéttbýlinu á Kirkjubæjarklaustri.

Húsið er 120 fermetrar að flatarmáli með tvöföldum bílskúr sem er tæplega 50 fermetrar að stærð. Húsið er byggt árið 1982 úr timbri á einni hæð og skiptist í stofu, borðstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og eldhús. Ræktuð lóð er umhverfis húsið. Verðið sem greitt var fyrir eignina er 11,2 milljónir króna.

Sigurbjörn Björnsson formaður orlofsnefndar LÍ sagði í spjalli við Læknablaðið að nefndin hefði um nokkurt skeið haft augastað á Suð-Austurlandi.

- Fyrir nokkrum árum höfðum við hús á leigu í Hornafirði en það gaf ekki nógu góða raun. Kirkjubæjarklaustur er nær Reykjavík og liggur auk þess vel við bæði veiðum og hálendisferðum. Skammt frá eru einhver bestu sjóbirtingsveiðisvæði landsins og stutt er að fara upp á hálendið og á jökul, sagði hann.

Eins og fram kom hér í Læknablaðinu í haust stendur nú yfir smíði á sumarhúsi fyrir orlofsnefnd lækna að Húsafelli og kemst það hús í gagnið í sumar eins og húsið á Klaustri. Orlofsnefnd er að svipast um eftir fleiri kostum og hefur einkum í sigtinu að bæta við heilsárshúsi á Norðurlandi, helst nærri Mývatni. Er það gert að eindreginni ósk lækna fyrir norðan. Jafnframt beinast sjónir nefndarmanna að Snæfellsnesi og Norðurlandi vestra. Loks er verið að íhuga hvort ástæða væri til að fjölga kostum fyrir félagsmenn í útlöndum og þá ekki endilega yfir hásumarið.

Úthlutun sumarbústaða og annars sem orlofsnefndin býður upp á í sumar fór fram í apríl og gekk vel. 240 umsóknir bárust um 224 kosti og fengu 155, eða 65% umsækjenda, úthlutað að eigin vali í fyrstu umferð.


Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica