Umræða fréttir

Broshornið: Að elska, reykja, drekka og dufla...

Geðrannsókn

Héraðslæknir úti á landi fékk fyrir mörgum árum símhringingu frá geðlækni á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var á þeim tímum, þegar héraðslæknarnir þekktu hvert einasta mannsbarn í héraðinu og kunnu heilsufarssögu hvers og eins utanað. Geðlæknirinn var að afla efnis í rannsókn á geðsjúkdómum og bað kollega sinn um að komast að því hve margir væru geðveikir í héraðinu. Héraðslæknirinn kvaðst mundu hringja suður, þegar hann væri búinn að komast að niðurstöðu.

Nokkrum dögum síðar lætur héraðslæknirinn í sér heyra og segir: "Ég er búinn að kanna málið. Það er bara enginn geðveikur í héraðinu, en margir ansans ári skrítnir."



Ofurheyrn

Einar eyrnalæknir hafði lengi reynt að telja Alexander á að fá sér heyrnartæki, en gamli maðurinn var ekki á þeim buxunum. Loks lét Alexander til leiðast, þegar hann sá tæki sem var svo lítið og nett að það sást varla, þegar það var komið á sinn stað. Mánuði seinna kom sá gamli til læknisins í eftirlit.

"Hvernig gengur með nýja heyrnartækið?" spurði Einar læknir.

"Alveg prýðilega. Ég hef heyrt eitt og annað síðastliðinn mánuð, sem ég hélt að ég mundi aldrei heyra."

"Meiriháttar, en hvað segir fjölskyldan við þessu?" spurði Einar.

"Blessaður vertu, fjölskyldan veit ekkert af þessu," sagði gamli maðurinn. "En ég skemmti mér alveg stórkostlega og er búinn að breyta erfðaskránni minni fjórum sinnum síðan ég fékk tækið."



Getnaðarvörn

Ung kona kom til læknis og hafði áhyggjur af því að hún væri ófrísk. Eftir skoðun og rannsóknir kom í ljós að svo var ekki. Læknirinn ráðlagði henni hinar og þessar getnaðarvarnir, en hún hafnaði þeim öllum.

"Er þá ekkert annað til ráða?" spurði konan.

"Jú, eitt enn" sagði læknirinn. "Leikfimi."

"Fyrir eða eftir samfarir?"

"Nei, í staðinn fyrir samfarir."



Gúmmítuðra

Maður á miðjum aldri kom til læknis og bað um liðsinni til að komast í ófrjósemiaðgerð. "Ég hef verið kvæntur í sjö ár og við hjónin höfum eignast barn á hverju ári. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að getnaðarvarnir eru gagnslausar."

Síðan horfði hann ásakandi á lækninn og sagði: "Þú stakkst upp á því að við hjónin notuðum smokkinn og sýndir mér meira að segja hvernig ætti að nota hann. Engu að síður kom barn undir. Það kom svo sem ekkert á óvart, því við gátum með engu móti skilið hvernig gúmmítuðra, sem maður setur yfir þumalinn átti að geta komið í veg fyrir að konan yrði ólétt."



Af iðrasýkingum

Eins og öllum er kunnugt hafa þau systkin salmonella og kampýlóbakter haldið þjóðinni í heljargreipum síðustu misserin og svipt margan matmanninn ánægjunni að grilla kjúkling eða borða afganga úr ísskápnum. Fjölmiðlar hafa verið iðnir við að upplýsa almenning um stöðu mála.

Fyrirsögn í Degi í byrjun febrúar hljóðar: "Campylobacter enn í fullu fjöri."

Moggi lýsir svo heldur skárra ástandi um miðjan apríl: "Campylobacter í lágmarki í ferskum kjúklingi".

Það var reyndar of gott til að vera satt, því deginum áður er frétt í DV með fyrirsögninni: "Landbúnaðarráðherra veiktist hastarlega: Fékk campylobakter í Kína - liggur enn á sjúkrahúsi".

Þegar loksins er farið að sjá til sólar í baráttunni gegn þessum vágesti er ráðist í að flytja hann inn frá Asíu! Af því tilefni orti kollega úti á landi:

Sannfærandi sína rullu

sjálfur leikur ráðherrann

kominn með kamfýlodrullu

kannski tekst að lækna hann.



Meiri kveðskapur um tóbak og fleira

Eins og allir muna úr síðasta Broshorni orti Pétur Pétursson heilsuheilræði á þessa lund:

Hver, sem tóbaksruddann reykir

reynir frelsissviptingu.

Hann æðar skemmir, krabba kveikir

og kæfir holsins lyftingu.



Þessu vildi kollega að norðan ekki mótmæla en datt samt í hug:

Pétur má ég tæpast trufla

tyft mig getur skáldsins lófi.

En elska, reykja, drekka og dufla

er dásamlegt í góðu hófi.



Áfram kollegar

Það er líf, það er von!

Pistilritari þakkar af alhug góð viðbrögð við hvatningunni að senda efni í Broshornið og biður um að honum verði engin grið gefin í þeim efnum.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica