Umræða fréttir
Broshornið 21. Af "sjússum" og blóðflæði
Kynöskur
"Ég er komin út af manninum mínum," sagði konan við lækninn sinn. "Þegar við stundum kynlíf öskrar hann alveg rosalega í hvert skipti sem hann fær fullnægingu.""Það er nú svo sem ekkert athugavert við það í sjálfu sér. Mörgum konum finnst meira að segja æsandi að heyra karlinn öskra," sagði læknirinn.
"Það þætti mér líka, ef hann væri ekki alltaf að vekja mig með þessum öskrum."
Handþvottur
Þegar maður lendir í djúpum, heimspekilegum pælingum veltir maður því fyrir sér hvað skurðlæknar hafa eiginlega verið að bardúsa, sem réttlætir allan þennan handþvott!Uppörvun
Ef þú ert niðurdreginn og heldur að þú þurfir víagra skaltu hitta fagmann. Ef það dugar ekki geturðu farið til læknis.Hundrað pund
Lyflæknir og skurðlæknir hittust á götu í London.Lyflæknirinn: "What did you operate Mr. Jones for?"
Skurðlæknirinn: "A hundred pound."
Lyflæknirinn: "No, I mean what had he got?"
Skurðlæknirinn: "A hundred pound."
Enginn veit ...
Þreyttur unglæknir heyrðist tauta fyrir munni sér við enn ein bústaðarskiptin: "Enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur."Fljótt, fljótt
Er hröð fæðing ekki óðagot?Sjúss fyrir háttinn
Læknar eru stundum spurðir út í atriði sem ekki er auðvelt að svara. Stundum þyrfti læknirinn að spyrja einhvers á móti. Sjúklingurinn: "Er ekki í lagi þótt ég fái mér vískísjúss fyrir háttinn?"
Læknirinn: "Ég fæ nú ekki séð að það geti skaðað þig neitt að ráði."
Það sem læknirinn vissi ekki var að sjúklingurinn háttaði sig átta sinnum á dag.
Skorið við nögl
Margrét var nývöknuð eftir aðgerðina og garnir hennar gauluðu. Sjúkraliðinn kom með kvöldmatinn til hennar á bakka. Margrét leit yfir bakkann og gat ekki orða bundist. "Kjötbiti sem er þynnri en blaðsíða í bók, kexkaka sem er jafnstór og baun og matskeið af rjómaís. Kallar þú þetta kvöldmat?""Mér þykir það leitt," sagði sjúkraliðinn, "en þetta er víst allt og sumt sem ég má færa þér að svo stöddu. Get ég annars gert eitthvað annað fyrir þig?"
"Já þakk," sagði Margrét, "mér þætti vænt um að þú sæktir frímerki handa mér svo ég geti lesið með matnum."
Það sem sjúklingurinn má alls ekki heyra á aðgerðarstofunni
"Flýtum okkur svo við missum ekki af Bráðavaktinni.""Þetta hláturgas er meiriháttar. Má ég fá aðeins í viðbót?"
"Hafðu ekki áhyggjur. Ég held að hnífurinn bíti alveg nógu vel."
"Ég er ekki viss um hvað þetta er, en viltu fyrir alla muni flýta þér að setja það á ís."
"Vissi læknirinn að maðurinn mundi líta svona út eftir aðgerðina?"
"Eldur, eldur, allir út!"
"Hver djö... hér vantar blaðsíðu 47 í kennslubókina."
"Það er best að varðveita þetta stykki. Við gætum þurft á því að halda við krufninguna."