Umræða fréttir

Leiðbeiningar Læknafélags Íslands um samskipti lækna við framleiðendur og söluaðila lyfja og lækningatækja. Tillögur nefndar LÍ sem starfaði frá mars 1992 til apríl 1993



Það er réttur framleiðenda og söluaðila lyfja og lækningatækja að geta komið á framfæri við lækna upplýsingum um vörur sínar, séu upplýsingarnar byggðar á traustum rökum og nái jafnt til kosta og galla. Ennfremur er þeim nauðsyn á samvinnu við lækna um vöruþróun og rannsóknarstarf. Stuðningur fyrirtækjanna við fræðslu- og vísindastörf er læknastéttinni og þjóðfélaginu nauðsynlegur.

Læknum ber að gæta þess að þessi samskipti skerði á engan hátt læknisheiður né rýri hæfni þeirra til að leggja hlutlægt mat á þá valkosti sem í boði eru við meðferð sjúklinga. Hafi þeir sér til hliðsjónar heitorð lækna, Codex Ethicus Læknafélags Íslands frá 1992, lög Læknafélags Íslands og læknalög.

Eftirfarandi leiðbeiningar eiga að auðvelda samskipti lækna og fulltrúa framleiðenda lyfja og lækningatækja, svo að báðir hafi sóma af.



Fræðslu- og kynningarstarf söluaðila lyfja og lækningatækja

1. Kynnum lyfja og lækningatækja ber að leita leyfis yfirlæknis eða viðkomandi læknis fyrir kynningarfundi, og gera þá grein fyrir fundarefninu. Æskilegt er að læknar taki í sameiningu á móti kynnum lyfja og lækningatækja svo að umræður komi að sem mestum notum í menntunarlegu tilliti.

2. Á fræðslu- og kynningarfundum er læknum heimilt að þiggja hóflegar veitingar í fundarhléi. Ekki er viðeigandi að læknar taki við öðrum gjöfum frá kynningaraðilum en fræðsluefni og sýnishornum sem tengjast því.



Stuðningur við endurmenntun og viðhaldsmenntun lækna

1. Heimilt er þeim sem veita læknum endurmenntun á fundum, námskeiðum og ráðstefnum að þiggja stuðning framleiðenda og söluaðila lyfja og lækningatækja. Slíkur stuðningur skal að öðru jöfnu takmarkast við fagleg og vísindaleg viðfangsefni og vera án allra skuldbindinga um efnistök.

2. Læknar sem taka að sér fræðslu og fyrirlestrahald í þágu framleiðenda og söluaðila lyfja og lækningatækja skulu fá greiddan útlagðan kostnað og endurgjald fyrir vinnuframlag sitt í samræmi við reglur Læknafélags Íslands. Læknar eru frjálsir að formi og innihaldi fyrirlestra sinna.

3. Læknum er heimilt að þiggja ferðastyrki fyrir sjálfa sig af faglegum ástæðum til viðhalds- og endurmenntunar. Ber læknum skylda til að gera gæðakröfur í þessu sambandi og taka aðeins þátt í viðurkenndum vísindaráðstefnum um viðfangsefni sín.



Auglýsingar

1. Leyfilegt er að gefa framleiðendum lyfja og lækningatækja kost á að kynna framleiðsluvörur sínar í tengslum við fundi lækna, námskeið og ráðstefnur. Gildir það einkum um þau fyrirtæki sem eru beinir stuðningsaðilar. Kynning á varningi, sem tengist því efni sem um er fjallað, hefur að öðru jöfnu forgang.

2. Allri auglýsinga- og kynningarstarfsemi fyrirtækja á fræðslusamkomum lækna ber að halda greinilega aðskildri frá annarri fræðilegri umfjöllun.

3. Læknum ber að gæta þess að auglýsingum um lyf og lækningatæki sé ekki komið fyrir á stöðum sem almenningur á aðgang að, sbr. lyfjalög.



Vísinda- og rannsóknarstörf

1. Læknum er heimilt að eiga samvinnu við framleiðendur lyfja og lækningatækja í vísinda- og rannsóknarskyni. Þeim ber þá að huga vel að reglum um þetta efni, einkum Helsinkiyfirlýsingunni frá 1964 með síðari breytingum og Codex Ethicus L.Í. 4. og 19. gr. Bæði getur verið um að ræða stuðning fyrirtækja við ákveðin rannsóknarverkefni lækna og rannsóknir á lyfjameðferð og notkun tækja, sem læknar taka að sér að gera í þágu fyrirtækja. Skilyrði fyrir slíkri samvinnu er að stjórnandi rannsóknarinnar hafi góða vísindalega þekkingu og reynslu til starfans.

2. Æskilegt er, að læknar geri skriflegan samning við framleiðendur lyfja eða lækningatækja þegar um slíka samvinnu eða stuðning er að ræða. Í samningnum er tekið fram hver þóknun læknis eða fjárstuðningur fyrirtækis sé. Ennfremur er þar kveðið á um hvernig nota megi niðurstöður, svo að tryggt sé að þær megi birta án tillits til hvers eðlis þær verða.

3. Læknum er heimilt að taka við greiðslu fyrir þá vinnu sem þeir inna af hendi við rannsóknarstarfið. Ennfremur má veita viðtöku þóknun vegna annars kostnaðar við rannsóknina, svo sem vegna efnis, ferða og uppihalds, samkvæmt venjum sem gilda um opinbera starfsmenn. Sama gildir um aðstoðarfólk lækna.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica