Umræða fréttir

Fjömennasta árshátíð LR frá upphafi

Árshátíð Læknafélags Reykjavíkur var haldin laugardaginn 19. janúar á Broadway-Hótel Ísland í lok Læknadaga. Þátttaka var mjög góð og komu 645 gestir en það er besta þátttaka á árshátíð í sögu félagsins. Hátíðin hófst með því að Ólafur Þór Ævarsson formaður Læknafélags Reykjavíkur bauð gesti velkomna. Þá söng heimilislæknakórinn lagið "You don't own me" og tileinkaði það Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra sem var heiðursgestur ásamt frú Margréti Einarsdóttur. Jóhannes Kristjánsson eftirherma og grínisti fór á kostum og Sigrún Hjálmtýsdóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson sungu sig inn í hjörtu viðstaddra. Ánægjulegt var hve margir unglæknar tóku þátt í hátíðinni. Einnig komu margir læknar af eldri kynslóðinni sem ekki höfðu verið á árshátíð LR í mörg ár. Þeir elstu héldu upp á 50 ára útskriftarafmæli sitt. Margir læknar af landsbyggðinni voru mættir og vitað er að nokkrir læknar komu erlendis frá til að hitta gamla vini og skólafélaga. Sú ánægjulega hefð að útskriftarárgangar lækna hittist á árshátíð LR er nú aftur að festast í sessi. Höfðu margir orð á því að það væri góður endir á Læknadögum, eftir að hafa hlýtt á fagleg fræðsluerindi og vandaða umræðu um læknisfræðileg málefni, að endurnýja gamlan vinskap og mynda ný tengsl. Árshátíðin var hin glæsilegasta í alla staði og læknum til sóma. Við birtum hér nokkrar myndir sem Jón Svavarsson tók á hátíðinni.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica