Umræða fréttir

Broshornið: Hvar eru húmoristarnir ?

Þegar broshorninu var hleypt af stokkunum fyrir tveimur mánuðum leyfði pistilskrifari sér að vitna um það eftir áratuga starf sem læknir "að fáar ef nokkrar starfsgreinar geta státað af jafn mörgum og jafn miklum húmoristum og læknar." Svo mörg voru þau orð. Sannfæringin er enn sú sama en sennilega eru lítillæti og hæverska ríkari þættir í fari manna en reiknað var með.

Á þessum tíma hafa verið sagðir nokkrir brandarar án þess að þeim væri beinlínis ætlað pláss í Broshorninu og nokkrir hafa sent hreyfimyndir með tölvupósti. Einn kollega hefur þó sent inn gamansögu og birtist hún í þessu tölublaði. Hafi hann kæra þökk fyrir það.

Kollegar, látið ekki hógværðina hefta ykkur. Verið með og sendið efni í pistilinn.



Tvær í speglun

Mágkonur á miðjum aldri hittust í fermingarveislu og tóku tal saman. Eftir að þær höfðu lokið við allt af kökudiskunum barst talið að heilsunni. "Ég er búin að vera svo ansi slæm í meltingunni undanfarið, að læknirinn minn ætlar að láta spegla á mér ristilinn." "Hvað segirðu," sagði hin "veistu að ég er búin að vera alveg afleit líka og það á að gera hjá mér stutta ristilspeglun eftir helgina." "Átt þú kannski að fara í HEILAspeglun?"



Frjósemi

Karl á besta aldri kom til læknis og vildi fara í ófrjósemiaðgerð. "Við hjónin höfum verið gift í sjö ár og konan hefur eignast barn á hverju ári. Við höfum komist að þeirri niðurstöðu, að getnaðarvarnir séu gagnslausar fyrir okkur.

Nú síðast ráðlagðir þú konu minni að nota það sem þú kallaðir "örugga tímabilið". Við bjuggum þá hjá tengdaforeldrum mínum og þurftum að bíða í þrjár vikur þangað til gömlu hjónin skruppu í bíó. Það var fyrst þá sem við áttum "öruggt tímabil". Þessi aðferð reyndist okkur hins vegar ekki sem skyldi og Bjössi litli kom undir."



Úr læknabréfum

"Var í bíl sínum kyrrstæðum er á hana keyrði bíll, jeppi þannig að hún kastaðist á kyrrstæðan bíl fyrir framan sig, sem einnig var jeppi."



Æðahnútar, aðgerðarlýsing

"Eftir upplýsingar og samþykki í kviðlegu farið inn í nokkrum snittum beggja vegna..."



Einn heitur

Það var einu sinni alveg ótrúlega heitfengur læknir, sem hafði hitann svo lágt stilltan á stofunni hjá sér að útöndunarloftið í samstarfsfólkinu myndaði gufu og það varð að klæðast þykkum dúnúlpum í vinnunni. Þegar fólkið þurfti að hlýja sér fór það út úr húsinu. Það eyddi svo miklum tíma í að kvarta um kulda að starfsemin var í algjöru lágmarki.

Dag nokkurn kom sjúklingur á stofuna með 42°C hita. Farið var með hann beint niður í kjallara og hann skilinn þar eftir um stund til þess að hann gæti hitað upp húsið.



Morgunbæn læknisins

Þakka þér góði Guð fyrir að hafa hjálpað mér að hafa stjórn á skapi mínu það sem af er þessum dásamlega degi. Ég hef hvorki verið hranalegur við konuna mína né fundið að neinu við blessuð börnin. Ég hef ekki heldur öskrað á eina einustu hjúkku eða skammað einn einasta sjúkling.

Nú þarf ég hins vegar á hjálp þinni að halda það sem eftir er dagsins, því ég ætla framúr rúminu eftir eina mínútu og beint á fætur.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica