Umræða fréttir

Móttaka nýkandídata

Laugardaginn 24. júní útskrifaÐist 31 kandídat úr læknadeild Háskóla Íslands. Daginn áður, föstudaginn 23. júní, bauð stjórn Læknafélags Íslands kandídötum og mökum þeirra til móttöku í húsnæði félagsins að Hlíðasmára 8. Til móttökunnar var einnig boðið stjórn Læknafélags Reykjavíkur, fulltrúum læknadeildar, Hollvinasamtaka Háskóla Íslands, landlæknisembættisins og heilbrigðisráðuneytisins.

Sú hefð hefur skapast að í þessari árlegu móttöku stjórnar LÍ undirriti kandídatar Heitorð lækna og var svo einnig nú.

Jón Snædal varaformaður Læknafélags Íslands bauð gesti velkomna. Jón lýsti í örstuttu máli uppbyggingu læknasamtakanna sem væntanlega verða félagslegur vettvangur allflestra nýkandídata. Hann lagði sérstaka áherslu á að Læknafélag Íslands ætti að vera hvort tveggja í senn, fagleg og félagsleg eining allra lækna á Íslandi.

Jóhann Ágúst Sgurðsson forseti læknadeildar ávarpaði því næst kandídata. Hann kynnti þeim Heitorð lækna sem allir læknar útskrifaðir úr læknadeild HÍ hafa ritað undir frá árinu 1932, en útskrifarhópurinn nú er sá síðasti sem ber titilinn cand. med. et chir. Jóhann fjallaði um hverfulleika þekkingarinnar og nauðsyn þess að leita sífellt nýrrar og aukinnar þekkingar. Sem veganesti til framtíðar lagði forseti læknadeildar áherslu á læknar hefðu stöðugt að leiðarljósi virðingu fyrir sjúklingum sínum.

Hollvinafélag læknadeildar er eitt aðildarfélaga Hollvinasamtaka Háskóla Íslands. Hollvinafélagið hefur nokkur undanfarin ár veitt viðurkenningu þeim kandídat sem bestum árangri hefur náð á lokaprófi í læknadeild. Örn Bjarnason formaður Hollvinafélagsins afhenti Hilmu Hólm vegalega bókargjöf fyrir frábæran árangur. Í orðum sínum hvatti Örn nýkandídata til þess að velja sér sérgrein og starfsvettvang fyrst og fremst eftir eigin löngun, því læknir sem ekki væri ánægður í starfi gæti aldrei orðið góður læknir.

-bþ-

Heitorð lækna

Ég sem rita nafn mitt hér undir, lofa því og legg við drengskap minn



að beita kunnáttu minni með fullri alúð og samvizkusemi,

að láta mér ávallt annt um sjúklinga mína án manngreinarálits,

að gera mér far um að auka kunnáttu mína í læknafræðum,

að kynna mér og halda vandlega öll lög og fyrirmæli er lúta að störfum lækna.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica