Kápa mánaðarins

Listamaður mánaðarins

Málverk Þórdísar Aðalsteinsdóttur einkennast af togstreitu milli andstæðna. Til að nefna dæmi má beina sjónum að mótun rýmis annars vegar og hins vegar algerri flatneskju. Tilfinning fyrir melankólíu, einmanaleika eða óhamingju og síðan gráglettinni gamansemi. Unglingadrama og heimsvandi, hreinir abstrakt litafletir og fígúratíf nákvæmnisvinna. Þessi einkenni gera það að verkum að verkin eru seyðandi, þau bjóða áhorfandanum að tengja andstæðurnar við eigin hugarheim og túlka þau þannig á mismunandi máta. Um leið eru þau áhugaverð í litasamsetningu sem einkennist af tilbrigðum af litleysu, það er að segja hreinir og klárir grunnlitir eru sjaldgæfir nema í einstaka smáatriðum, ráðandi eru einhvers konar pastelblöndur. Yfirleitt eru þeir í tvívíðum flötum en á nokkrum stöðum á sér stað litablöndun á myndfletinum, í andliti eða annars staðar á líkama fólks. Í verkunum eru alltaf verur, mannfólk, gæludýr eða samruni beggja. Þá eru ýmiss konar mynstur áberandi, klæðnaður og dúkar eru símynstraðir en hár og sígarettureykur mótar líka mynstur.

Þórdís er búsett í New York þar sem hún lauk námi í myndlist árið 2003. Síðan þá hefur hún sýnt hjá Stux galleríinu og lauk nýverið annarri einkasýningu hennar þar. Hún sýndi nokkur málverk en einnig stóra veggmynd sem máluð var beint á veggi gallerísins. Næsta vetur gefst kostur á að sjá verk hennar á sýningu í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum.

Á forsíðu Læknablaðsins er verk frá árinu 2005 sem ber titilinn Man Drink Dog. Þar má sjá mörg einkenni sem lýst var hér að ofan. Það sem slær mann fyrst er myndefnið, maður að drekka mjólk úr brjósti hunds. Hundurinn trónir yfir myndinni og horfir niður á manninn. Í samræmdu mystri klæðnaðar beggja eru stjörnur og hálfmánar, tákn íslamstrúar. Uppsetningin minnir á trúarleg íkonamálverk og maður leitar aftur í heim trúarbragða og goðsagna að uppruna. Hann kann að leynast þar, en hugsanlega líka í tiltrú fólks á Indlandi að hundamjólk lækni ýmsa kvilla. Þá er ekki loku fyrir það skotið að verkið sé absúrd brandari eða einhvers konar táknmynd. Þetta eftirlætur Þórdís okkur áhorfendum að kveða úr um.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica