Umræða fréttir

Af sjónarhóli stjórnar LÍ. Að standa vörð um hagsmuni stéttarinnar

Kæru félagar. Ég er ný í stjórn Læknafélags Íslands og spennt að taka þátt í starfinu en er ennþá óslípuð í rennslinu. Ég hef verið að velta því fyrir mér svona í upphafi stjórnarsetu hvernig félag LÍ sé? Hvernig er félagið uppbyggt, hvað á það að gera, hverjir eru sameiginlegir hagsmunir lækna, hvaða sérhagsmuni og réttindi er brýnast að standa vörð um? Er uppbygging félagsins rétt eins og hún er nú þannig að sem flestir félagsmenn finni sér stað sem þeir eru sáttir við?

Að standa vörð um hagsmuni félagsmanna er eitt höfuðmarkmið regnhlífarsamtaka eins og Læknafélags Íslands. Augljóst er að fyrir einstaklinginn er breytilegt frá einum tíma til annars hver eru hans helstu hagsmunamál.

Þegar ég var unglæknir 1977-1980 vann ég í hópi innan Læknafélags Reykjavíkur sem safnaði fyrir barnaheimili handa læknabörnum. Á þeim tíma var þetta mikið hagsmunamál yngri lækna í Reykjavík. Við fengum ekki inni á spítalabarnaheimilunum, nema þau sem voru svo heppin að eiga hjúkrunarfræðing sem maka. Niðurgreiddur barnaheimilisrekstur var þá jafnréttismál í mínum huga. Kvennabarátta hefur nú skilað þeim árangri að þótt meirihluti íslenskra unglækna í dag sé konur er ekki lengur grundvöllur fyrir þessum rekstri. Þarafleiðandi hefur hann nú verið lagður af, húsið selt og orðið að sjóði hjá LR.

Þetta varð meðal annars til þess að ég fór að hugsa um fleiri hús í eigu lækna, það er að segja orlofshús. Má í beinu framhaldi af fréttum um fyrirhugaða skattlagningu fríðinda búast við að ríkisvaldið sem borgar orlofssjóðinn fyrir sína starfsmenn taki upp á því að skattleggja þau fríðindi? Eða er svona rekstur stéttarfélags kannski álíka úreltur og barnaheimilisrekstur? Hvers vegna eru læknar að standa í rekstri orlofshúsa? Er ekki nær að versla beint við fagmenn? Einstaklinga sem eru að reyna að lifa af rekstri orlofshúsa út um allt land? Bæði bjóða þeir mun fjölbreyttara umhverfi og aðstæður, og oft líka aðra tengda þjónustu, svo sem hestaleigu, veiði og aðrar skipulagðar ferðir með leiðsögn.

Kaup og kjör er mikilvægt atriði sem alltaf er beint hagsmunamál og snertir stéttarfélag. Samningamál okkar lækna eru flókin og margsamsett. Læknafélag Íslands skipar samninganefnd sjúkrahússlækna og lækna hjá Reykjavíkurborg. Kjaradómur sér um að úrskurða laun heilsugæslulækna og ný nefnd í heilbrigðisráðuneytinu hefur nú tekið að sér að semja við sjálfstætt starfandi lækna og um ferliverk við sjúkrahúsin. Óneitanlega finnst mér að tekið hafi verið fram fyrir hendurnar á Tryggingaráði sem er yfirstjórn Tryggingarstofnunar ríkisins þegar ráðið er svona fullkomlega sniðgengið í þessu atriði. Það er þó enn eitt af stóru hlutverkum TR að sjá um að kaupa þjónustu fyrir skjólstæðinga sína, það er íslenska ríkisborgara sem eru sjúkratryggðir hér, ekki satt! Kannski að gamla sjúkratryggingakerfið sé búið að ganga sér til húðar og eitthvað nýtt sé í uppsiglingu?

Uppbygging LÍ hefur breyst gegnum tíðina en kannski er enn þörf á róttækum breytingum. Gömlu svæðafélögin hafa ekki lengur meirihluta atkvæða á aðalfundi LÍ þó þau séu nauðsynlegur vettvangur í héraði. Slík félög eru gott dæmi um þverfagleg félög sem henta vel til að standa vörð um ákveðna sameiginlega hagsmuni einstaklinga. Önnur þverfagleg félög geta tekið mið af aldri til dæmis, svo sem Félag ungra lækna og Félag eldri lækna. Kyngreining í félagsstarfi er ekkert nýtt og tiltölulega ungt Félag kvenna í læknastétt hefur haldið úti fjölbreyttu og fjölsóttu starfi undanfarin ár. Á sumum fjölmennum læknastöðvum í Reykjavík hafa menn kannski meiri sameiginlegra hagsmuna að gæta en innan síns sérgreinafélags. Hvað segja Læknasetursmenn, vilja þeir stofna félag og eiga fulltrúa á aðalfundi LÍ? Ákveðin lágmarkstala félagsmanna þarf auðvitað að vera á bak við sérhvern fulltrúa. Margar stórar sérgreinar telja hagsmunum sínum örugglega best borgið innan eigin vébanda en litlu greinarnar þyrftu kannski að slá sér saman til að félagatala nægði fyrir fulltrúa.

Þetta gæti orðið allra skemmtilegasti dans gegnum starfið. Byrja hjá FUL, prófa svæðisfélag, nokkur ár í sérgreinafélagi, berjast með kvenfélaginu eða Læknasetrinu, og enda að lokum í Félagi eldri lækna.



Baráttukveðjur

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica