Umræða fréttir

Broshornið 13. Af myndarlegum læknum og megrun

Gat ekki gengið

Tveir strákar, annar fimm ára og hinn sex, tóku tal saman á biðstofunni hjá Rósmundi skurðlækni. Sá eldri hallaði sér að hinum og spurði: "Hvað á að gera við þig?"

"Það á að umskera mig," sagði sá fimm ára.

"Blessaður láttu þá ekki gera það," sagði sá eldri og reyndari. "Þeir umskáru mig fyrir löngu síðan og ég gat ekki gengið í heilt ár á eftir."



Ein pirruð

"Það eru allir svo pirrandi," sagði spennt kona við lækni sinn. "Ég þoli bókstaflega ekki annað fólk." Læknirinn skrifaði upp á geðlyf handa konunni og bað hana að koma aftur til sín að viku liðinni.

Konan birtist á umsömdum tíma. "Hefur þú tekið eftir einhverri breytingu á líðan þinni frá því við hittumst síðast?," spurði læknirinn.

"Nei, það hefur sko ekkert breyst hjá mér. Ég verð hins vegar að segja að fólk í kringum mig er mun skárra í viðmóti."



Einn myndarlegur

Hjúkka sem vann á stofu með lækni var gagntekin af því að læknirinn vissi allt, væri moldríkur og bráðmyndarlegur. Hún sagði bestu vinkonu sinni frá lækninum og dró ekkert undan varðandi ágæti hans. "Hann er alveg frábær," sagði hjúkkan. "Þú ættir eiginlega að panta tíma hjá honum á stofunni."

"Ég get ekki verið að panta tíma hjá honum á stofunni, það er ekkert að mér," sagði vinkonan.

"Þú ættir nú samt að koma og hitta hann."

"Já, en elsku besta, ég var að segja þér að það er ekkert að mér."

Hjúkkan gaf sig ekki og sagði: "Hafðu engar áhyggjur af því. Hann finnur örugglega eitthvað að þér."



Annar myndarlegur

Það var einu sinni læknir sem var svo upptekinn af eigin útliti og sjarma að í hvert skipti sem hann taldi hjartslátt konu dró hann frá tíu slög vegna þeirra áhrifa sem nærvera hans hefði á konuna !!



Einn myrkfælinn

Mamman kom með litla drenginn sinn til læknisins. "Hann er svo rosalega myrkfælinn," sagði mamman. "Hann neitar að sofa í rúminu sínu og heldur vöku fyrir okkur hjónunum með stöðugu væli allar nætur. Hvað getum við eiginlega gert ?"

"Hafið ekki áhyggjur af þessu," sagði læknirinn. "Flest börn vaxa upp úr myrkfælninni. Áður en langt um líður verður hann farinn að nauða í ykkur að fá að vera úti í myrkrinu."

Megrun

Læknirinn: "Nú er offitan alveg að fara með þig, Svunta mín og ég er hræddur um að nú verðir þú að fara í megrun."

Svunta: "Ég hafði á tilfinningunni að þú mundir segja þetta."

Læknirinn: "Í þessu megrunarátaki, sem hefur ekkert með vitundarvakningu um vélindabakflæði að gera, máttu borða allt sem hugurinn girnist."

Svunta (himinlifandi): "Í alvöru? Ég ætti nú auðveldlega að ráða við slíkan megrunarkúr."

Læknirinn: "Já, þú mátt snæða allan mat, en þú verður að borða hann nakin fyrir framan spegil."



Tók magnyl

Konan: "Þegar ég vaknaði í morgun leið mér svo illa að mig langaði ekki til að lifa lengur. Eg ákvað því að taka inn þúsund magnyltöflur."

Læknirinn: "Hvað segirðu? Og hvað gerðist svo?""

Konan: "Mér leið miklu betur eftir fyrstu tvær töflurnar og hætti því við restina."



Eitt og annað, stutt og laggott

Tveir geðlæknar mættust á gangi. "Blessaður," sagði annar. "Hvað skyldi hann hafa átt við?" hugsaði hinn.



Þegar læknirinn segir: "Þetta verður ekkert sárt," meinar hann í rauninni: "Þetta verður virkilega sársaukafullt."



Hefurðu heyrt um plastikkírúrginn, sem sat svo nálægt arninum að hann bráðnaði?



"Læknir, ég fæ svakalegan verk í augað í hvert skipti sem ég fæ mér kaffisopa."

"Hefurðu prófað að taka skeiðina úr bollanum, þegar þú sýpur?"



"Læknir, ég er svo illan haldinn af déja vu."

"Sáumst við ekki í gær?"



"Læknir, hvað sást á röntgenmyndinni, sem þú lést taka af höfðinu á mér?"

"Ekkert."



"Er hóstinn nokkuð betri, Jóna mín?"

"Hann ætti að vera það. Ég er búin að æfa mig í alla nótt."



Hvers vegna fer fólk með langvinnan hósta aldrei til læknis?

Af því að það er svo upptekið við alls konar athafnir, á hljómleikum, í jarðarförum, í kirkjum, leikhúsum og bíó.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica