Fara í efni
Viðtal

Gæði í forgrunni hjá Myndgreiningu Orkuhússins

Starfsemi Myndgreiningar Orkuhússins hefur vaxið hratt á síðustu árum og framleiðslugeta stöðvarinnar tvöfaldast á aðeins þremur árum. Nú er þriðja segulómtækið komið í gagnið og myndgreiningarlæknarnir, Áskell Löve og Arnar Þórisson segja, í viðtali við Læknablaðið, eftirspurn eftir gæðum hafa knúið vöxtinn áfram 

„Við erum að keppa í gæðum,“ segja þeir Áskell og Arnar þegar Læknablaðið heimsækir starfsstöðina. Hjá fyrirtækinu starfa um 30 manns, þ.m.t. sjö sérfræðingar í myndgreiningu sem jafnframt eru eigendur, auk geislafræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna. Þessi fjöldi myndgreiningarlækna gerir Myndgreiningu Orkuhússins kleift að stunda sérgreinamiðaðan úrlestur rannsókna. 

Sérgreinamiðaður úrlestur 

„Samhliða tækniframförum, aukinni þekkingu og vaxandi kröfum um gæði hefur myndgreining, líkt og aðrar sérgreinar læknisfræði, þróast yfir í undirsérgreinar. Hornsteinn nútíma myndgreiningar er sérgreinamiðaður úrlestur, sem felst í kerfisbundnu samstarfi myndgreiningarlækna með mismunandi sérþekkingu sem nýta styrkleika sína til að hámarka gæði og skilvirkni þjónustunnar, tilvísandi læknum og skjólstæðingum þeirra til hagsbóta. Forsenda þess að hægt sé að veita sérgreinamiðaðan úrlestur er stór læknahópur sem er sérstaklega valinn til að sinna verkefninu,“ segir Áskell.  

Þeir segja sérgreinamiðaðan úrlestur hafa tíðkast áratugum saman erlendis, en að smæðin hafi gert okkur erfitt fyrir að tryggja stöðugleika í slíkri þjónustu hérlendis. Arnar bætir við að með sjö sérfræðilæknum sé hægt að veita sérgreinamiðaðan úrlestur alla daga ársins. Sjálfur er hann sérfræðingur í myndgreiningu kviðarhols en Áskell er sérfræðingur í myndgreiningu taugakerfis og eini sjálfstætt starfandi myndgreiningarlæknirinn hérlendis með þá undirsérgrein. 

„Gæði eru það sem skiptir langmestu máli við veitingu heilbrigðisþjónustu, og tryggja þarf þau áður en farið er að huga að öðrum þáttum,“ segir Áskell. Arnar segir jafnframt mikilvægt að læknar geti vísað skjólstæðingum sínum þangað sem þeir telja að bestu þjónustuna sé að finna, því skjólstæðingarnir hafi sjaldnast forsendur til að meta það sjálfir.  

Vöxtur starfsemi Myndgreiningar Orkuhússins hefur verið mikill. Framleiðslugeta fyrirtækisins hefur tvöfaldast á þremur árum og nýverið bættist við þriðja segulómtækið. Þeir segja það gera þeim kleift að stytta biðtíma eftir segulómun verulega og bjóða upp á fleiri tíma með skömmum fyrirvara fyrir þá skjólstæðinga sem á því þurfa að halda. Til viðbótar eru í boði bráðatímar á hverjum degi til að geta brugðist hratt við þegar læknar óska eftir bráðri rannsókn. 

/cdn/media/07082026/u05-fig-2.jpg?v=1793633790
Glænýtt segulómtæki Myndgreiningar Orkuhússins. Nú eru þau þrjú. Mynd/OBÞ 


Rannsóknir án tímabókunar 

Hjá Myndgreiningu Orkuhússins er hægt að koma án tímabókunar í röntgenrannsóknir, ómskoðanir og tölvusneiðmyndir, svo fremi sem fyrir liggi beiðni frá lækni. Stöðin þjónustar ekki aðeins sjálfstætt starfandi sérfræðilækna og heilsugæslulækna, heldur einnig í vaxandi mæli heilbrigðisstofnanir og sjúkrahús. 

Kennsla og vísindastarf eru sömuleiðis hluti af starfseminni. Myndgreiningarlæknar Orkuhússins sinna bæði kennslu læknanema og ýmissa sérnámslækna auk þess sem virk þátttaka er í vísindaverkefnum. Arnar hefur nýlega tekið við stöðu dósents í myndgreiningu við Háskóla Íslands, og segir þátttöku sjálfstætt starfandi lækna í kennslu mikilvæga. Stór hluti lækna starfi utan sjúkrahúsa og stór hluti sjúkdóma sé sömuleiðis greindur og meðhöndlaður utan þeirra.  

Þrátt fyrir víða sé skortur á fagfólki í heilbrigðiskerfinu segja þeir hingað til hafa gengið vel að fá gott fólk til starfa. Þeir telja samkeppni af hinu góða og að hún leiði til betri þjónustu. „Það er líka svo miklu skemmtilegra að hafa einhvern að keppa við,“ segja þeir og brosa. „En við keppum fyrst og fremst í gæðum, enda teljum við að gæði eiga að vera í algjörum forgangi þegar um heilbrigðisþjónustu er að ræða”.