Umræða fréttir

Af sjónarhóli stjórnar: Að losna frá leiðindum

Vinur minn einn í læknastétt teiknar íslenska hænurassa í vindi á servéttur á bæjarkránni í Tipperary. Regnið bylur á bílrúðunum í ljósaskiptunum þegar stefnan er tekin til suðurs frá Limerick. Farþegarnir eru daufir, en þá tekur hann við þá viðtal til flutnings í útvarpi um leið og hann æfir fjórraddaðan pólýfónískan kór til að skemmta Mið-Evrópumönnum. Sá söngur gefur kristal að kveldi í Killarney. Mér er sagt að sami maður veki upp heilu fjölskyldurnar úr kirkjugörðum norður við Dumbshaf á sumrin, öðrum til skemmtunar. Hann er patalóg. Jafnvel patalógar geta auðgað líf manns.

Annar vinur minn í læknastétt skrifar skemmtilegan og ertandi stíl um gagnagrunninn. Og margt annað. Hann er alveg laus við að vera leiðinlegur. Hann er kominn á eftirlaun og engum háður. Hann er frjáls maður. Ekki tortímandi eins og Bjartur, miklu fremur andríkur, uppbyggilegur og skapandi. Kannski losnar hugsun minnar kynslóðar úr klakaböndum hagsmuna og sérhyggju, þegar hún kemst á aldur.

Það er margt líðandi, sem laglega er gert. Jafnvel þegar að manni er sneitt. "Rödd úr Búðardal" var ég eitt sinn kallaður af manni, sem stigið hafði úr háum stóli enn hærra og situr þar í hárri elli við virðingu allra. Jafnvel þó maður sé kallaður illa menntaður og ómerkilegur læknir má gera það svo laglega að ástæðulaust er að amast við því.

Þannig hafa menn tekist á í gagnagrunnsmálinu af svo mikilli íþrótt að engin ástæða er til hamfara. En við leiðindum ætti að gilda hin hæsta refsing.

Erlendur í Unuhúsi sagði, "að sér þætti betra að lesa skemtilegar bækur til stuðnings þeim skoðunum sem hann væri mótfallinn en leiðinlegar til framdráttar hugmyndum sem hann aðhyltist, ...". Svo sagði Laxness frá. Laxness átti flestum mönnum auðveldara með að tjá sig á prenti, þannig að stíllinn ætti sjálfstæða tilveru. Sumt fékk að lifa fyrir hrynjandina eina.

Og mun þá einhverjum þykja nokkuð langt gengið.

Það var eins og hann væri að skrifa músík. Laxness afrekaði það að lýsa klæðnaði sínum ítarlega, sitjandi hér í Pensione Bolognari, með því að nefna sjónglerið eitt. Það var vel gert. Hann var aldrei leiðinlegur. Hér skrifaði hann Vefarann fyrir heiminn.

Læknar eiga allt betra skilið en leiðindi. Þeir hafa falið stjórn sinni að taka upp stefnuna í gagnagrunnsmálinu með tilliti til breiðrar samstöðu lækna. Með því getur stjórnin ekki hangið á sínu eins og hundur á roði. Né heldur aðrir, sem í hlut eiga. Það er augljóst mál.

Talandi um músík, þá kemur í hugann sá, sem dró öldunginn, sem að ofan er getið, fyrir siðanefnd presta nýverið. Fáir hafa betur sýnt mér, hvernig yrkja má í sálarkreppuna, þannig að vel fari. Er það til eftirbreytni. "Guð, hvað ég fyrirlít þetta helvítis þras um hvali og bjór! Hve ég hata þetta andskotans land þar sem aldrei skín sól og aldrei er hlýtt og gott og yndislegt! Ég þrái sól og sumar. Bjartan himinbláma. Sælueyjuna. Draumalandið. Ég veit það er til. Þeir hafa sagt mér af því unaðslegar sögur Janácek og Lutoslavski, Beethoven og Schubert. Þangað skulum við fara og þar skulum við búa. Þú og ég. Og elskast eins og englar í himnaríki."



Taormina, haustið 2000.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica