12. tbl. 90. árg. 2004

Broshornið. Ofeldi og falskar

2004-10-frontLéttist ekki

Kona nokkur átti við ofeldisvandamál að stríða og var nokkrum tugum kílóa of þung. Hún hafði árum saman leitað til heimilislæknisins til að þiggja ráðleggingar og stuðning í fjölmörgum átökum hennar til að megrast. Þegar hún hafði prófað Slimfast megr­unardrykkinn í einn mánuð án þess að léttast mætti hún á stofuna til að láta lækninn vita að meðferðin sú dygði ekki frekar en annað sem hann hefði stungið upp á.

"Má ég spyrja hvernig þú hefur notað drykkinn"? spurði læknirinn.

"Eitt fullt glas þrisvar á dag - eftir hverja máltíð," svaraði konan.

Góð ráð

Eldri kona með langa sögu um geðræn vandamál þurfti að leggjast inn á sjúkrahús. Þegar deildarlæknirinn ræddi við hana skömmu eftir komu greindi hún frá því að hún sæi "litlar manneskjur" allt í kringum sig. Enginn annar á deildinni sá það sama og sú gamla. Konan sagði að manneskjurnar töluðu við sig allan tímann og gæfu henni ráð. Þegar læknirinn spurði hvort hún vildi taka lyf til að hafa hemil á ofskynjun sinni sagði konan: "Nei takk, ljúfurinn, þessir litlu vinir mínir gefa mér alltaf svo góð ráð."

Vatn hundsins

Á seinni hluta síðustu aldar gerðist það úti á landi að ung móðir hringdi í héraðslækninn og var í mikilli geðshræringu. "Hann Júlli minn drakk vatnið úr dalli hundsins. Hvað á ég að gera"?

Læknirinn var reynslubolti og það var fátt sem raskaði ró hans. "Gefðu hundinum meira vatn" var svarið.

Eins systur

Stóra systir mælti með kvensjúkdómalækni sínum við litlu systur. Sú síðarnefnda pantaði tíma og mætti á stofuna. Í miðri skoðun sagði læknirinn. "Það er ekki erfitt að geta sér þess til að þið tvær eruð systur." Litlu systur var vægast sagt mjög brugðið og henni fannst hjartað hætta að slá þar til hún heyrði lækninn bæta við: "Þið hafið alveg sama málróminn."

Talað við sig

Læknirinn: "Hafðu engar áhyggjur þótt þú talir jafnmikið við sjálfan þig eins og þú gerir."

Sjúklingurinn: "Já, en læknir, ég er svo hræðilega leiðinlegur."

Sami sjúkdómur

Sjúklingurinn: "Mér líður ekki vel og ég hef miklar áhyggjur af því."

Læknirinn: "Hafðu engar áhyggjur, ég þekki þetta af eigin raun."

Sjúklingurinn: "Já, en þú hefur ekki sama lækni og ég."

Falskar tennur

Tannlæknirinn: "Ég skil ekki af hverju þú ert ekki ánægður með fölsku tennurnar þínar. Mér sýnist þær passa alveg fullkomlega."

Gamli maðurinn: "Þær passa svo sem alveg upp í mig en ekki í vatnsglasið."

Verkur í öðrum

Gamli maðurinn: "Ég er með stöðugan verk í öðrum fætinum, læknir."

Læknirinn: "Það hlýtur að vera aldurinn."

Gamli maðurinn: "Ég er ekki viss því hinn fóturinn er jafngamall og hann er í fínu lagi."

Eitt gat

Hópur heimilislækna á miðjum aldri og í góðum holdum hittist á læknaráðstefnu í útlöndum. Fyrir utan það að hlusta á einstaklega gefandi fyrirlestra nutu kollegarnir félagslegrar samveru í ríkum mæli. Ekkert vantaði upp á það besta í mat og drykk nokkur kvöld í röð. Þegar staðið var upp frá borðum eitt kvöld undir lok ráðstefnunnar laumaði Magnús út úr sér: "Þetta er ferð upp á eitt gat í beltinu."

Í sundi

Lítil frænka Birgis læknis fjögurra ára gömul fór í sund með móður sinni. Í sturtuklefanum varð henni starsýnt á mjög feita konu sem var að gera sig klára til að fara ofan í. Þegar út í laug var komið horfði sú stutta stíft á konuna og spurði: "Borðaðir þú allan matinn þinn"?



Þetta vefsvæði byggir á Eplica