Umræða fréttir

Broshorn 24: Af mæðgum og mótmælum

"Þessi aðgerð gekk alveg ljómandi vel," sagði yfirskurðstofuhjúkrunarfræðingurinn (YSHF) við yfirlækninn á skurðdeildinni sem hafði nýlokið við skurðaðgerð. "Vertu ekkert að fárast yfir því að hafa skorið upp rangan sjúkling," sagði YSHF.



Af mótmælum

"Ég sá að læknarnir voru í mótmælagöngu í morgun. Hverju voru þeir að mótmæla?" spurði konan.

"Ég hef ekki hugmynd um það," svaraði maðurinn, "ég gat ómögulega lesið hvað þeir höfðu krotað á kröfuspjöldin."



Eitrun

"Ég er með leiðinda fréttir fyrir þig, Axel. Þú hefur fengið eitrun," sagði læknirinn grafalvarlegur í bragði og án þess að svo mikið sem snúa sér að sjúklingnum. Axel var illa brugðið en herti upp hugann og spurði: "Heldurðu að það geti verið sveppurinn eða skelfiskurinn sem ég borðaði í gærkvöldi?" "Þeirri spurningu verður ekki svarað fyrr en eftir krufninguna," svaraði læknirinn kuldalega.



Heimavinna

"Hvað meinar þú eiginlega með því að þig hafi ekki dreymt neitt í nótt?" spurði sálfræðingurinn manninn sem lá á bekknum. "Ég get ósköp lítið hjálpað þér ef þú vinnur ekki heimavinnuna áður en þú kemur til mín."



Við dauðans dyr

Lárus gamli lá fyrir dauðanum og fékk lækninn til sín í síðasta sinn. Fyrir utan herbergisdyrnar stóð fjöldi ættingja. Þegar læknirinn kom út úr herberginu bað hann fólkið að herða upp hugann og reyna hvað það gæti til að tala upplífgandi til gamla mannsins.

"Þú lítur miklu betur út í dag," sagði dóttir hans.

"Þú sýnir ótvíræðar framfarir," sagði sonurinn og tengdadóttirin bætti við: "Ég held bara að þú hafir ekki litið svona vel út í áraraðir."

Þá opnaði Lárus gamli augun og byrsti sig: "Það er ekki verra að vita að nú drepst ég alveg bráðhress."



Skipt um lækni

"Ég var að frétta að þú hefðir skipt um lækni," sagði kona nokkur við vinkonu sína. "Já, það er rétt. Þessi sem ég var hjá var illa haldinn af þráhyggju. Í hvert skipti sem ég hitti hann sagði hann að ég væri ímyndunarveik."





Hjá dýralækni

"Hvernig gekk ferðin til Portúgal?" spurði maðurinn bróður sinn, nýkominn að utan. "Þetta var alveg ömurlegt ferðalag. Ég varð veikur og þurfti að hitta dýralækni."

"Hvað ertu að meina, fórstu til dýralæknis?" spurði bróðirinn furðu lostinn.

"Já, ég kann ekki orð í portúgölsku og dýralæknar eru jú vanir að sinna þeim sem ekki geta tjáð sig."



Það borgar sig að borga

Alfreð er í mestu fjárhagsþrengingum sem hann hefur lent í á ævinni. Hann situr með ógreidda reikninga og gerir sér grein fyrir því að hann getur með engu móti staðið í skilum. Hann spyr því konu sína: "Hvort finnst þér brýnna að borga rafmagnsreikninginn eða reikninginn frá lækninum?" Konan var ekki í neinum vafa. "Rafmagnsreikninginn, að sjálfsögðu. Það er óhugsandi að læknirinn komi og loki fyrir blóðrásina."



Mæðgur hjá lækni

Móðir kom með sautján ára dóttur sinni til læknis. Daman var bráðmyndarleg og mamman einnig, en sú síðarnefnda var komin hátt á fertugsaldur. Þær þóttu með ólíkindum samrýndar og nátengdar og töluðu til skiptis við lækninn án þess að hann gæti komið að meira en orði á stangli. Læknirinn var ekki með það á hreinu hvor þeirra ætti erindi til hans í þetta skipti. "Jæja, það er best að ég líti á þig. Klæddu þig úr, góða mín, og sestu á skoðunarbekkinn," sagði hann við dótturina. "Já en læknir minn góður, það þarf að skoða mig en ekki dóttur mína," sagði konan. "Nú jæja, gott og vel. Viltu ekki vera svo væn að opna munninn og reka út úr þér tunguna."



Tveir í rannsóknum

Strákpattarnir Pétur og Óli hittust á biðstofu hjá lækni.

"Hvers vegna ert þú að grenja?" spurði Óli.

"Ég er að fara í blóðprufu hjá lækninum," sagði Pétur og var greinilega mjög kvíðinn.

"En hvað er svona voðalegt við það?" spurði Óli hissa.

"Síðast þegar ég fór í blóðprufu munaði minnstu að læknirinn skæri af mér puttann."

Þá varð Óli fölur sem nár í framan og brast síðan í grát.

"En af hverju ert þú farinn að væla?" spurði Pétur.

"Af því að ég á að skila þvagprufu," sagði Óli og varð óhuggandi.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica