Umræða fréttir

Soroptimistasamband Evrópu styrkir konu til sérfræði- eða framhaldsnáms í lýtalækningum

Soroptimistasamband Evrópu mun á næsta ári veita styrk úr sjóði Suzanne Noël til konu sem hyggst leggja stund á sérfræði- eða framhaldsnám í lýtalækningum (plastic or reconstructive surgery).

Styrkurinn mun nema 6.000 til 7.000 evrum.

Skilyrði fyrir styrkumsókn eru að umsækjandi:

- sé yngri en 50 ára,

- hafi lækningaleyfi,

- hafi sérfræðiviðurkenningu eða sé í sérnámi í lýtalækningum (plastic or reconstructive surgery),

- leggi fram vottorð frá sérfræðingi í lýtalækningum í viðkomandi landi.



Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2002.

Umsóknir skulu afhentar Ingibjörgu Benediktsdóttur Soroptimistasambandi Íslands, sem jafnframt veitir allar nánari upplýsingar.



Umsóknareyðublað má einnig nálgast hjá Læknablaðinu.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica