Umræða fréttir

Broshornið. Með niðurgang úr óbyggðum

Ferðasaga

Ánægður hópur útivistarfólks er á leið í bæinn í rútu eftir velheppnaða fjögurra daga gönguferð um suðurhálendi Íslands. Reyndar voru ekki allir hressir í ferðinni því fararstjórinn varð veikur á þriðja degi með niðurgangi, innantökum og miklum slappleika. Veikindi mannsins höfðu ekki farið leynt og hann varð var við samúð í hópnum, þegar hann neyddist til að segja skilið við ferðafélagana af heilsufarsástæðum næstsíðasta daginn. Hann var síðan sóttur á jeppa í óbyggðirnar, en sameinaðist hópnum á ný til þess eins að verða samferða í rútunni til Reykjavíkur. Þá er hann síst betri til heilsunnar. Á Fjallabaksleið nyrðri, nánar í Kýlingum, biður fararstjórinn bílstjórann um að stoppa til að hann geti gengið örna sinna. Hann veifar klósettpappírsrúllunni til samferðafólksins og kallar aftur í rútuna: "Nú ætla ég að skreppa á klósettið". Þegar fararstjórinn gengur niður tröppurnar á rútunni heyrist í lækni sem situr framarlega: "Hvernig kemstu svo í bæinn?"



Í upphafi......

Alskeggjaður karlmaður á efri árum, íklæddur kufli og í sandölum kemur til læknisins.

"Enginn vill hlusta á mig lengur, læknir og allir eru að gefast upp á mér, af því ég tel mig vera Guð." "Það hljómar ekki vel. Hvernig byrjaði þetta eiginlega," spurði læknirinn? "Látum okkur nú sjá," sagði sá skeggjaði, "í upphafi skapaði ég himin og jörð."



Flottur gaur

Einn af glæsilegri læknum bæjarins bauð konu sinni út að borða. Myndarleg, ljóshærð kona gengur í veitingasalinn og sest við næsta borð. Hún veifar kumpánalega til læknisins, sem kinkar kolli á móti.

Eiginkonan tekur eftir þessum samskiptum og gefur manni sínum illt auga.

"Svona, svona, elskan mín, þetta er bara kona sem ég hef hitt í vinnunni," segir eiginmaðurinn. "Já, einmitt það. Þinni eða hennar?"



Hóstað lengi

Maður með flensu kom til læknis, sem hafði það orðspor að vera sérlega viðutan.

"Komdu úr að ofan og hóstaðu þegar ég banka á þér bakið," sagði læknirinn. Svona gekk það í hálfa klukkustund, þegar lækninum fannst nóg komið, hætti að banka manninn og bað hann um að klæða sig.

"Heyrðu annars," sagði læknirinn, "hvað ertu eiginlega búinn að vera með þennan hósta lengi?"

Breyttur lífsstíll

Miðaldra maður kom til læknis og vildi fá almenna læknisskoðun. Eftir að hafa hlustað á manninn og skoðað hann, segir læknirinn alvarlegur í bragði: "Þú verður að gjörbreyta líferni þínu. Þú átt að hætta að borða feitmeti, hætta að reykja og hætta að drekka áfengi. Ég segi þér í fúlustu alvöru, að þú hefur sex vikur til að breyta þessu." "Allt í lagi," sagði maðurinn. Síðan liðu fimm vikur og þá skipti hann um lækni.



Með opinn munninn

Þreytuleg kona kom til heimilislæknisins og bar sig illa.

"Ég kem út af manninum mínum," sagði konan. "Hvert er vandamálið," spurði læknirinn. "Hann heldur að hann sé ísskápur." "Hvað ertu að segja. Það hljómar eins og raunverulegt vandamál," sagði læknirinn. "Þetta hlýtur að vera erfitt fyrir þig." "Þú getur rétt ímyndað þér að það er hreint út sagt hræðilegt," sagði konan. "Hann sefur til dæmis alltaf með opinn munninn og ég get lítið sofið fyrir birtunni úr honum."



Veikt hjarta

Eldri borgari með hjartasjúkdóm á allháu stigi kom til læknis, sem var þekktur fyrir að vera ekki meðal þeirra ljúfustu í mannlegum samskiptum. Sjúklingurinn hafði hins vegar gengið til læknisins í nokkur ár og kunni því ekki við að leita annað.

Sjúklingurinn var fremur uppburðarlítill og það var ekki fyrr en að skoðun lokinni, sem hann segir lækninum frá því hvers vegna hann sé í rauninni mættur á stofuna. "Ég hef fundið fyrir því hvað eftir annað, að hjartað slær óreglulega," sagði hann. "Hafðu engar áhyggjur af því," sagði læknirinn. "Við stoppum það fljótlega."



Tréfóturinn

Gamall karl kom til læknis og bar sig aumlega.

"Hvað gengur eiginlega að þér?" spurði læknirinn. "Mig verkjaði svo rosalega undan tréfætinum í nótt að ég er alveg ósofinn," sagði karlinn. "Það var nú verra. Passar hann ekki almennilega á þig eða hvað?" "Jú, hann passar alveg ágætlega. Ég var hins vegar rétt að festa blund þegar konan barði mig í hausinn með fætinum."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica