Umræða fréttir

Broshornið 30. Latex og dónaskapur

Hjúkka eða nunna

Í lok langrar og annasamrar vaktar á bráðamóttökunni hallaði hjúkkan sér upp að afgreiðsluborðinu og stundi.

"Ertu að niðurlotum komin?" spurði deildarhjúkkan.

"Þú átt kollgátuna. Á stundum sem þessum deymir mig um að vera nunna."

"Nunna? Af hverju segirðu það?"

"Sko, hér eru í það minnsta tíu læknar á hverri vakt, dag eftir dag. Nunna þarf aðeins að þjóna einum Guði."





Úr latexi

Læknir sem taldi sig vera húmorista var að fara að skoða eldri konu sem var augsýnilega mjög taugaóstyrk. Til þess að dreifa athygli konunnar og létta henni stundina brá hann fyrir sig því sem hann hélt að væri læknaskop.

"Veistu hvernig þeir fara að því að búa til svona gúmmíhanska?"

"Nei, hvernig?" spurði konan.

"Í hanskaverksmiðjunni er stór tankur fullur af efni sem heitir latex og er efnið í gúmmíhönskunum. Verkamennirnir raða sér upp eftir handarstærð, ganga upp að tanknum og dýfa báðum höndum ofan í. Síðan sveifla þeir handleggjunum þannig að latexið þornar fljótt og að því búnu taka þeir hanskann af sér og byrja á öllu upp á nýtt."

Konunni stökk ekki bros. Læknirinn byrjaði að skoða hana, vandræðalegur á svip og hálfvonsvikinn að hafa ekki tekist að fá konuna til að hlæja. Fimm mínútum seinna fór hún að flissa og síðan að skríkja.

"Fyrirgefðu læknir," sagði konan eldrauð í framan. "Ég fór bara að spá í hvernig smokkar eru búnir til."





Dónalegur læknir

Eldri kona hringdi í son sinn og var alveg miður sín. "Ég hringdi í lækninn minn í morgun og hann var alveg með endemum dónalegur við mig. Ég trúði varla mínum eigin eyrum," sagði konan.

Sonurinn var steinhissa á þessari lýsingu móður sinnar og hringdi í lækninn og krafðist skýringar.

"Ég biðst innilega afsökunar," sagði læknirinn. "Hefur þú nokkurn tíma átt einn af þessum dögum þar sem allt fer úrskeiðis? Þegar móðir þín hringdi í mig voru tveir sjúklingar æpandi á mig og þar af annar ælandi, tíu sjúklingar biðu eftir mér á biðstofunni, móttökuritarinn var í kaffipásu og krakki var nýbúinn að pissa á mig. Þegar móðir þín spurði mig svo hvernig hún ætti að nota endaþarmsmæli lét ég orðin flakka sem komu fyrst upp í hugann."





Lifandi eða dauður

Þegar sjúklingurinn var að ganga út af læknastofunni dró læknirinn eiginkonuna aðeins afsíðis og sagði: "Það amar ekkert að manninum þínum. Hann heldur bara að hann sé veikur."

Nokkrum dögum síðar hringdi læknirinn til að spyrjast fyrir um sjúklinginn. "Hvernig hefur maðurinn þinn það í dag?" spurði hann konuna.

"Hann er verri. Nú heldur´ann að hann sé dauður."





Á barnum

Ungur myndarlegur maður settist við hlið konu á barnum og horfði á hana girndaraugum.

"Við hvað starfar þú?" spurði hann flauelsmjúkri og kynæsandi röddu.

"Ég er læknir."

"Ég vildi óska að ég væri sjúkur og þú mundir lækna mig," hvíslaði hann í eyra hennar.

"Þú skalt nú fara varlega í að óska þér," sagði konan. "Ég vinn nefnilega á "Húð og kyn"."





Verðandi feður

Þrír verðandi feður biðu í pabbaherbergi fæðingardeildarinnar og nöguðu á sér hnúana. Í því birtist ljósmóðirin í dyrunum og sagði við þann fyrsta:

"Til hamingju, þú er búinn að eignast tvíbura."

"En sú tilviljun, ég vinn einmitt á skyndibitastaðnum "Tveir fyrir einn"."

Eftir skamma stund birtist ljósmóðirin á ný og sagði við karl númer tvö:

"Hjartanlegar hamingjuóskir því konan þín var að eignast þríbura."

"Þetta er nú alveg stórmerkilegt því ég vinn á veitingastaðnum "Þrír Frakkar"."

Hinir nýorðnu feður skiptust á hamingjuóskum en varð síðan litið til þess þriðja sem sat samankrepptur úti í horni, hvítur sem mjöll í framan.

"Svona nú lagsi, hafðu engar áhyggjur. Konan þín hlýtur að fæða hvað úr hverju."

Maðurinn svaraði því engu en tuldraði stöðugt: "Af hverju í ósköpunum tók ég að mér starfið í "Tíu - ellefu"."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica