Fara í efni
Dagur í lífi læknis

Lífsgæðahámarkari tekur hjartadeildina

06:55 Skrítinn tími fyrir vekjaraklukku en alltaf þegar ég færi hana til sjö þá fer allt handaskolum svo þetta verður að vera svona. Keyri í vinnuna og bið þess og vona að ungmennin séu farin að skrópa í skólanum svo umferðin sé ekki jafn þung og í ágúst, má ekki segja svona. Þó að ég hafi keyrt í vinnuna passaði ég samt að reima á mig gönguskóna því ég er jú að fara á Hjartadeildina sem er á Hringbraut og veit að mín bíður löng ganga af bílastæðinu. Er þetta partur af einhverju lýðheilsuátaki? Eftir að hafa þrammað hundruð metra af bílastæðinu í mótvindi og skárigningu þá stimpla ég mig inn úr suddanum. Morgunfundur á hjarta er hátímanlega 08:05 svo nú verður að hafa hraðann á. Skutla mér í gallann og hleyp upp stigann á fjórðu hæð til að bæta enn í skrefafjölda og hjarta- og æðakerfið æmtir af hamingju.  

08:06 Björtu salir. Að vanda bíða hjartalæknarnir átekta við borðið og næturvaktin nýr sér þreytulega um augun, fékk STEMI-píp klukkan fjögur og rétt náði kríu fyrir morgunrapport. Stuttlega farið yfir innlagnir gærdagsins. Tveir með versnun á hjartabilun, tveir STEMI og einn NSTEMI. Rúllum í breiðfylkingu inn á deild að fundi loknum. Kjarni læknislistarinnar er að lækna, líkna og síðast en ekki síst leitast við að auka lífsgæði og ég almennt reyni að auka lífsgæðin í vinnudeginum hvar sem hægt er til að vinna á móti þessu oft streituvaldandi vinnuumhverfi sem við læknar hrærumst í. Heitur hafragrautur með rúsínum og kanil bætir daginn strax um hátt í 10% (p=0,003).   

09:15 Í dag er ég á kransæða(rauða)teyminu og við fáumst mest við ACS, NSTEMI og STEMI. Viðfangsefnin þessa vikuna eru meðal annars ungur maður um fertugt með STEMI og sterklega grunaður um familial hypercholesterólemíu, nokkrir sjötugir NSTEMI-ar, 87 ára maður með brjóstverk og 20 ára gamla CABG venugræðlinga og 99 ára eðaldama með hin ýmsu vandamál sem hljótast af áratuga brúki hjarta- og æðakerfis. Mér finnst gott að fara af og til á hjartadeildina til að setja forgangsröðina í einkalífinu í samhengi. Endurnýjast þá í hugarfarinu „ég mæti í ræktina fyrir blóðprufurnar, þú mætir til að líta vel út í speglinum, við erum ekki eins”. Hefjum hasarflettingu, margar útskriftir í dag. Mikið að leika með uppáhalds lyfin. Fyrsta verk er alltaf blóðflöguhemillinn og svo bæta í blóðfitulækkandi meðferð og setja inn metóprólól. Stundum kryddum við aðeins með eplerenón og jardiance. Svo er Prasugrel mjög heitt núna. 

12:03  Hádegismatur með hinum sérnámslæknunum í almennum lyf, sem mér þykja auðvitað skemmtilegust og klárust. Gott að pústa og peppa með þessum gæðablóðum. Hér er önnur lífsgæðabæting vís, hádegismatur með SNL-lyf bætir öðrum 10% við daginn. ! 

13:10 Búin að útskrifa fyrsta einstaklinginn og leysa út með splunkunýju lyfjakorti heitu úr prentaranum og endurhæfingarbeiðni. Hnippt í mig varðandi brjóstverk á stofu 12, fáum nýtt EKG og TNT sem reynast í lagi.  

14:30 Farið að síga á seinni hlutann. Á eina útskrift eftir. Deildarvinna er stanslaus æfing í forgangsröðun. Klára dagálana og geymi sum verkefnin þangað til á morgun (það má!).  

16:15 Reyni að vera komin út fyrir þennan tíma en gengur ekki alltaf. Loka punkturinn um lífsgæðahámörkun frá mér er að það er algjör snilld að hafa æfingastað sem er á leiðinni heim.  Eyði klukkutíma í sprikl og endorfínframleiðslu á meðan umferðin er hvað þunglamalegust og get svo tekið Verstappen á leiðinni heim um 17:30.