Umræða fréttir

Broshornið 12: Af fordómum og pöddum

Við rúmstokkinn

Fræðslustofnun lækna blés til fundar á þrettándanum og hleypti af stokkunum fundaröðinni Við rúmstokkinn undir stjórn rúmstokksnefndarinnar með þá Kjartan, Arnór, Ásbjörn, Óskar og Jón Gunnlaug innanborðs. Kynnt var sjúkratilfelli eftir að fundarmenn höfðu hitað upp með kaffi eða kakói og rúnstykkjum. Fjölmenni var á fundinum og voru 76 hausar taldir bæði lækna og læknanema, þó hinir fyrrnefndu væru í miklum meirihluta. Einhver hafði á orði að fundir sem þessir gætu ekki brugðist því nafnið eitt væri svo trekkjandi. Það vekti upp gamlar og góðar minningar úr Tónabíói, þegar menn flykktust á rúmstokksmyndirnar dönsku og bláu fyrr á árum. Gullkorn sem heyrðist: "Óalgeng einkenni algengra sjúkdóma eru algengari en algeng einkenni óalgengra sjúkdóma." Ó, þú ástkæra, ylhýra ... ! Vel gert, rúmstokksbræður.



Fordómar

Einn af reyndari heimilislæknum höfuðborgarinnar hefur vanið komur sínar í Laugardalslaugina á undanförnum árum. Til þess er tekið hve vel sundið hefur farið með lækninn. Í tvígang hefur hann tekið þátt í endurlífgun sundlaugargesta. Í seinna skiptið var læknirinn á sundi þar sem dýpi laugarinnar var um 166 sentimetrar. Þá tók hann eftir því að maður nokkur lá hreyfingarlaus í vatninu með höfuðið nær botni en fæturna. Læknirinn synti að manninum og rétti hann af þannig að höfuð beggja stóðu upp úr vatninu. Maðurinn andaði ekki og var því ekki um annað að ræða fyrir lækninn en að blása í hann lífi með munn-við-munn aðferðinni. Þegar björgunaraðgerðirnar stóðu sem hæst úti í miðri sundlauginni syndir eldri kona framhjá, lítur sem snöggvast til mannanna og segir: "Uss, að sjá til ykkar. Þið ættuð að skammast ykkar."



Pöddur skríðandi

Karlmaður kom til læknis og fór að að segja honum frá lífi sínu. Hann rifjaði meðal annars upp æskuna, talaði um vinnuna og matarvenjurnar. Læknirinn skoðaði manninn hátt og lágt og sagði síðan: "Ég finn ekkert að þér og ég átta mig ekki alveg á því hvers vegna þú kemur til mín í dag."

"Sérðu það ekki maður? Ég kem út af þessum pöddum, sem skríða út um mig allan."

"Drottinn minn dýri," hrópaði læknirinn. "Ég ætla bara að biðja þig um að halda þér fjarri mér og fyrir alla muni ekki bursta þær af þér hérna inni."



Hjartaskoðun

Sjúklingurinn: "Læknir, er nokkuð að hjartanu í mér?"

Læknirinn: "Ég get sagt með fullri vissu, eftir að hafa skoðað hjartað í þér gaumgæfilega, að það mun duga jafn lengi og þú."



Tekinn blóðþrýstingur

Fjögurra ára snáði var fluttur á bráðamóttökuna vegna kviðverkja. Áður en læknirinn skoðaði drenginn kom hjúkrunarfræðingur til hans og sagði: "Nú ætla ég að taka blóðþrýstinginn, góði minn."

Því næst kom barnalæknir sem skoðaði drenginn í þaula. Til allrar lukku reyndist ekkert alvarlegt ama að drengnum. Læknirinn sagði foreldrunum, sem voru mjög áhyggjufullir, að drengurinn mætti fara heim með þeim. Öllum til mikillar furðu neitaði drengurinn að fara. "Ég fer ekki heim fyrr en konan skilar aftur blóðþrýstingnum, sem hún tók," sagði sá stutti og benti á hjúkkuna.



Aldrei ánægð

Guðrún var áttræð og einn af tryggustu sjúklingum læknisins. Hún var síkvartandi þó hún væri laus við alvarlega sjúkdóma. Hún leit meira að segja svo vel út að hún gat verið að minnsta kosti 10 árum yngri en tugirnir átta gáfu til kynna. Dag nokkurn kom hún á stofu til Gríms læknis og það fór ekki fram hjá honum hve frískleg gamla konan var.

"Hvað gengur að þér í dag, Guðrún mín," spurði læknirinn.

"Mér hefur liðið svo vel að undanförnu, að ég kom nú bara til að fá athugað hvað amaði að mér," sagði konan.



Ekkert sýni

Eldri maður kvæntist sér yngri konu. Þau áttu þá ósk heitasta að eignast barn en allar tilraunir til getnaðar voru árangurslausar. Maðurinn fór til læknis og bað um að fá að fara í sæðisfrumutalningu.

Læknirinn rétti manninum krukku. "Farðu með þessa krukku heim og komdu svo á morgun með sæðisprufu í henni," sagði læknirinn.

Maðurinn kom til baka með tóma krukku. "Ég reyndi eins og ég gat, fyrst með annarri hendi og síðan með báðum, en allt kom fyrir ekki," sagði karlinn. "Þá bað ég konuna að prófa. Hún reyndi fyrst með hægri, svo með vinstri og loks með báðum en ekkert gekk hjá henni heldur. Loks bað ég nágrannakonuna að reyna, en tilraunir hennar voru einnig árangurslausar."

"Baðstu nágrannakonuna að reyna," spurði læknirinn undrandi.

"Já, hún er svo ansi kröftug, en ekkert okkar gat opnað krukkuna."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica