Umræða og fréttir

Broshornið 44. Af pirringi og óþægindum

Fréttaskeyti framtíðarinnar

"Læknum hefur tekist að gera níutíu ára gamla konu ófríska. Vegna hins háa aldurs konunnar er búist við því að barnið fæðist fullorðið um mitt næsta ár."



Pirringur

"Það fara allir svo rosalega í taugarnar á mér," sagði kona á miðjum aldri við heimilislækninn sinn og virkaði bæði spennt og pirruð. "Ég á bókstaflega erfitt með að þola sumt fólk."

Læknirinn skrifaði út spennulosandi töflur handa konunni og bað hana að koma aftur að viku liðinni til að hægt væri að meta árangurinn.

Viku seinna kom konan aftur. "Hefur þú tekið eftir einhverjum breytingum á geðslagi þínu?" spurði læknirinn?

"Nei, það hafa ekki orðið neinar breytingar þar á," sagði konan, "en hins vegar eru flestir í kringum mig farnir að hegða sér mun betur en áður."



Óþægileg rannsókn

Eldri manni sem þótti nokkuð sérstakur í háttum var vísað til meltingarsérfræðings til rannsóknar vegna blæðingar frá endaþarmi. Maðurinn hafði fyrri sögu um gyllinæð og bar sig illa vegna óþæginda að aftanverðu. Þegar læknirinn var í miðju kafi að setja stutt speglunarrör upp í endaþarminn spyr maðurinn: "Heyrðu, læknir, hvað kosta annars svona græjur eins og þú ert að nota núna?"

Lækninum þótti spurningin nokkuð sérstök fyrir stað og stund og spurði: "Af hverju ertu að spyrja að því?"

"Nei, mér datt svona í hug ef það er eins sárt að taka tækið út eins og að setja það inn þá er ég nú alveg til í að kaupa allt draslið af þér og skilja það eftir inni."



Áttatíuogfimm

Áttatíuogfimm ára herra kom á stofu til heimilislæknisins sem hann hafði þekkt í áratugi. Eftir viðtal og skoðun sagði læknirinn: "Guðmundur minn, ef þú hættir að reykja og drekka á ég vona á því að þú getir lifað þangað til þú verður hundrað ára."

"Kallar þú það að lifa?" spurði gamli maðurinn.



Heilræði fyrir meltinguna

Meltingarsérfræðingur hefur fundið óbrigðult ráð handa þeim sem kvarta stöðugt um meltingartruflan

ir án sýnilegrar ástæðu. Hann spyr sjúklinginn hvort hann spili golf. Ef svarið er "já" ráðleggur hann sjúklingnum að hætta. Ef svarið er "nei" ráðleggur hann sjúklingnum að byrja í golfi.



Meiri hreyfing

Tveir menn tóku tal saman í biðstofunni hjá lækninum. Þeir ræddu fyrst um daginn og veginn en ekki leið á löngu þar til talið barst að krankleika þeirra og meðferðarúrræðum. "Ég var vanur að eyða miklum tíma í að horfa á golf í sjónvarpinu, en læknirinn sagði að ég þyrfti meiri hreyfingu, ef ég ætlaði að grenna mig. Ég hef hins vegar ekki lést um eitt gramm."

"Hvað hefur þú þá verið að gera í staðinn?" spurði hinn maðurinn. "Ég fór að fylgjast með tennis."



Bjallan

Sjúklingurinn: "Viltu fyrir alla muni lækna mig. Mér finnst ég vera bjalla."

Læknirinn: "Gleyptu þessar töflur. Ef þær hjálpa þér ekkert þá HRINGIR þú í mig."



Matarboð

Kona nokkur í kaupstað á landsbyggðinni hélt mikla veislu og veitti vel. Í boði voru m.a. kræsingar á borð við hráar ostrur, buff tartar, gufusoðinn krækling og kjúklingasalat. Daginn eftir hitti hún lækninn á staðnum niðri í bæ. "Það var leitt að þú gast ekki komið í veisluna til mín í gærkvöldi," sagði konan. "Þú hefur verið svo önnum kafinn undanfarið að það hafði bara gert þér gott að koma." "Veislan þín hefur þegar gert mér gott. Ég er búinn að fara í vitjun til fimm gesta þinna frá í gærkvöldi."



Kröfur nútímans

Heilsugæslulæknir úti á landi var vakinn klukkan þrjú að nóttu. Karlmaður á línunni krafðist þess að fá að vita hvað það kostaði að fá lækninn heim í vitjun.

"Tvö þúsund krónur," svaraði læknirinn.

"En hvað kostar að koma til þín í viðtal á stofuna?"

"Fjórtán hundruð krónur," svaraði læknirinn og var ekki skemmt með spurningum mannsins.

"Allt í lagi," sagði maðurinn, "eigum við þá að segja að við hittumst á stofunni þinni eftir fimmtán mínútur?"



Þetta vefsvæði byggir á Eplica