Umræða fréttir

Fulltrúi LÍ í stjórn Alþjóðafélags lækna

Á fundi Alþjóðafélags lækna í janúarmánuði síðastliðnum fékk Læknafélag Íslands í fyrsta sinn fulltrúa í stjórn félagsins. Læknafélag Íslands sendi af því tilefni frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:



Læknafélag Íslands skipar fulltrúa í stjórn Alþjóðafélags lækna (WMA) - World Medical Association Council á kjörtímabilinu 2001-2002. Það var niðurstaða stjórnarkosninga sem tilkynnt var í gær. Með samvinnu norrænu læknafélaganna eiga Norðurlöndin nú tvo fulltrúa kjörna í stjórn WMA, Læknafélag Íslands og Læknafélag Noregs hvort félag með einn fulltrúa. Er þetta í fyrsta skipti sem Læknafélag Íslands á fulltrúa í stjórn (council) Alþjóðafélags lækna

Fyrsti vísirinn að alþjóðsamtökum lækna var stofnaður 1926 með þátttöku 23 þjóða. Lagðist sú starfsemi niður er síðari heimsstyrjöldin braust út, en í júlí 1945 voru drög lögð að stofnun Alþjóðafélags lækna -WMA, sem var formlega gert á fundi í Frakklandi í september 1947 með þátttöku 27 þjóða. Nú eiga 72 þjóðir aðild að Alþjóðafélagi lækna. Stjórn félagsins er skipuð 18 fulltrúum. Þar af eru fulltrúar Evrópu sjö. Læknafélög Bretlands og Frakklands eiga hvort sinn fulltrúa í stjórninni þar sem félagar í þeim samtökum eru fleiri en 50.000. Læknafélag Þýzkalands á tvo fulltrúa vegna félagafjölda yfir 100.000. Kosið var um fulltrúa í þrjú sæti Evrópu í stjórninni og var það niðurstaða kosninganna að þau skipa fulltrúar Læknafélags Íslands, Læknafélags Noregs og Læknafélags Hollands.



Læknafélagi Íslands er það mikill heiður að fulltrúi þess skipi stjórn Alþjóðafélags lækna næsta kjörtímabil. Er það mikil viðurkenning á störfum félagsins að siðamálum lækna á alþjóðlegum vettvangi á undanförnum árum.



Kópavogi 2. febrúar 2001



Læknafélag Íslands valdi Jón Snædal sem fulltrúa sinn í stjórn Alþjóðafélags lækna. Læknablaðið fékk Jón til að segja lesendum í stuttu máli frá aðdraganda kjörsins og þeim væntingum sem hann hefur um stjórnarsetuna:



Aðdragandi

,,Norræna læknaráðið ákvað fyrir ári að bjóða fram sameiginlega fulltrúa í stjórn Alþjóðafélags lækna (WMA) þar sem ljóst virtist að með því móti kæmust tveir fulltrúar frá Norðurlöndunum í stjórn en ella einn. Jafnframt var samþykkt ákveðin röð á framboðum frá löndunum og þar sem Ísland hafði aldrei haft fulltrúa áður gafst Læknafélagi Íslands kostur á að bjóða fram í þetta sinn. Gekk það eftir og að lokinni kosningu til stjórnar nýverið fengu íslenska og norska læknafélagið fulltrúa þegar kosið var á Evrópusvæði Alþjóðafélags lækna. Kosið er til eins árs í senn með möguleika á framlengingu um eitt ár án kosningar ef viðkomandi læknafélag svo kýs."



Verkefni

,,Meginverkefni Alþjóðafélags lækna eru tvenns konar. Annars vegar að styrkja og bæta stöðu lækna víðs vegar um heim til dæmis með því að leggja áherslu á hlutleysi þeirra gagnvart stjórnvöldum. Mörg dæmi eru um það að læknum eru lagðar skyldur á herðar sem ekki samræmast því hlutverki þeirra að lækna og líkna svo sem að hýsa stjórnarandstæðinga á geðdeildum eða að þeim er gert að taka þátt í og jafnvel framkvæma dauðarefsingar. Annað meginverkefni er á sviði siðfræði lækninga og ekki síður rannsókna og er Helsinkiyfirlýsingin þekktasta dæmið um það en 6. útgáfa hennar var samþykkt í Edinborg á síðastliðnu hausti. Nærtækt verkefni fyrir Læknafélag Íslands er að taka þátt í stefnumótun Alþjóðafélags lækna í notkun víðtækra heilsufarsupplýsinga til rannsókna, en nú er einmitt verið að vinna að henni."

aób

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica