Fara í efni
Fylgirit 85

Vísindi á vordögum, þing Landspítala

Vísindaráð

Vísindi á vordögum

Á hverju vori eru haldnir vísindadagar á Landspítala, Vísindi á vordögum, þar sem vísindaniðurstöður eru kynntar fyrir starfsfólki spítalans, fræðimönnum og almenningi. Einnig eru veitt verðlaun til vísindamanna og styrkir veittir úr Vísindasjóði Landspítala og kynntir Heiðursvísindamaður ársins og Ungur vísindamaður ársins. Þá er opnuð Vimeo-rás á heimasíðu Landspítala með 54 örfyrirlestra um vísindaleg verkefni starfsmanna spítalans.

Vísindasjóður Landspítala er rannsóknarsjóður, sem árlega veitir rúmlega 80 milljónum króna í rannsóknarstyrki til starfsmanna spítalans. Vísindasjóður var formlega stofnaður á árinu 2000 við sameiningu vísindasjóða Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur og voru fyrstu styrkveitingar úr sjóðnum á árinu 2002. Stjórn Vísindasjóðs ákveður hverjir fá styrki úr sjóðnum, með hliðsjón af umsögnum frá Vísindaráði Landspítala. Á árinu 2014 voru á árinu veittir 122 styrkir, samtals 84 milljónir króna, við fjórar úthlutanir: Nýsköpunarstyrkir voru veittir í ársbyrjun, 2 styrkir, samtals 6 milljónir króna. Vorstyrkir Vísindasjóðs:
Á vísindadögum voru veittir 106 vísindastyrkir. Samtals 53 millj.kr. Hvatningarstyrkir til sterkra rannsóknahópa sem þegar höfðu öðlast alþjóðlega viðurkenningu. Þrír styrkir voru veittir 2. desember, samtals 15 milljónir kr. Styrkir til ungra vísindamanna: 18. desember voru veittir 10 styrkir til ungra starfsmanna sem stunda klínískar rannsóknir, samtals 10 milljónir króna.

Stjórn Vísindasjóðs Landspítala

Páll Matthíasson forstjóri og formaður
Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir og prófessor
Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar
Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga
Rúnar Bjarni Jóhannsson deildarstjóri reikningshalds

Vísindaráð er framkvæmdastjórn til ráðgjafar um vísindastefnu og vísindastarf á sjúkrahúsinu. Vísindaráð er vísinda- og þróunarsviði Landspítala til ráðgjafar um þau verkefni þess sem snúa að háskóla- og vísindastarfi og þróun heilbrigðisvísinda. Vísindaráð á aðild að úthlutun styrkja úr Vísindasjóði Landspítala samkvæmt reglum sjóðsins, og semur matsreglur í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir. Þá er Vísindaráð til ráðgjafar við veitingu viðurkenninga fyrir vísindastörf á spítalanum. Vísindaráð er skipað 10 manns til fjögurra ára í senn. Verkefnastjóri Vísindaráðs er Sigríður Sigurðardóttir, vísinda- og þróunarsviði.

Vísindaráð:

Gísli H. Sigurðsson
læknir (formaður), tilnefndur af læknaráði Landspítala

Guðrún Kristjánsdóttir
hjúkrunarfræðingur (varaformaður), tilnefnd af hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands

Arnar Geirsson
læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands

Helga Gottfreðsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala

Ingibjörg Hjaltadóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala

Jón Friðrik Sigurðsson
sálfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala

Jóna Freysdóttir
náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala

Sigurður Yngvi Kristjánsson
læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands

Þorvarður Jón Löve
læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala

Þórarinn Guðjónsson
náttúrufræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala

Varamenn:

Anna Margrét Halldórsdóttir
læknir, tilnefnd af læknadeild Háskóla Íslands

Auðna Ágústsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala

Bertrand Lauth
læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands

Herdís Sveinsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands

Inga Reynisdóttir
náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala

Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
læknir, tilnefnd af læknaráði Landspítala

Ingibjörg Gunnarsdóttir
næringarfræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala

Jón Jóhannes Jónsson
læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala

Paolo Gargiulo
verkfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala

Þóra Jenný Gunnarsdóttir
hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala