01. tbl. 101. árg. 2015

Umræða og fréttir

Glæsilegir Læknadagar í skugga kjaradeilu

Framundan eru Læknadagar 2015, dagana 19.-23 janúar, og er dagskráin þéttskipuð að venju. Framkvæmdastjóri Fræðslustofnunar lækna er Gunnar Bjarni Ragnarsson krabbameinslæknir.


„Við fengum mjög margar tillögur og mun fleiri en við gátum tekið inn í dagskrána. Það er auð-
vitað mikið ánægjuefni og sýnir hversu mikilvægir Læknadagarnir eru í hugum lækna,“ segir
Gunnar Bjarni Ragnarsson framkvæmdastjóri Fræðslustofnunar lækna.

Við fyrstu sýn virðist fjölbreytni einkenna dagskrá Læknadaganna í ár en eins og Gunnar bendir á er hægt að flokka efnið í nokkur þemu. „Það má kannski segja að við römmum dagskrána inn með því að hefja Læknadagana á málþingi um meðgöngu og fæðingu og ljúkum þeim síðan með málþingi og vinnubúðum um líknarmeðferð í öðrum sjúkdómum en krabbameini, en þar erum við komin að lokum lífsins. Þarna á milli fjöllum við um lífið sjálft og hvernig við höldum því í sem bestu horfi. Reyndar má segja að öll málþingin fjalli um nýjungar þar sem verið er kynna það nýjasta og besta í hverri grein,“ segir Gunnar.

Eflaust verður höfuðverkur fyrir þátttakendur að velja og hafna því dagskráin er þétt skipuð og alla dagana fimm er margt í boði samtímis. Sjálfsagt hefur stjórn Fræðslustofnunar staðið frammi fyrir svipuðum vanda við val á dagskrárliðum enda að sögn Gunnars mikill áhugi meðal lækna að leggja til efni.

„Við fengum mjög margar tillögur og mun fleiri en við gátum tekið inn í dagskrána. Það er auðvitað mikið ánægjuefni og sýnir hversu mikilvægir Læknadagarnir eru í hugum lækna. Við leitumst við að hafa fjölbreytt efni á dagskrá, og við val á tillögum skoðum við ýmsa þætti, eins og hvert kennslu- og fræðslugildið er og að efnið hafi ekki verið mjög nýlega á dagskrá.“

Veitir alþjóðlega símenntunarpunkta

Læknadagar eru símenntunarþing og undanfarin ár hafa þátttakendur getað fengið alþjóðlega viðurkennda símenntunarpunkta (CME) frá UEMS (Union Européenne des Médecins Spécialistes) og er svo aftur á næstu Læknadögum. „Við þurfum að halda vel á spöðum til tryggja áframhald þessarar viðurkenningar sem er mjög mikilvæg fyrir okkur,“ segir Gunnar.

Opnunarhátíð Læknadaga hefst kl. 16 á mánudeginum og ávarp flytur Sverrir Jakobsson sagnfræðingur. „Sverrir ætlar að tala um lækna í leiðtogahlutverki í sögulegu samhengi. Læknar hafa verið þjóðarleiðtogar og spurning hvernig til hefur tekist. Sverrir gerir á þessu fræðilega úttekt en mun örugglega líka slá á létta strengi.“

Á miðvikudagskvöldinu verða Læknadagar opnaðir almenningi. „Við byrjuðum á þessu í fyrra og það tókst gríðarlega vel og var húsfyllir á málþingi um lífsstílssjúkdóma og því var ákveðið að endurtaka leikinn með málþingi um streitu. Áhugi almennings á upplýsingum um heilsufar og heilbrigði er mikill og við teljum það eitt af okkar hlutverkum að koma til móts við þennan áhuga. Málþingið, sem er leitt af Högna Óskarssyni geðlækni, nefnist „Streitan varanlega – heilsuvá“ og þar verður fjallað um streitu í daglegu lífi nútímafólks frá ýmsum sjónarhornum. Ég tel að þetta verði fastur liður í dagskránni og er góð leið til að veita almannafræðslu og styrkir um leið tengsl lækna við fólkið í landinu.“

Stefnt er að því að taka upp fleiri málþing enda er að sögn Gunnars Bjarna orðið algengt á ráðstefnum að efni sé aðgengilegt fyrir ráðstefnugesti eftir á, til dæmis ef þeir ná ekki að mæta á viðburði sem koma upp samtímis eða þeir vilja rifja upp. „Við erum að feta okkur áfram á þeirri braut, þó það komi að sjálfsögðu ekki í stað þess að mæta á staðinn. Við hvetjum líka til þess að samfélagsmiðlar verði nýttir á ráðstefnunni. Á twitter, facebook og fleiri miðlum fer oft fram lífleg umræða á ráðstefnum og við vonum að það sama verði upp á teningnum á Læknadögum. Fræðslustofnun rekur twittersíðu (@fraedslustofnun) og tístið fer fram undir formerkjum #laeknad. Davíð Þórisson læknir hefur verið brautryðjandi í þessu starfi, sá sami og stofnaði facebook síðuna „íslenskir læknar“ sem yfir 1200 læknar fylgjast með og fer hratt fjölgandi. Á Læknadögum verður málþing um lækna og samfélagsmiðla, hvernig læknastéttin getur og verður að nýta sér þá í sína þágu, sjúklinga og samfélags. Ekki óskylt þessu er málþing sem ber heitið „Af gjánum að skránum á skjánum“ þar sem hinn „upplýsti, stafræni“ sjúklingur er viðfangið og spurt hvort læknisfræðin sé undirbúin fyrir hann og tengt þessu er hádegisfundur um klæðskerasniðna læknisfræði (personalized medicine). Læknar eru að nýta sér þau tækifæri sem felast í tölvu- og upplýsingabyltingunni og verður spennandi að fylgjast með hvert það leiðir okkur.“

Nýir smitsjúkdómar og farsóttir 21. aldar

Gunnar segir ómögulegt að nefna eitt frekar en annað af dagskránni þar sem allt hafi sitt aðdráttarafl. „Þó vil ég nefna málþing um hvernig við getum bætt gæði þjónustunnar sem læknar veita, til dæmis um gæði skráningar í heilbrigðiskerfinu og annað málþing um bætta lyfjameðferð aldraðra, sem bæði snerta dagleg störf allra lækna. Skráning sjúkra- og lyfjaupplýsinga er eitt af undirstöðuatriðum nútímaheilbrigðiskerfis sem ásamt notkun lyfjameðferðar eru atriði sem hægt er að bæta og mjög mikilvægt að staðið sé vel að.“

Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar stendur fyrir málþingi um áhrif Skaftárelda á heilbrigði landsmanna og er það fróðlegt í ljósi yfirstandandi náttúruhamfara í Holuhrauni.

Málþing um nýja smitsjúkdóma er forvitnilegt í ljósi ebólufaraldursins í Vestur- Afríku en þar verður einnig fjallað um aðra nýja smitsjúkdóma, meðal annars um lyme-sjúkdóm á Íslandi sem margir óttast. Þó er kannski enn meiri ástæða fyrir okkur að óttast aðra farsótt sem oft er tengd lífsstíl en um hana verður fjallað á málþingi sem ber yfirskriftina „Langvinnir sjúkdómar, farsótt 21. aldarinnar“.

„Það má benda á að á þriðjudag og miðvikudag eru málþing og vinnubúðir um fjöláverka og fyrstu viðbrögð læknis á slysstað. Vinnubúðir um fyrstu viðbrögð hafa verið haldnar áður og þátttaka ávallt mjög góð enda mikilvægt öllum læknum að viðhalda þjálfun og þekkingu á þessu sviði,“ segir Gunnar.

Hádegisfundir eru alla daga og þátttakendur verða að skrá sig fyrirfram. „Þeir sem skrá sig fá hádegismat og því mikilvægt að skrá sig ef fólk ætlar að borða í hádeginu. Morgunverðarfundir, sumir hádegisfundir og nokkrir síðdegisfundir í boði lyfjafyrirtækja verða einnig haldnir en eru skýrt afmarkaðir í dagskránni. Jafnframt er áfram glæsilegt sýningar- og samkomusvæði og ég hvet þátttakendur til að fá sér þar kaffibolla og ræða málin. Stuðningur lyfjafyrirtækja er hluti af ástæðunni fyrir því að tekist hefur að halda þátttökugjöldum lágum  en jafnframt er mikilvægt að hann fylgi skýrum reglum. Þessum stuðningi eru settar skýrar skorður, annars vegar af UEMS og svo eftir reglum Frumtaka um samskipti lækna og lyfjaframleiðenda sem eru sniðnar eftir Evrópureglum. Þetta fyrirkomulag er í góðri sátt við okkar stuðningsaðila og er Vistor áfram aðalstyrktaraðili Læknadaga.“

Mikil þörf á samstöðu lækna

Gunnar hvetur lækna til að mæta á Læknadaga. Þó að aðsókn hafi verið vaxandi er ljóst að margir eiga erfitt með að koma vegna anna í vinnu. „Ég biðla því til lækna að reyna að haga sinni vinnu þannig að sem flestir komist, til dæmis með því að hlaupa í skarðið fyrir hver annan.“ Kjarabarátta og barátta fyrir framtíð heilbrigðiskerfisins er læknum hugleikin þessa dagana og því mikilvægt að læknar komi saman og ræði málin. Á fimmtudeginum milli klukkan 16-18 heldur Læknafélag Íslands fund um kjaramál lækna. „Tímasetningin var valin svo að þeir sem eru ekki skráðir á Læknadaga eða komast ekki vegna vinnu geti mætt. Ég vonast eftir góðri þátttöku en stefnt er að því að honum verði líka streymt um netið.”  

Þó það sé mikilvægt að fræðast og ræða mál líðandi stundar er ekki síður nauðsynlegt að skemmta sér saman. Spekingaglíman er á sínum stað á föstudeginum. Þar mun Kristján Guðmundsson og hans gengi leggja ýmsar misþungar spurningar og þrautir fyrir keppendur. „Þetta er ómissandi hluti af Læknadögunum og setur tóninn fyrir árshátíðina á laugardagskvöldið,“ segir Gunnar. „Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að Arna Guðmundsdóttir og félagar í stjórn LR ætli að hafa mikið við í ár, búið er að ráða viðburðastjóra sem hefur bókað öll atriði eins og veislustjórn, skemmtiatriði og hljómsveit. Það má búast við frábærri árshátíð í ár og mikilvægt að allir sem geta taki frá 24. janúar og mæti. Árshátíðin og Læknadagar eru mikilvægir þættir í að viðhalda góðum anda og samstöðu meðal lækna, sem er einmitt mikil þörf á núna,“ segir Gunnar og hlakkar greinilega til.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica