Umræða fréttir

Broshorn. Sögur af læknastofunni

Ólæknandi kvef

Kona á miðjum aldri kom til læknis, þrælstífluð af kvefi og með óstöðvandi hósta. Læknirinn skrifaði upp á hóstamixtúru handa konunni, en það breytti engu. Konan leitaði aftur til læknisins og fékk nú hjá honum töflur, sem gerðu ekki neitt gagn heldur. Enn kom konan og í þetta skipti ráðlagði læknirinn henni að fara heim í heitt bað. Að því loknu ætti hún að opna dyr og glugga, standa svo í dragsúgnum og vera helst nakin.

"Ertu eitthvað verri," sagði konan, "þú veist að þá fæ ég lungnabólgu."

"Allt í lagi," sagði læknirinn "ég veit að ég get læknað þig af lungnabólgu."



Neftóbak

Maður um fimmtugt gekk inn til læknisins, settist á skoðunarbekkinn og tók upp sígarettupakka. Þegar læknirinn kom til að ræða við manninn tók hann sígarettu úr pakkanum, reif bréfið utan af henni og tók að troða tóbakinu upp í nösina á sér.

"Ég sé að þú þarft svo sannarlega á hjálp minni að halda," sagði læknirinn.

"Þú segir nokkuð," sagði maðurinn. " Áttu eld?"



Heilsuheilræði

Talandi um tóbak, þá er við hæfi að birta heilsuheilræði nýliðins febrúarmánaðar eftir Pétur Pétursson, mNSMH, yfirlækni og heilsuhvata, Heilsugæslustöðinni á Akureyri, með leyfi höfundar:



Hver, sem tóbaksruddann reykir,

reynir frelsissviptingu.

Hann æðar skemmir, krabba kveikir

og kæfir holdsins lyftingu.



Eyrnaverkur

Kona kom til læknis og kvartaði um verk í eyra. Þegar læknirinn fór að skoða konuna sá hann bandspotta ganga út úr eyranu. Læknirinn byrjaði að toga í spottann. Hann togaði og togaði og brátt var kominn heill bandhnykill úr eyranu. Loks þurfti læknirinn að toga aðeins fastar og þá kom stór blómvöndur út úr eyranu.

"Guð minn góður," hrópaði læknirinn upp yfir sig "hvaðan kom þessi eiginlega?"

"Hvernig ætti ég að vita það?" sagði konan. "Viltu ekki bara lesa hvað stendur á kortinu?"



Betur sjá augu

"Læknir, ég sé ennþá deplana fyrir augunum."

"Batnaði þér þá ekkert við aðgerðina á hornhimnunni?"

"Jú, jú, heilmikið. Ég sé deplana miklu betur núna."



Kröfur nútímans

Landsbyggðarlæknir á Norðurlandi var vakinn um miðja nótt. Í símanum var maður, sem krafðist þess að vita hvað það kostaði að fá lækninn í vitjun.

"Sextánhundruð krónur," sagði læknirinn og barðist við það að halda sér vakandi.

"Ja hérna," sagði maðurinn. "En hvað kostar þá fyrir mig að koma til þín á stofu?"

"Ellefuhundruð krónur."

"Allt í lagi," sagði maðurinn "ég kem þá til þín á stofuna eftir 15 mínútur."



Lauslegt endurmat

Eiríkur kom í læknisskoðun og læknirinn sá ástæðu til þess að láta taka af honum röntgenmyndir. Þegar Eiríkur kom í viðtal stuttu seinna tjáði læknirinn honum að hann þyrfti að fara í rándýra aðgerð og að henni lokinni í langt veikindafrí, sennilega um eitt ár.

"Ég hef nú ekkert efni á því," sagði Eiríkur heldur stúrinn. "Ég get að minnsta kosti ekki verið í burtu frá vinnu í heilt ár. Er alls ekkert annað til ráða?"

"Látum okkur sjá," sagði læknirinn. "Ég gæti svo sem látið kíkja aftur á myndirnar."



Ring-ring

Sjúklingur af eldri kynslóðinni hafði gengið til háls-, nef- og eyrnalæknis í mörg ár til að losna við hringjandi hávaða í eyrunum. Dag nokkurn kom hann til læknisins og sagði:

"Ég hef góðar og slæmar fréttir að færa þér."

"Lofðu mér að heyra góðu fréttirnar fyrst," sagði læknirinn.

"Ég heyri ekki hringingarnar lengur."

"En stórkostlegt," sagði læknirinn. "En slæmu fréttirnar?"

"Nú heyrist mér alltaf vera á tali."



Að lokum

Kollegar, sendið efni í Broshornið.

Möguleikarnir eru umtalsverðir á því að það verði birt.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica