Fara í efni
Fylgirit 133

Lyflæknaþing 2026

Ágrip

V01 Þroskunarstig einstofna frumuhópa í góðkynja einstofna IgM mótefnahækkun: frumuflæðisjárgreining í skimuðu þýði þátttakenda í Blóðskimun til bjargar

Birgitta Jóhannsdóttir 1, Jón Þórir Óskarsson 1

Katrín Birna Pétursdóttir 1 , Sæmundur Rögnvaldsson 2 , Sigrún Þorsteinsdóttir 3 , Gunnhildur Viðarsdóttir 4 , Elfa Rún Guðmundsdóttir 4 , Ingunn Þorsteinsdóttir 1 , Þorvarður Jón Löve 4 , Sigurður Yngvi Kristinsson 4

1 Landspítali háslólasjúkrahús

2 Sahlgrenska University Hospital

3 Rigshospitalet, Kaupmannahöfn, Danmörk

4 Háskóli Íslands

Inngangur: Góðkynja einstofna IgM mótefnahækkun (IgM-MGUS) er einkennalaus forstigssjúkdómur Waldenströms sjúkdóms og skyldra eitilfrumusjúkdóma og orsakast af klónvexti IgM-seytandi frumna sem spanna þroskunarferilinn frá B-frumum til plasmafrumna. Markmið rannsóknarinnar var að skilgreina einstofna frumuhópa m.t.t. þroskunarstigs í skimuðu þýði IgM-MGUS.

Efniviður og aðferðir: Verkefnið er undirrannsókn innan Blóðskimunar til bjargar (iStopMM), lýðgrundaðrar skimunarrannsóknar á einstofna mótefnahækkun. Beinmergssýni þátttakenda með IgM M-prótein voru greind í frumuflæðisjá með EuroFlow-aðlöguðum 14-lita mótefnapanel. Einstofna frumuhópar voru skilgreindir út frá IgM-tjáningu og léttkeðjutakmörkun innan CD38+CD138+ plasmafrumna og þroskaðra B-frumna. Stærð þeirra var borin saman við styrk IgM M-próteins og kappa/lambda hlutfall plasmafrumna við hlutfall frjálsra léttkeðja (FLC) í sermi. MYD88^L265P og CXCR4 stökkbreytingar voru greindar með raðgreiningu (next-generation sequencing).

Niðurstöður: Sýni úr 27 þátttakendum hafa verið greind; miðgildi IgM M-próteins 1,8 g/L (spönn: 0,1-35,8). Einstofna frumuhópar greindust hjá 22 (81%): 7/12 (58%) með M-prótein <1 g/L og öllum 15 með hærri M-próteinstyrk. Þrjú klónmynstur sáust: plasmafrumu- og B-frumuklónn (n=13), eingöngu plasmafrumuklónn (n=9) og enginn klónn (n=5). Stærð plasmafrumuklónsins sýndi sterka fylgni við IgM M-prótein (rho=0,78; p<0,001; n=22). Hlutfall kappa/lambda plasmafrumna fylgdi FLC hlutfalli (rho=0,76; p<0,001; n=27). MYD88^L265P greindist hjá 7/27 (26%) og CXCR4 hjá 3/27 (11%). MYD88^L265P tengdist aukinni klónbyrði og einstofna B-frumur greindust í öllum stökkbreyttum sýnum.

Ályktanir: Niðurstöðurnar sýna að einstofna frumuhópar einkennast af plasmafrumuhluta og að stærð hans endurspeglar styrk IgM M-próteins, en MYD88-stökkbreyting greinist í sýnum með hærri klónbyrði með B-frumuhluta. Skilgreining á þroskunarstigi og samsetningu einstofna frumuhópa í IgM-MGUS gæti aukið greiningarnákvæmni og varpað ljósi á undirliggjandi líffræði sjúkdómsins.

V02 Hraðari hækkun M próteins hjá körlum með MGUS: Niðurstöður úr lýðgrunduðu skimunarrannsókninni Blóðskimun til bjargar

Anna Karen Richardson 1

Ingigerður Sverrisdóttir 2 , Sæmundur Rögnvaldsson 1, 2 , Sara Ekberg 3 , Baojing Li 3 , Ingunn Þorsteinsdóttir 4 , Ísleifur Ólafsson 4 , Ásdís Rósa Þórðardóttir 1 , Andri Ólafsson 1 , Þórir Einarsson Long 1, 5 , Malin Hultcrantz 6 , Ola Landgren 7 , Þorvarður Jón Löve 1, 4 , Sigurður Yngvi Kristinsson 1, 4 , Sigrún Þorsteinsdóttir 8

1 Háskóli Íslands

2 Sahlgrenska University Hospital

3 Red Door Analytics

4 Landspítali Háskólasjúkrahús

5 Skane Háskólasjúkrahús

6 Memorial Sloan Kettering Cancer Center

7 Sylvester Comprehensive Cancer Center

8 Rigshospitalet

Inngangur

Mergæxli og forstig þess, góðkynja einstofna mótefnahækkun (e. monoclonal gammopathy of undetermined significance, MGUS) eru algengara hjá karlmönnum. Í fyrri hluta rannsóknarinnar sýndum við að að karlmenn hafa auknar líkur á að greinast með MGUS við skimun og hafa hærra M prótein. Kynjamunur á hækkun M próteins yfir tíma hefur ekki verið rannsakaður áður. Markmiðið var að rannsaka hann í lýðgrunduðu skimunarrannsókninni, Blóðskimun til bjargar.

Efniviður og aðferðir

Rúmlega 74.000 einstaklingar voru skimaðir og einstaklingum með MGUS slembiraðað þrjá arma. Greiningin náði til einstaklinga í örmunum tveimur með endurteknar M prótein mælingar. Breyting á lógaritmískum M prótein styrk var metin með línulegu blönduðu líkani sem gerði ráð fyrir línulegum áhrifum aldurs og leiðrétt fyrir M prótein gerð. Víxlhrif kyns og aldurs voru metin með sennileikahlutfallsprófi.

Niðurstöður

Rannsóknin tók til 1926 einstaklinga með MGUS með samtals 10.778 M prótein mælingar. Karlmenn voru 53% og miðgildi aldurs við skimun 70 ár (fjórðungaspönn 63-77). M prótein styrkur hækkaði hraðar í karlmönnum, að meðaltali um 6% á ári (exp(β)=1,06, 95% öryggisbil (ÖB): [1,05-1,07]), samanborið við 4% hjá konum (exp(β)=1,04, 95% ÖB: [1,03-1,05]) (Mynd 1A). Víxlhrif kyns og aldurs voru marktæk (p=0,004). Kynjamunurinn var mest áberandi í IgG- og tvístofna MGUS (Mynd 1B).

Ályktun

Í þessari lýðgrunduðu skimunarrannsókn hækkaði M prótein hraðar hjá körlum, einkum í IgG- og tvístofna MGUS. Kyn virðist því vera þýðingarmikill þáttur í líffræði MGUS. Frekari rannsóknir ættu að skýra undirliggjandi áhrifaþætti og kanna hvort þessi munur endurspeglist í aukinni áhættu á mergæxli og hvort bæta megi einstaklingsmiðað eftirlit.

V03 AML hjá fullorðnum á Íslandi 2022-2025

Íris Sturludóttir 1, 2

Þórunn Þórðardóttir 1 , Sigrún Reykdal 1 , Hallgerður Kristjánsdóttir 1, 2

1 Landspítali

2 Háskóli Íslands

Inngangur: Brátt kyrningahvítblæði (acute myeloid leukemia, AML) er alvarlegt blóðkrabbamein með almennt slæmar horfur þrátt fyrir framfarir á meðferð. Gæðaskráning AML hefur ekki verið gerð áður á Íslandi en er mikilvæg fyrir samanburð við önnur lönd. Markmið rannsóknarinnar voru að kanna faraldsfræði fullorðinna með AML á Íslandi og bera saman gögnin við Svíþjóð, koma á gæðaskráningu og skoða áreiðanleika Krabbameinsskrár.

Efniviður og aðferðir: Rannsóknarþýðið voru allir fullorðnir sem greindust með AML á Íslandi frá 2022-2025. Kennitölur fengust frá Krabbameinsskránni og Rannsóknarstofu Landspítalans. Sjúkraskrárupplýsingum var safnað og skráð á formblöð Heilsugáttar. Gögnin voru borin saman við gögn frá sænsku gæðaskrá krabbameina (INCA).

Niðurstöður: Alls greindust 55 einstaklingar á Íslandi með AML (miðgildi aldurs 69 ára, 49% karlar), af þeim höfðu 38 (69%) AML greiningu í Krabbameinsskránni. Flestir (62%) greindust með hááhættu sjúkdóm og algengasta undirflokkunin var AML með MDS breytingum (27%). Í aldurshópnum <70 ára var oftast gefin öflug lyfjameðferð (86%) sem var sambærilegt við Svíþjóð (p=0,804). Hjá ≥70 ára var hypomethylerandi lyfjameðferð gefin marktækt oftar í Svíþjóð (10% vs. 41%, p=0,005) en líknandi meðferð á Íslandi (60% vs. 35%, p=0,031). Yfir helmingur (55%) sjúklinga náði fyrsta sjúkdómshléi en af þeim fengu 9 (30%) endurkomu á sjúkdóm. Meirihluti alls þýðisins (65%) lést á tímabilinu. Ekki var marktækur munur á eins árs heildarlifun milli landa eftir aldurshópum.

Ályktun: Hjá þriðjungi vantaði tilkynningu um AML greiningu í Krabbameinsskrá. Eldri sjúklingar á Íslandi fengu marktækt oftar líknandi meðferð samanborið við hypomethylerandi meðferð í Svíþjóð, en ekki var munur á eins árs heildarlifun.

V04 CML á Íslandi 2002-2025. Faraldsfræði og meðferð. Samanburður við Svíþjóð.

Sólveig Rósa Hugadóttir 1

Elín Anna Helgadóttir 2 , Hallgerður Lind Kristjánsdóttir 1, 2 , Þórunn Halldóra Þórðardóttir 2

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

Inngangur: Langvinnt kyrningahvítblæði (e. chronic myeloid leukemia, CML) er mergvaxtarsjúkdómur sem einkennist af litningayfirfærslu sem ýtir undir fjölgun á óþroskuðum hvítum blóðkornum. Sænska gæðaskráningin (INCA) inniheldur ítarlegar upplýsingar um sjúkdóminn og meðferð. Það myndi gefa betri yfirsýn yfir verklag og gæði meðferðar sem og auðvelda rannsóknir í framtíðinni ef til væri gæðaskráning fyrir CML á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar voru faraldsfræðileg greining á CML á Íslandi, samanburður við Svíþjóð hvað varðar meðferð og horfur, að hefja gæðaskráningu CML á Íslandi og áreiðanleikapróf á Krabbameinsskrá.

Efniviður og aðferðir: Rannsóknarþýðið var 18 ára og eldri með CML greiningu 2002-2025. Listar með kennitölum fengust frá Krabbameinsskrá Íslands og frá rannsóknarstofu Landspítala. Upplýsingar um sjúklinga fengust úr sjúkraskrárkerfum Landspítala og voru skráðar á formblöð að fyrirmynd INCA. Upplýsingar um dánarorsök fengust úr Dánar-meinaskrá. Gögn INCA eru aðgengileg á veraldarvefnum.

Niðurstöður: Heildarfjöldi með Fíladelfíu jákvætt CML voru 82. Nýgengið var 1,38 á hver 100.000 persónuár. Karlmenn voru meirihluti sjúklinga á Íslandi (66%) og sömuleiðis í Svíþjóð (56%). Allir á Íslandi greindust í krónískum fasa en í Svíþjóð 93,1%. Imatinib var sá týrósínkínasahemill (TKI) sem var alltaf valinn sem upphafsmeðferð á Íslandi en í 81% tilfella í Svíþjóð. Fyrir tímabilið 2010-2024 var eins árs heildarlifun 93% (CI 86,6-99,9) á Íslandi og 96% í Svíþjóð. Fimm ára heildarlifun á Íslandi var 83,2% (CI 73,8-93,9) og 83,2% í Svíþjóð.

Ályktun: Niðurstöður eru sambærilegar milli Íslands og Svíþjóðar. Gagnlegt er að gera svona samanburð og það verður auðveldara með innleiðingu gæðaskráningar CML á Íslandi.

V05 Brjóstakrabbamein á Íslandi 2004-2023: erfðir og horfur hjá ungum konum

Stefanía Katrín Finnsdóttir 1

Ólöf Kristjana Bjarnadóttir 1 , Vigdís Fjóla Stefánsdóttir 1 , Sigurdís Haraldsdóttir 1

1 Landspítali

Inngangur: Brjóstakrabbamein í ungum konum (≤40 ára) eru oft illvíg og hafa verri horfur samanborið við eldri konur. Mælt er með að konur sem greinast með brjóstakrabbamein fyrir fertugt fari í klíníska erfðarannsókn. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að 13-24% ungra brjóstakrabbameinssjúklinga bera meinvaldandi breytingu í geni tengdu brjóstakrabbameini. Markmið rannsóknarinnar var að meta hlutfall ungra brjóstakrabbameinssjúklinga á Íslandi með meinvaldandi breytingu í brjóstakrabbameinsáhættugeni.

Efniviður og aðferðir: Rannsóknin nær til allra sem greindust með brjóstakrabbamein ≤40 ára á tímabilinu 2004-2023. Gögn voru fengin frá Krabbameinsskrá, Íslenskri erfðagreiningu og úr sjúkraskrám. Gerð og niðurstaða klínískar erfðarannsóknar á Landspítala var skráð og niðurstöður arfgerðargreiningar eða heilraðgreiningar frá Íslenskri erfðagreiningu voru skoðaðar.

Niðurstöður: Á árunum 2004-2023 greindust 295 konur ≤40 ára með 299 brjóstakrabbamein. Af 295 höfðu 225 (76,3%) farið í klíníska erfðarannsókn á Landspítala. Að viðbættum upplýsingum frá Íslenskri erfðagreiningu voru tiltækar erfðaupplýsingar fyrir 266 (90,2%) kvennanna. Tíu (3,4%) fóru eingöngu í BRCA1/2 rannsókn en 256 (86,8%) í fjölgenapanel og/eða raðgreiningu/arfgerðargreiningu. Af 266 báru 66 (24,8%) meinvaldandi breytingu í geni tengdu brjóstakrabbameini, flestar eða 36 í BRCA2 (13,5%), 11 í BRCA1 (4,1%), 3 í ATM (1,3%), 5 í BRIP1 (1,9%), 5 í CHEK2 (1,9%), 3 í PALB2 (1,1%), 2 í TP53 (0,8%) og 1 í BARD1 (0,4%). Í aldurshópnum ≤30 ára báru 38,9% meinvaldandi breytingu.

Ályktun: Mikill meirihluti ungra brjóstakrabbameinssjúklinga á rannsóknartímabilinu fór í erfðarannsókn. Tæp 25% báru meinvaldandi breytingu samanborið við 13-24% í erlendum rannsóknum og um 7% báru breytingu í brjóstakrabbameinsáhættugeni öðru en BRCA1/2.

V06 Meðferðarheldni innkirtlameðferðar í brjóstakrabbameini greint 2013-2018

Aníta Sól Valdimarsdóttir 1, Gerður Eva Halldórs Helgadóttir 1

Stefanía Katrín Finnsdóttir 2 , Sigrún Helga Lund 1 , Sigurdís Haraldsdóttir 2 , Ólöf Kristjana Bjarnadóttir 2

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

Inngangur: Innkirtlameðferð (tamoxifen eða arómatasahemlar) er veitt sem eftirmeðferð í kjölfar skurðaðgerðar í hormónajákvæðu brjóstakrabbameini í ≥5 ár. Meðferðin lækkar endurkomutíðni og bætir lifun. Meðferðarheldni innkirtlameðferðar hefur ekki verið skoðuð á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að meta meðferðarheldni innkirtlameðferðar hjá einstaklingum sem greindust með stig I-III hormónajákvætt brjóstakrabbamein á árunum 2013-2018. Forspárþættir meðferðarheldni voru skoðaðir ásamt áhrifum meðferðarheldni á horfur.

Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn, lýðgrunduð ferilrannsókn. Gögn voru fengin frá Krabbameinsskrá, Gæðaskrá Krabbameinsskrár, Lyfjagagnagrunni Landlæknis, Dánarmeinaskrá Landlæknis og úr sjúkraskrám. Meðferðarheldni var skilgreind sem lyfjaútleysing tamoxifens og/eða arómatasahemla í fimm ár eða fram að dánardegi/endurkomudegi brjóstakrabbameins. Sjúklingur taldist meðferðarheldinn ef hann leysti út lyf fyrir 80% eða meira af tímabilinu. Við tölfræðiúrvinnslu var notuð lýsandi tölfræði, lógistísk aðhvarfsgreining og Kaplan-Meier lifunargreining.

Niðurstöður: Inntökuskilyrði rannsóknarinnar uppfylltu 1008 sjúklingar. Rannsóknarþýðið samanstóð af 990 konum og 18 körlum, með miðgildi aldurs 62,0 ár. Á tímabilinu reyndust 73,0% sjúklinga meðferðarheldnir. Frumudrepandi lyfjameðferð fyrir og/eða eftir skurðaðgerð var marktækur jákvæður forspárþáttur meðferðarheldni (OR 2,04; 95% öryggisbil (ÖB):1,36-3,10; p<0,001) og að hefja meðferð með tamoxifeni var marktækur neikvæður forspárþáttur (OR 0,68; 95% ÖB:0,50-0,94; p=0,02). Marktæk tengsl mældust milli meðferðarheldni og heildarlifunar (p=0,025) og einnig sjúkdómsfrírrar lifunar (p=0,0075).

Ályktanir: Á tímabilinu reyndust 27,0% sjúklinga ekki meðferðarheldin. Rannsóknin sýndi að marktæk tengsl eru á milli lifunar og meðferðarheldni. Mikilvægt er að bæta meðferðarheldni, til dæmis með þverfaglegum bjargráðum innan heilbrigðiskerfisins og aukinni sjúklingafræðslu.

V07 Notkun Tranexamic sýru (Cyklokapron) í opnum aðgerðum á Kvennadeild Landspítala

Áslaug Halldórsdóttir 1

Hallgerður Kristjánsdóttir 1 , Kolbrún Pálsdóttir 1

1 Landspítali

Inngangur: Fyrirbyggjandi gjöf tranexamic sýru minnkar blæðingu og gjöf blóðhluta tengdum opnum skurðaðgerðum um allt að 25%.

Markmið: Skoða notkun tranexamic sýru í opnum skurðaðgerðum á kvenlækningateymi Landspítala og þróunina síðastliðin fimm ár.

Efniviður og aðferðir: Afturskyggn hóprannsókn á sjúklingum sem gengust undir opna skurðaðgerð á kvenlækningateymi Landspítalans árin 2019-2024. Kennitölur sjúklinga fengnar frá Hagdeild Landspítala og gögnum safnað úr sjúkraskrárkerfum Landspítala. Tíðni gjafar tranexamic sýru skoðuð eftir árum og heildrænt, ásamt tíðni og magni gjafar mismunandi blóðhluta.

Niðurstöður: Rannsóknarþýðið voru 494 einstaklingar í 502 aðgerðum. Algengustu aðgerðir voru legnám (n=367), eggjaleiðara- og eggjastokksnám, báðum megin (n=235). Algengustu greiningar voru sléttvöðvæxli í legi, ótilgreint (n=170), illkynja æxli í eggjastokki (n=82). Meðalaldur var 53,7 ± 13,8 ár (20-90). Tranexamic sýra var notuð í 22,5% aðgerðum, lyfjagjöf algengust í aðgerð, fyrir aðgerð í tveimur. Tíðni notkunar jókst úr 9,3% árið 2019 í 33,7% árið 2023 en lækkaði í 20,7% árið 2024. Miðgildi blæðingar var 200ml (IQR 100-400). Í 12,4% tilfellum (n=62) voru blóðhlutar gefnir í aðgerð eða vikuna eftir; rauðkornaþykkni algengast, miðgildi 2 einingar (IQR 2-4). Í aðgerðum vegna illkynja sjúkdóms (29,3%) var notkun lyfsins 16,3%, miðgildi blæðinga 250 ml (IQR 100-400); vegna góðkynja sjúkdóms (70,7%) var notkun 25,1%, miðgildi blæðinga 150 ml (IQR 100-300). Marktækur munur var á notkun í aðgerðum á illkynja og góðkynja sjúkdómi (χ² = 4.07, df = 1, p = 0.044).

Ályktun: Tranexamic sýru var ekki beitt fyrirbyggjandi gegn blæðingu í opnum skurðaðgerðum á kvenlækningateymi Landspítalans á tímabilinu. Notkun lyfsins var algengari í aðgerðum vegna góðkynja sjúkdóma.

V08 Áhrif hálfsjálfvirkrar insúlíndælu á blóðsykursstjórnun hjá fullorðnum á Landspítala 2020-2025

Elín Lóa Baldursdóttir 1

Margrét Jóna Einarsdóttir 2 , Steinunn Arnardóttir 2 , Jorgelina Ramos 2

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

Inngangur

Á undanförnum árum hafa orðið verulegar tækniframfarir í meðferð sykursýki og gæði insúlíndæla aukist. Mikilvægt er að halda langtímablóðsykri (HbA1c) sem næst settum markmiðum í meðferð sykursýki, en góð blóðsykurstjórnun dregur úr hættu á alvarlegum fylgikvillum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna árangur meðferðar hjá fullorðnum með MiniMed 780G™ hálfsjálfvirkri insúlíndælu á Landspítalanum 2020-2025 en slík rannsókn hefur hefur ekki verið gerð áður á fullorðnum hérlendis.

Efniviður og aðferðir

Rannsóknin tók til 479 einstaklinga með sykursýki 1 sem nota MiniMed 780G™ hálfsjálfvirka insúlíndælu og eru í virku eftirliti á göngudeild innkirtla og efnaskipta á Landspítalanum. Langtímablóðsykur (HbA1c) fyrir uppsetningu dælu (≤ 14 dögum eftir afhendingu) var skoðaður og borinn saman við fyrstu skilgreindu mælingu (> 8 vikur) eftir uppsetningu dælu og við nýjustu HbA1c mælingu. Lengd frá uppsetningu dælu fram að nýjustu HbA1C mælingu var að meðaltali 37,5 mánuðir. Stuðst var við lýsandi tölfræði og pöruð t-próf.

Niðurstöður

Marktæk lækkun varð á HbA1c eftir uppsetningu dælunnar. Parað t-próf á samanburði HbA1c fyrir dælu og fyrstu HbA1C mælingar frá uppsetningu dælu (>8 vikur) sýndi meðallækkun um 9,47 mmól/mól (95% CI: 8,35 - 10,58; p < 0,001) og lækkun um 9,24 mmól/mól (95% CI: 7,92 - 10,56; p < 0,001) fyrir uppsetningu samanborið við nýjustu mælingu.

Ályktanir

Notkun hálfsjálfvirkra insúlíndæla bætir blóðsykurstjórnun marktækt hjá fullorðnum einstaklingum í virku eftirliti á Landspítalanum. Skýr lækkun á langtímablóðsykri mælist skömmu eftir uppsetningu og viðhelst til lengri tíma, óháð aldri og kyni.

V09 Langvarandi notkun prótónpumpuhemla eftir kransæðavíkkun: Afturskyggn ferilrannsókn

Leon Arnar Heitmann 1

Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir 2 , Freyja Jónsdóttir 2 , Einar Stefán Björnsson 2 , Magnús Karl Magnússin 1 , Martin Ingi Sigurðsson 2

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

BAKGRUNNUR:

Klínískar leiðbeiningar mæla tímabundið með prótónpumpuhemlum (PPH) eftir kransæðavíkkun til að minnka hættu á efri meltingarvegsblæðingu vegna blóðflöguhemjandi meðferðar. Óljóst er hversu margir halda PPH notkun áfram eftir að tvöfaldri blóðflöguhemjandi meðferð lýkur.

AÐFERÐIR:

Afturskyggn ferilrannsókn á öllum sem gengust undir fyrstu kransæðavíkkun á Landspítala árin 2010-2020, höfðu >90 daga eftirfylgdartíma og ekki notað PPH árið fyrir víkkun. Gögn fengust úr gagnagrunni hjartaþræðingarstofu Landspítala og lyfjaútleysingar úr Lyfjagagnagrunni Landlæknis. Ný notkun skilgreindist sem PPH útleysing innan 90 daga frá kransæðavíkkun. Langvarandi notkun skilgreindist sem áframhaldandi útleysingar tveimur árum eftir inngrip, en önnur notkun taldist tímabundin. Cox aðhvarfsgreining var notuð til samanburðar á lifun, efri meltingarvegsblæðingu, spítalainnlögn og samsettum endapunkti hjartatengds dauða, slags og kransæðainngrips (MACE).

NIÐURSTÖÐUR:

Alls uppfylltu 3734 einstaklingar þátttökuskilyrði. Tíðni nýrrar PPH notkunar var 804 (21.5%), þar af mættu 417 (51.9%) skilmerkjum fyrir langvarandi notkun. Langvarandi PPH notkun tengdist kvenkyni, háþrýstingi og lyfjaskömmtun, en ekki áhættuþáttum efri meltingarvegsblæðingar. Ný PPH notkun hafði ekki marktæk tengsl við meltingarvegsblæðingu (HR:1.35, 95% CI:0.47–3.73) eða verri horfur. Í undirhópagreiningu á langvarandi vs. tímabundinni PPH notkun hafði langvarandi notkun fylgni við aukna dánartíðni (HR:2.87, 95% CI:1.22–6.75) og spítalainnlögn (HR:1.67, 95% CI:1.18–2.35), en ekki MACE eða meltingarvegsblæðingu.

ÁLYKTUN:

Helmingur þeirra sem hefja fyrirbyggjandi PPH meðferð eftir kransæðavíkkun notar lyfin langt umfram meðmæli klínískra leiðbeininga. Langvarandi PPH notkun tengdist verri lifun og spítalainnlögn en ekki áhættuþáttum meltingarvegsblæðingar sem gæti bent til óæskilegrar notkunar hjá hrumari einstaklingum. Mikilvægt er að endurmeta PPH meðferð við lok tveggja lyfja blóðflöguhemjandi meðferðar til að draga úr óæskilegri langtímanotkun.

V10 Lifrarígræðslur á Íslandi 2013-2024: Heilþýðisrannsókn

Bjarki Leó Snorrason 1, Einar Stefán Björnsson 2

Sigurður Sölvi Sigurðarson 2 , Lára Ósk Claessen 2 , Sigrún Helga Lund 1 , Sigurður Ólafsson 2

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

Bakgrunnur og markmið: Lifrarígræðslur hafa í sögulegu samhengi verið fátíðar á Íslandi og var frumkomin gallrásarbólga (PBC) algengasta ábendingin á árunum 1984–2012. Við könnuðum þróun nýgengis, ábendinga, orsaka og afdrifa lifrarígræðslna á Íslandi frá 2013 til 2024 og bárum tíðni ígræðslna saman við önnur Norðurlönd.

Aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn ferilrannsókn sem náði til allra einstaklinga með búsetu á Íslandi sem gengust undir lifrarígræðslu frá janúar 2013 til desember 2024, bæði fullorðinna og barna. Upplýsingar um ábendingar, orsakir og klínísk afdrif fengust úr rafrænum sjúkraskrám Landspítala. Hrátíðni var borin saman við Norðurlönd í Scandiatransplant-gagnagrunninum.

Niðurstöður: Alls voru gerðar sextíu ígræðslur, þar af fjórar endurígræðslur, hjá 56 fullorðnum sjúklingum (61% karlar; miðgildi aldurs 56 ár) og sjö hjá börnum. Árleg hrátíðni var að meðaltali 16,0 á hverja milljón íbúa, hærri en í Danmörku (9,2), Finnlandi (12,1) og Eistlandi (7,7), en lægri en í Noregi (17,9) og Svíþjóð (17,5). Hæsta árstíðni allra Norðurlanda mældist á Íslandi árin 2022 og 2023, 21,9 og 29,3 ígræðslur á hverja milljón íbúa. Algengustu orsakirnar voru efnaskiptatengdur fitulifrarsjúkdómur (MASLD, 23,2%) og áfengistengdur lifrarsjúkdómur (ALD, 19,6%). Heildarlifun var 96%, 94% og 87% eftir 1, 3 og 5 ár, en dánartíðni var þó 4,6-falt hærri en í pöruðu þýði almennings.

Ályktanir: Lifrarígræðslum fjölgaði á rannsóknartímabilinu, einkum vegna efnaskiptatengds fitulifrarsjúkdóms og áfengistengds lifrarsjúkdóms, ólíkt fyrri tíð þegar sjálfsofnæmissjúkdómar voru ríkjandi. Lifun eftir ígræðslu var sambærileg niðurstöðum annarra norrænna og evrópskra rannsókna, en dánartíðni var engu að síður hærri en í samanburðarþýði almennings.

V11 Algengi Helicobacter pylori á meðal sjúklinga sem undirgangast magaspeglun á Landspítalanum.

Elín Ragnhildur Ragnarsdóttir 1

Einar Stefán Björnsson 1, 2 , Fehima Líf Purisevic 1, 2 , Ken Namikawa 2 , Magnús Konráðsson 2

1 Læknadeild Háskóli Íslands

2 Landspítali Háskólasjúkrahús

Inngangur

Helicobacter pylori (H. pylori) er langvinn bakteríusýking í maga og helsta orsök langvarandi magabólgu, maga- og skeifugarnarsára og áhættuþáttur magakrabbameins. Algengi sýkingarinnar hefur farið lækkandi síðustu áratugi. Rannsókn frá 2001 sýndi 36% algengi meðal 25-50 ára einstaklinga og nýleg íslensk rannsókn sýndi 31% algengi hjá 44-65 ára einstaklingum. Markmið rannsóknarinnar var að meta algengi H. pylori meðal sjúklinga sem gengust undir magaspeglun á Landspítala og kanna tengsl sýkingar við lýðfræðilega og klíníska þætti.

Efniviður og aðferðir

Á tímabilinu 24. febrúar til 23. mars 2026 voru framkvæmdar 183 magaspeglanir á Landspítala og 82 þátttakendur uppfylltu inntökuskilmerkin. Útilokunarskilmerki voru m.a. sýklalyfjanotkun, aukin blæðingarhætta, magabrottnám/magahjáveita og ekki uppalin(n) á Íslandi. Upplýsingum um lyfjanotkun, sjúkrasögu, ábendingar og niðurstöður magaspeglunar var safnað. H. pylori sýking var metin með Pronto dry-hraðprófi, vefjagreiningu, ræktun og/eða sermiprófi. Þátttakendur voru skilgreindir jákvæðir ef minnst eitt próf reyndist jákvætt.

Niðurstöður

Meðalaldur þátttakenda var 63 ár og 47 (57%) karlar. Aldur var sambærilegur milli H. pylori jákvæðra og neikvæðra (p=0,77). Alls höfðu 44 (54%) notað prótónpumpuhemla síðustu tvær vikur fyrir speglun. Fjórtán þátttakendur greindust með H. pylori, sem samsvarar 17% algengi. Algengi var 21% meðal karla og 11% meðal kvenna (p=0,31). Bráð magabólga greindist hjá 9/13 (69%) H. pylori jákvæðra með tiltæka vefjagreiningu samanborið við 1/68 (1,5%) neikvæðra (p<0,001).

Ályktun

Algengi H. pylori var 17% sem er lægra en í eldri íslenskum rannsóknum þar sem mótefni voru mæld í sermi meðal almennings. Að hluta getur lág tíðni skýrst af samtímis PPI notkun og því að rannsóknin náði til sértæks þýðis.

V12 Óútskýrðir kviðverkir á Bráðamóttöku Landspítalans

Anína Marín Thorstensen 1

Einar Stefán Björnsson 1, 2 , Andrea Rún Einarsdóttir 1

1 Háskóli íslands

2 Landspítali

Inngangur

Kviðverkir eru algeng ástæða komu á bráðamóttöku (BMT). Hluti sjúklinga útskrifast án sértækrar greiningar með óútskýrða kviðverki. Íslensk rannsókn frá 2005 á óútskýrðum kviðverkjum sýndi að 8% leituðu aftur innan árs, 24% fengu sértæka greiningu, 1,8% með krabbamein og 15% undirgengust skurðaðgerð. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hversu margir sjúklingar með óútskýrða kviðverki leita aftur innan árs og hversu margir fá sértæka greiningu.

Aðferðir

Komur á BMT árið 2023 vegna óútskýrðra kviðverkja skv. ICD-10 kóðum (R10.0, R10.1, R10.3, R10.4) voru kannaðar og endurkoma innan árs. Blóðrannsóknir og myndgreiningar voru kannaðar. Sjúklingar voru útilokaðir vegna ótengdrar endurkomu, þungunar, sögu um bólgusjúkdóm í meltingarvegi eða krabbamein.

Niðurstöður

Af 2386 sjúklingum með óútskýrða kviðverki leituðu 174 (7,3%) aftur innan árs. Meðalaldur var 42 ár, 67% konur. Alls fengu 33% sértæka greiningu. Algengastar voru gallsteinar (n=8), blöðrur á eggjastokk (n=5), maga- og garnabólga (n=3), þvagfærasýking (n=3), brisbólga (n=3) og nýrnasteinar (n=3). Alls 8% undirgengust skurðaðgerð en enginn greindist með krabbamein innan árs. Hækkað CRP við síðustu komu tengdist oftar sértækri greiningu en eðlilegt gildi (45% vs 27%, p=0,05). Myndgreining tengdist auknum líkum á sértækri greiningu (p<0,001), sérstaklega sneiðmynd (p=0,02). Samanborið við ómun gaf sneiðmynd í 51% tilfella sértæka greiningu en ómun í 33% tilfella (p=0,14). Speglanir voru fátíðar og höfðu lítið greiningargildi í þessum sjúklingahópi.

Ályktanir

Endurkomutíðni og hlutfall sértækra greininga var svipað og fyrir 20 árum. Helmingi færri undirgengust skurðaðgerð og engin krabbamein greindust. Sjúklingar með óútskýrða kviðverki virðast hafa góðar horfur og lítill hluti greinist með alvarlega sjúkdóma innan árs.

V13 Notkun gervigreindar við að velja sjúklinga 18-60 ára sem hafa gagn af magaspeglunum

Kári Christian Bjarkarson 1

Einar Stefán Björnsson 1, 2

1 Háskóli íslands

2 Landspítali

Inngangur

Nýleg rannsókn sýndi að um þriðjungur sjúklinga 18-50 ára sem gengust undir

fyrstu magaspeglun á Landspítalanum voru ekki með viðeigandi ábendingu fyrir

rannsókninni, og voru marktækt ólíklegri til þess hafa útkomu sem hafði áhrif á meðferð

þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort þróa mætti gervigreindarlíkan sem gæti fundið sjúklinga sem eru líklegri til að hafa gagn af magaspeglun.

Efniviður og aðferðir

Rannsóknin var afturskyggn og náði til sjúklinga 18-60 ára sem gengust undir fyrstu magaspeglun á Landspítalanum árin 2015-2025. Upplýsingum var safnað um kyn, aldur, helstu einkenni, viðeigandi ábendingu fyrir speglun, sem byggðist á tilvist

ákveðinna rauðra flagga og niðurstöður speglana. Framkvæmd var einföld og fjölþátta

línuleg aðhvarfsgreining og niðurstöður birtar sem leiðrétt gagnlíkandahlutfall með 95%

öryggisbili. Þjálfuð voru elastic net og random forest gervigreindarlíkön.

Niðurstöður

Í fjölþáttagreiningu (n=644), sýndu jákvæð Helicobacter pylori (H. pylori)

próf sterkustu tengslin við klínískt marktækar útkomur (OR 60, 95% CI 21-174), þar á eftir

voru kyngingartregða (OR 3.9, 2.0-7.7), blóðug uppköst (OR 2.74, 1.6-4.7) og karlkyn (OR

2.3, 1.6-3.5). Kviðverkur sýndi neikvæða fylgni við klínískt marktæka magaspeglun (OR

0.56, 0.36-0.87), og einkenni sem höfðu varað í 1-3 mánuði (OR 0.39, 0.17-0.89). Aðrar

breytur voru ekki sjálfstætt tengdar eftir leiðréttingu. Elastic net módelið sýndi betri

aðgreiningargetu þ.e. flatarmál undir Receiver Operating Characteristic Curve (AUC = 0.78)

en random forest (AUC = 0.75).

Ályktanir

Klínískt marktækar útkomur úr magaspeglun sýndu sterk tengsl við H. pylori,

blóðug uppköst og kyngingartregðu, en ekki kviðverkir og langvarandi einkenni.

Gervigreindarlíkönin sýndu mikilvæga forspárgetu en þarfnast aukinnar þjálfunar.

V14 Helicobacter Pylori sýking meðal einstaklinga með magakrabbamein

Fehima Líf Purisevic 1, 2

Einar Stefán Björnsson 2 , Jón Gunnlaugur Jónasson 2 , Ken Namikawa 2 , Hjördís Harðardóttir 2 , Magnús Konráðsson 2

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

Inngangur: Helicobacter pylori (H. pylori) sýking er þekktasti áhættuþáttur magakrabbameins. Safngreiningar benda til þess að 60–87% tilfella magakrabbameins í þróuðum löndum megi rekja til H. pylori. Tíðni magakrabbameins á Íslandi og í Japan var meðal þeirrar hæstu í heiminum fyrir nokkrum áratugum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna algengi H. pylori sýkingar meðal sjúklinga með magakrabbamein á Íslandi.

Efniviður og aðferðir: Framsýn rannsókn sem hófst 1. janúar 2024. Tekin voru sýni úr antrum og corpus úr magaslímhúð sjúklinga með kirtilkrabbamein í maga. Sýnin voru rannsökuð með rapid ureasa test, send í vefjagreiningu og ræktun fyrir H. pylori. IgG mótefni gegn H. pylori í sermi voru einnig mæld. Sjúkraskrár voru yfirfarnar til að afla upplýsinga um fyrri sýkingu.

Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu greindust 70 sjúklingar með kirtilkrabbamein í maga, þar af voru 53% karlar. Meðalaldur við greiningu var 72 ár (33–94). Af þeim 42 sjúklingum sem voru rannsakaðir sýndu 17 (40%) merki um núverandi H. pylori sýkingu. Ekki var unnt að ákvarða sýkingarstöðu 14 sjúklinga. Auk þess höfðu 7 sjúklingar sögu um fyrri útrýmingarmeðferð. Því voru merki um núverandi eða fyrri H. pylori sýkingu hjá 24 sjúklingum (57%).

Ályktun: Niðurstöðurnar sýna að þrátt fyrir minnkandi algengi H. pylori á síðari árum er framlag sýkingarinnar til magakrabbameins verið umtalsvert. Þær undirstrika einnig mikilvægi þess að nota margar greiningaraðferðir til að auka nákvæmni. Fjöldi jákvæðra H. pylori tilfella gæti verið vanmetin vegna falskt neikvæðra niðurstaðna og ófullnægjandi rannsókna.

V15 Innlagnir sjúklinga á GLP-1 hliðstæðum fyrstu 6 mánuði meðferðarinnar

Steinþór Snær Hálfdanarson 1

Einar Stefán Björnsson 1, 2 , Sigrún Helga Lund 1 , Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir 1, 3

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

3 Reykjalundur

Inngangur: Á síðustu árum hafa GLP-1 hliðstæðulyf orðið mikilvægur valkostur í lyfjameðferð við offitu og sykursýki. Umræður um þessi lyf hafa verið fyrirferðamiklar í samfélaginu og oft með áherslu á mögulegar aukaverkanir. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni aukaverkana GLP-1 hliðstæðna sem leiddu til innlagnar á sjúkrahús á fyrstu 6 mánuðum meðferðarinnar.

Efniviður og aðferðir: Framkvæmd var afturskyggn ferilrannsókn á innlögnum á Landspítala á fyrstu 180 dögum lyfjameðferðar með GLP-1 hliðstæðu árin 2017-2024. Gögn fengust úr lyfjagagnagrunni Landlæknisembættisins og sjúkraskrárkerfi Landspítalans.

Niðurstöður: Í heildina leystu 23.830 einstaklingar út GLP-1 hliðstæðu á rannsóknartímabilinu. Útilokaðir voru þeir sem notuðu ekki lyfin síðustu 180 daga eða lágu inni af ástæðum ótengdum lyfjanotkuninni. Rannsóknarþýðið samanstóð af 100 innlögnum 97/23.830 (0,4%) einstaklinga, þar af voru engin börn. Sykursýki 2 var þekkt hjá 41% þýðisins fyrir innlögn. Gallvegasjúkdómar voru algengasta innlagnarástæðan (26%), síðan botnlangabólga (19%) og kviðverkir (12%), ketónblóðsýringar ollu fjórum innlögnum, í þremur þeirra var önnur ástæða talin líklegri lyfjanotkuninni. Bráðar brisbólgur voru innlagnarástæða þriggja tilfella (3%), sem voru gallsteinatengd brisbólga (n=2) og áfengistengd. Tilfelli hækkaðra lifrarprófa tengdust gallvegasjúkdómum eða öðrum orsökum. Algengi botnlangabólgu á meðal notenda lyfjanna reyndist 0,13/1.000 íbúa en það var lægra en algengi á meðal annarra sjúklinga sem lögðust inn á rannsóknartímibilinu sem var 0,47/1.000 íbúa.

Ályktanir: Innlagnir voru mjög fátíðar fyrstu 6 mánuði meðferðarinnar. Gallvegasjúkdómar og botnlangabólgur voru algengustu innlagnarástæðurnar. Botnlangabólgur voru fátíðari hjá þeim sem notuðu GLP-1 hliðstæður en hjá öðrum sjúklingum sem ekki voru á GLP-1 hliðstæðulyfjum. Aðrar aukaverkanir voru fáar og höfðu oftast aðra skýringu en lyfjameðferðina.

V16 Örmyndun í lifur hjá sjúklingum með tegund 1 sykursýki—framsýn rannsókn með bandvefsskanna

Einar Stefán Björnsson 1

Maxim Halfin 1

1 Landspítali

Inngangur

Í klínískum leiðbeiningum er mælt með notkun FIB-4 við upphaflegt áhættumat og stigun á bandvefsmyndun en notagildi þess hjá einstaklingum með sykursýki 1 (T1D) er óljóst. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl FIB-4 og mælikvarða á líkamsfitu við lifrarstífleika.

Aðferðir

Framsýn rannsókn var framkvæmd á fullorðnum einstaklingum með T1D á Landspítala með lifrarstífleikamælingu (e. Liver Stiffness Measurements, LSM). Jafnframt var gert mat á líkamssamsetningu með rafviðnámsmælingu (e. Bioelectrical Impedance Analysis, BIA). Langt gengin bandvefsmyndun (e. moderate fibrosis) var skilgreind sem LSM ≥ 8 kPa og skorpulifur sem LSM ≥ 12 kPa.

Niðurstöður

Alls höfðu 59 LSM mælingu. Meðalaldur var 44, 66% karlar og meðal BMI 27. Sjö (12%) voru með LSM ≥ 8 kPa og þrír (5%) með LSM ≥ 12 kPa. Sterk fylgni var milli FIB-4 og aldurs (p < 0.001) en ekki fylgni FIB-4 við LSM (p = 0.13). Með hefðbundnum viðmiðunarmörkum FIB-4 greindust 3/6 þátttakendum með LSM ≥ 8 kPa. Hlutfall mittis- og mjaðmamáls (e. Waist Hip Ratio, WHR) sýndi fylgni við LSM (p < 0.001). Þátttakendur með LSM ≥ 8 kPa höfðu hærra WHR (0.97 vs 0.90, p = 0.02), mittismál (103 vs 91 cm, p = 0.022) og BMI (30 vs 26 kg/m2, p = 0.038). Ekki voru marktæk tengsl LSM við fituhlutfall metið með rafviðnámsmælingu eða HbA1c.

Ályktanir

FIB-4 hefur sterka tengingu við aldur og hefðbundin viðmiðunarmörk þess greindu ekki helming þeirra einstaklinga með LSM ≥ 8 kPa. WHR sýndi sterkari tengsl við lifrarstífleika miðað við mælikvarða á líkamsfitu sem byggðu á rafviðnámsmælingu.

V17 Kynbundinn munur á áhrifum HLA-B*57:01 á lifrarskaða af völdum flucloxacillin

Kolka Magnúsdóttir 1

Einar Stefán Björnsson 2 , Ayako Suzuki 3 , Ann K. Daly 4 , Paola Nicoletti 5 , Maribel Isabel Lucen 6

1 Háskóli Íslands, Læknadeild

2 Landspítali, Meltingardeild

3 Duke University

4 Newcastle University

5 Icahn School of Medicine at Mount Sinai

6 Hospital Universitario Virgen de la Victoria

Bakgrunnur:

HLA-B*57:01 er vel þekktur áhættuþáttur fyrir lyfjatengdum lifrarskaða (e. drug-induced liver injury, DILI) af völdum sýklalyfsins flucloxacillin. Ekki hefur verið kannað hvort þessi áhætta sé ólík eftir kyni. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort erfðafræðileg áhætta flucloxacillin-DILI væri mismunandi eftir kyni.

Efniviður og aðferðir:

Alls 203 flucloxacillin DILI-tilfelli úr tveimur alþjóðlegum gagnagrunnum, iDILIC og DILIGEN (139 konur, 64 karlar) mynduðu rannsóknarhópinn. Tíðni HLA-B*57:01 arfbera var borin saman milli kynja, annars vegar við samanburðarhóp sem hafði tekið flucloxacillin án þess að fá lifrarskaða (n=64) og hins vegar við hóp breskra einstaklinga úr almennu þýði (allelefrequencies.net, AFND, n=1043, 8% arfberatíðni). Breslow-Day próf var notað til að meta mun á gagnlíkindahlutföllum (odds ratio, OR) milli kynja fyrir hvorn viðmiðunarhóp. Alvarleiki, mynstur lifrarskaða og tími til bata voru borin saman milli kynja.

Niðurstöður:

Miðað við AFND viðmiðunarþýðið reyndist gagnlíkindahlutfall HLA-B*57:01 fyrir flucloxacillin-DILI hærra hjá konum (OR 79, 95% ÖB 45–148) en körlum (OR 36, 95% ÖB 19–73). Breslow-Day próf gaf einnig til kynna mögulegan kynjamun (p=0,062). Samanburður við hóp flucloxacillin-útsettra einstaklinga var svipaður. Gagnlíkindahlutfall var hærra hjá konum (OR 123, 95% ÖB 27–556) en körlum (OR 40, 95% ÖB 9–189), (p=0,31). Mynstur lifrarskaða, lifrarensíma og tími fram að lifrarskaða voru sambærileg milli kvenna og karla, en konur voru marktækt lengur að ná bata en karlar, 75 vs 40 dagar (p<0,001), óháð HLA-B*57:01- arfgerð.

Ályktun:

Kvenkyn virðist auka áhrif HLA-B*57:01 á áhættu flucloxacillin-DILI. Þörf er á frekari rannsóknum á stærra þýði til að staðfesta mögulegan kynjamun á erfðafræðilegri áhættu og sjúkdómsmynd.

V18 Lifrarskaði af völdum geð- og fíknilyfja á Íslandi 2015-2024

Ína Guðrún Gísladóttir 1

Guðrún Dóra Bjarnadóttir 1 , Einar Stefán Björnsson 1

1 Landspítali

Inngangur

Ýmsar orsakir geta legið að baki hækkana á lifrarprófum, m.a. lifrarskaði af völdum lyfja (drug-induced liver injury, DILI). DILI er sjaldgæf aukaverkun, algengast við sýklalyfjanotkun en sjaldgæf við notkun geðlyfja. Ekki er vitað hversu sjaldgæft það er og hvaða geðlyf geta valdið DILI.

Markmið

Að kanna hversu stór hluti sjúklinga, með lyfjaávísun fyrir geðlyfjum og/eða lyfjum við fíkn greinast með lifrarskaða og hver orsökin var.

Aðferðir

Sjúkraskrár sjúklinga sem fengu geðlyf/fíknilyf og greindust með ALAT > 5x efri mörk og/eða ALP >2x efri mörk, voru skoðaðar og orsök hækkana metin. Ef DILI kom til greina voru orsakatengsl metin með sérstöku matskerfi (RUCAM) og hlutfall þeirra sem fengu gulu (>2x efri mörk á bilirubin) skráð.

Niðurstöður

Alls reyndust 5985 sjúklingar uppfylla inntökuskilyrði rannsóknarinnar og náðist að fara yfir sjúkraskrár 3076 einstaklinga, meðalaldur 58 ár, konur 55%. Algengustu orsakir lifrarskaða voru: krabbamein (n=670), gallsteinar/gallblöðrubólga (n=526), blóðþurrð/sýklasótt (n=273), veirulifrarbólga (n=175), DILI vegna annarra lyfja (n=167) og óljósar orsakir (n=356). Grunur vaknaði um DILI vegna geð- og fíknilyfja hjá 13, en 7 tilfelli voru líkleg eða möguleg skv RUCAM: Lamótrigín, Cítalópram, Klósapín og Gabapentín orsökuðu lifrarskaða í einu tilfelli hvert, en Disúlfíram þremur (0.6% notenda). Fjórir einstaklingar fengu gulu (57%), og einn einstaklingur fékk DRESS (Drug Reaction with Eosinophilia and Systemic Symptoms). Lifrarskaði gekk til baka hjá öllum sjúklingum.

Ályktanir

DILI af völdum geðlyfja og lyfjum við fíkn reyndist mjög fátíður en algengast við Disúlfíram notkun. Gula var einkenni hjá næstum 60% DILI sjúklinga, en DILI alltaf afturkræfur.

V19 Graftarkýli í lifur á Íslandi 2012-2024: Faraldsfræði, orsakir, meðferð og afdrif.

Edda Sólveig Sigtryggsdóttir 1

Sigurður Ólafsson 2 , Kristján Orri Helgason 3 , Magnús Gottfreðsson 1, 4, 5

1 Læknadeild, Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

2 Meltingarlækningaeining Landspítala

3 Sýkla- og veirufræðideild Landspítala

4 Vísindadeild Landspítala

5 Smitsjúkdómadeild Landspítala

Inngangur

Graftarkýli í lifur er sjaldgæf en alvarleg sýking sem getur verið flókin í greiningu. Lítið er um fyrri lýðgrundaðar rannsóknir á þessu viðfangsefni en þær hafa sýnt mikinn breytileika í nýgengi og sýklafræðilegum orsökum milli landa og ofurmeinvirkir Klebsiella stofnar eru vaxandi vandamál. Engar rannsóknir hafa verið framkvæmdar á þessum sjúkdómi hérlendis svo vitað sé.

Efniviður og aðferðir

Fengnir voru listar yfir alla einstaklinga sem fengið höfðu greiningu með ICD10-kóða K75 eða A06.4 á árabilinu 2012-2024 á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Sjúkraskrárgögn þeirra voru skoðuð og rangar greiningar og ferðamenn útilokuð. Klínískar upplýsingar um einkenni, rannsóknarniðurstöður, meðferð og afdrif voru skráðar.

Niðurstöður

431 sjúkraskrá var skoðuð en lokaúrtakið samanstóð af 103 tilfellum. Meðaltal nýgengis var 2,3 tilfelli fyrir hverja 100.000 íbúa á ári. Nýgengi hækkaði um 0,08 tilfelli frá fyrstu sex árum rannsóknartímabilsins til síðustu sex ára (p=0,15). 54,4% sjúklinga voru karlkyns og meðalaldur við greiningu var 66,2 ár. Algengustu einkenni voru slappleiki, kviðverkir og hiti. Streptococcus spp. (aðallega anginosus hópur), Escherichia coli, Enterococcus spp. og Klebsiella spp. voru algengustu sýklafræðilegu orsakavaldar. Sveppir (Candida) ræktuðust í 4,9% tilfella. Einn sjúklingur greindist með Entamoeba histolytica. Í fjórðungi tilfella ræktuðust fleiri en einn orsakavaldur. Yfir 80% sjúklinga fengu ceftríaxón og metrónídazól sýklalyfjameðferð. 74,6% sjúklinga undirgengust ástungu á graftarkýli og 63,1% fengu kera. Dánartíðni innan 30 daga frá greiningu var 5,8%.

Ályktun

Faraldsfræði og kynjaskipting sjúklinga er svipuð á alþjóðavísu. Nýgengi og sýklafræðilegar orsakir eru sambærilegar því sem finnst á Vesturlöndum. Ofurmeinvirkir stofnar eru enn fágætir hérlendis.

V20 Meðferð sem forvörn gegn lifrarbólgu C á Íslandi í 10 ár. Árangur og áskoranir.

Sigurður Ólafsson 1, 2

Silja Arnbjörnsdóttir Ólafsson 1 , Valgerður Rúnarsdóttir 3 , Ragnheidur Fridriksdottir 4 , Agnar Bjarnason 1, 5 , Þorvarður Jón Löve 1, 6 , Magnús Gottfreðsson 1, 5, 6

1 Læknadeild, Háskóli Íslands

2 Meltingarlækningar, Landspítali

3 SÁA-Sjúkrahúsið Vogur

4 SÁÁ-Sjúkrahúsið Vogur

5 Smitsjúkdómalækningar, Landspítala

6 Vísindadeild, Landspítala

Inngangur:

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur sett það markmið að útrýma veirulifrarbólgu C (HCV) sem meiriháttar heilbrigðisvá fyrir árið 2030. Árið 2016 hófst verkefnið Meðferð sem forvörn gegn lifrarbólgu C á Íslandi. Á fyrstu 3 árum þess fengu >95% allra með þekkt smit meðferð og þjónustumarkmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar náðust. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna faraldsfræði HCV 2016-2025.

Efniviður og aðferðir:

Tímabilið 2016-2020 (tímabil 1) var borið saman við tímabilið 2021-2023 (tímabil 2). Gerð frumgreining á gögnum ársins 2024.

Athugað var algengi HCV meðal sjúklinga á Vogi 2010-2025.

Niðurstöður:

Á tímabili 1 höfðu 151/945 sjúklingar (16%) smitast erlendis miðað við 43/171 (25%) á tímabili 2. Hærra hlutfall var án fastrar búsetu á tímabili 2 (37.6%) miðað við fyrra tímabil (16.5%). Hlutfall þeirra sem höfðu sprautað sig nýlega hækkaði á seinna tímabilinu ( 79% vs 48%).

Meðal sjúklinga sem smituðust erlendis var hlutfall bráðrar HCV, heimilisleysis og nýlegrar sprautunotkunar mun lægra en þeirra sem smituðust á Íslandi.

Árið 2024 (90 smit) voru 12 (37%) ný innlend smit, 31 (34%) endursmit og 19 (21%) erlend smit. Stór hluti sjúklinga (38%) fékk lyfjameðferð á vettvangi/utan spítalans.

Algengi HCV meðal þeirra sem höfðu sprautað sig nýlega og lögðust inn til fíknimeðferðar á Vog var allt að 57.7% fyrir meðferðarátakið, 10,7% árið 2018 og 4% árið 2025.

Ályktun

Mikil lækkun á algengi HCV hefur átt sér stað á Íslandi meðal fólks sem sprautar sig með vímuefnum.

Þrátt fyrir greitt aðgengi að lyfjameðferð og forvörnum greinast enn ný smit meðal þeirra sem eru í virkri neyslu og endursmit eru viðvarandi vandamál.

V21 Lifrarskaði af völdum anti-TNF alpha lyfja

Tryggvi Ásmundur Briem 1

Einar Stefán Björnsson 1, 2 , Gerður María Gröndal 1, 2

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

Inngangur

Lifrarskaði af völdum lyfja (drug induced liver injury, DILI) er sjaldgæf en klínískt mikilvæg aukaverkun. Lifrarskaða af völdum Infliximab (IFX) hefur verið vel lýst meðal anti-TNF alpha lyfja en takmarkaðar rannsóknir liggja fyrir um tíðni DILI af völdum adalimumab og etanercept.

Efniviður og aðferðir

Afturskyggn ferilrannsókn á meðal fullorðinna sem fengu anti-TNF meðferð og hlutu ensímhækkanir ALAT > 3x efri mörk og/eða ALP > 2x efri mörk á árunum 2012–2025. Klínískar breytur voru fengnar úr sjúkraskrám og orsakir lifrarprófshækkana skráðar. Við grun um DILI var RUCAM orsakagreining notuð sem tekur til tíma til fyrstu afbrigðilegu lifrarprófa, þróun lifrarprófa eftir stöðvun lyfs og útilokun annarra orsaka. Alls 35 infliximab staðfest DILI (2009-2020) var bætt við (Björnsson HK et al. J Hepatology 2021).

Niðurstöður

Alls fundust 784 sjúklingar á anti-TNF meðferð með fyrirfram skilgreindar lifrarprófshækkanir. Algengustu orsakir voru gallsteinar (n=110), lifrarprófshækkanir vegna annarra lyfja (n=99) og krabbamein (n=44). Alls 53 tilfelli uppfylltu skilmerki DILI, 48 vegna infliximab (91%), 4 vegna adalimumab (7%) og 1 vegna etanercept (2%). Ef tekið var tillit til fjölda notenda fékk 1/52 infliximab notenda DILI, 1/878 fyrir adalimumab og 1/1029 fyrir etanercept.

Alls hlutu 29 lifrarskaða af lifrarfrumu tegund (55%), 17 blandaða tegund (32%) og 7 gallstíflu (e. cholestasis) tegund (13%). Sex fengu gulu og einn sjúklingur þurfti lifrarígræðslu vegna bráðrar lifarbilunar af völdum IFX.

Ályktanir

Lifrarskaði af völdum Infliximab var mun algengari en af adalimumab og etanercept. Í flestum tilfellum var vægur til meðalsvæsinn lifrarskaði en lífshættulegur skaði sem leiddi til lifrarígræðslu í einu tilfelli.

V22 Virkni Omega Cold með fríum fitusýrum gegn veirusýkingum í öndunarfærum: Framskyggn slembiröðuð lyfleysurannsókn á Íslandi

Aðalheiður Ólafsdóttir 1

Magnús Gottfreðsson 2 , Grímur Valdimarsson 3

1 Matís ohf.

2 Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, og Landspítala

3 Lipid Pharmaceuticals ehf.

Inngangur: Lýsi sem algengast er á markaði er hreinsað af fríum fitusýrum (FFS). Áður en farið var að hreinsa lýsi á þennan hátt innihélt það FFS í nokkru magni. Rannsóknir hafa sýnt að FFS í lágum styrk búa yfir veirudrepandi verkun in vitro, gegn ýmsum veirum sem valda öndunarfærasýkingum. Omega Cold er lýsi með viðbættum FFS (2%). Þessi klíníska rannsókn kannar hvort inntaka lýsis með FFS hafi áhrif á tíðni og framgang öndunarfærasýkinga.

Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er framskyggn slembiröðuð, tvíblind, samanburðarrannsókn með lyfleysu, þar sem tveir hópar eru bornir saman með tilliti til tíðni og alvarleika öndunarfærasýkinga. Íhlutunarhópurinn tekur Omega Cold tvisvar á dag í fjóra mánuði og viðmiðunarhópurinn tekur jurtaolíu á sama hátt. Allir þátttakendur skrá upplýsingar um heilsufar, þ.m.t. kvef- og flensueinkenni vikulega. Stefnt er að alls 400 þátttakendum.

Niðurstöður: Rannsóknin hófst í desemberlok 2025 og 118 þátttakendur voru teknir inn veturinn 2025-2026. Af þeim luku 107 (90,7%) meðferðinni (meðalaldur 51±15,3; karlar 42%, konur 58%). Niðurstöðurnar sýna marktæk tengsl milli tíðni öndunarfærasýkinga hjá þátttakendum og faraldsfræði þekktra öndunarfæraveira á sama tíma, sérstaklega RS-veiru (r = 0,6) skv. opinberum gögnum.

Ályktun: Fyrstu lýsandi niðurstöður benda til þess að sýkingareinkenni og tímasetning þeirra meðal þátttakenda samsvari smiti í samfélaginu. Stefnt er að 300 þátttakendum til viðbótar veturinn 2026-2027 og verður þá unnt að afblinda og greina gögnin. Stefnt er að birtingu fyrstu niðurstaðna úr rannsókninni haustið 2027.

V23 Duldir berklar á Landspítala 2007-2023 – meðferð, árangur og aukaverkanir

Hrannar Ása Magnúsar 1, Agnar Bjarnason 2, 3

Brynja Ármannsdóttir 3, 4 , Birgir Jóhannsson 2

1 Læknadeild Háskóla Íslands

2 Smitsjúkdómalækningar Landspítala

3 Háskóli Ísland

4 Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans

Inngangur

Einstaklingur getur smitast af berklum án þess að sýkingin sé virk og er þá einkennalaus og kallast það duldir berklar. Duldir berklar hafa lengst af oftast verið greindir með húðprófum en nákvæmari Quantiferon-blóðpróf eru nú meira notuð. Notast hefur verið við tvær mismundi lyfjameðferðir: rifampicin í 4 mánuði eða isoniazid í 6-9 mánuði.

Markmið

Að kanna fjölda þeirra sem greinast með dulda berkla á Landspítalanum með Quantiferon-prófi á rannsóknartímabilinu. Einnig að skoða hlutfall þeirra sem fá meðferð, hvaða meðferð er veitt, árangur þeirra og aukaverkanir.

Aðferðir

Jákvæð Quantiferon próf frá 2007-2023 voru sótt í Cyberlab-kerfi Landspítalans og viðbótargögn sótt í rafræn sjúkraskrárkerfi Landspítalans. Notast var við R Studio til að hreinsa gögnin og flokka í undirhópa. Tíðni aukaverkanna og brottfall úr meðferð var borin saman milli meðferðarhópa.

Niðurstöður

Alls voru 311 einstaklingar með jákvætt Quantiferon-próf. Fjöldi Quantiferon-prófa hefur vaxið með veldisvexti síðan 2007, að jafnaði var hlutfall jákvæðra prófa 10,1%. Af 261 fullorðnum fengu 92 (35,3%) meðferð. Af þeim voru 50 (54,3%) sem luku meðferð eða fengu fullan lyfjaskammt afhentan. Ekki var marktækur munur á aukaverkunum milli einstaklinga sem fengu rifampicin miðað við þá sem fengu isoniazid (P-gildi=0,962). Hins vegar var marktækur munur milli lyfja hvort meðferð var lokið miðað við aðra mögulegar niðurstöður (P-gildi=0,003).

Ályktanir

Notkun Quantiferon prófa hefur aukist. Hlutfall þeirra sem ekki fá meðferð er stórt og margir ljúka henni ekki. Fleiri ljúka rifampicin meðferð en aukaverkanir voru svipaðar. Eftirfylgni hefur batnað á tímabilinu og meðferð styst sem getur skýrt þennan mun.

V24 Heilahimnubólga af völdum baktería hjá fullorðum á Íslandi 2011-2025

Sara Antonía Magneudóttir Wittebrood 1

Lena Rós Ásmundsdóttir 2 , Magnús Gottfreðsson 2 , Helga Erlendsdóttir 2

1 Læknadeild Háskóla Íslands

2 Landspítali háskólasjúkrahús

Inngangur: Heilahimnubólga af völdum baktería er lífshættulegur sjúkdómur með alvarlega fylgikvilla. Aukið hlutfall aldraðra, breytingar á bólusetningum og nýjar greiningaraðferðir hafa víða haft áhrif á faraldsfræði bakteríuheilahimnubólgu á undanförnum árum.

Efniviður og aðferðir: Framkvæmd var lýðgrunduð, afturskyggn rannsókn á öllum tilfellum samfélagsheilahimnubólgu af völdum baktería meðal fullorðinna (≥18 ára) á Íslandi 2011-2025. Tilfelli voru greind út frá klínískri mynd ásamt jákvæðu prófi (ræktun, PCR eða mótefnavakapróf) á mænuvökva og/eða ICD-10 kóða sem benti til heilahimnubólgu. Alvarleiki sýkingar og undirliggjandi sjúkdómar voru metnir með APACHE II og Charlson Comorbidity Index stigunarkerfum. Aldursstaðlað nýgengi (ASN) var reiknað og viðmiðunarþýðið var íslenska þjóðin 2025.

Niðurstöður: Alls greindust 66 tilfelli af heilahimnubólgu af völdum baktería (CABM) hjá 66 sjúklingum. Meirihluti sjúklinga voru konur (67%). Aldursstaðlað nýgengi (ASN) var 1,7 tilfelli/100.000 íbúa og þróaðist í átt lækkunar frá 2011 til 2025 (IRR 0.95, p=0.058). Nýgengi var hærra hjá konum en körlum (p=0.005). Aldursbundið nýgengi var hæst hjá einstaklingum ≥80 ára (4,8/100.000). Sýkingarvaldur greindist í 89% tilfella. Algengustu sýkingarvaldarnir voru Streptococcus pneumoniae (47%) og Listeria monocytogenes (9,1%). ASN S. pneumoniae heilahimnubólgu lækkaði marktækt á rannsóknartímabilinu (IRR 0.90, p=0.013) og 72% tilfella voru vegna hjúpgerða sem eru hluti af núgildandi pneumókokkabóluefnum.

Ályktun: Nýgengi samfélagsheilahimnubólgu á Íslandi hefur lækkað á undanförnum 15 árum, aðallega vegna lækkunar á nýgengi heilahimnubólgu af völdum pneumókokka, og skýrist líklega af bólusetningum. Hátt nýgengi meðal kvenna og aldraðra er áhyggjuefni og krefst frekari rannsókna og hugsanlega íhlutunar.

V25 Tengsl Staphylococcus aureus bakteríumigu og blóðsýkingar

Andri Þór Sigþórsson 1

Elías Sæbjörn Eyþórsson 1, 2 , Lena Rós Ásmundsdóttir 1, 2 , Hjálmar Ragnar Agnarsson 1, 2

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali Háskólasjúkrahús

Inngangur

Klínísk þýðing Staphylococcus aureus bakteríumigu (SABU) er óljós og er talin geta endurspeglað allt frá meinlausri sýklun yfir í vísbendingu um blóðsýkingu (SAB). Samband SABU og SAB er missterkt eftir rannsóknum og forspárþættir illa skilgreindir. Markmið rannsóknarinnar var að greina nýgengi SABU á Íslandi, kanna hlutfall einstaklinga með SABU sem greinast með SAB og hvaða áhættuþættir auka áhættu á SAB.

Efniviður og aðferðir

Framkvæmd var afturskyggn faraldsfræðileg rannsókn byggð á gögnum úr rannsóknarkerfum Landspítala og rafrænum sjúkraskrám. Öll tilfelli SABU hjá einstaklingum 18 ára og eldri á Íslandi árið 2025 voru rannsökuð. Lýðfræðilegir og klínískir þættir ásamt niðurstöðum þvag- og blóðrannsókna voru greindir.

Niðurstöður

Alls voru 322 tilfelli SABU hjá fullorðnum árið 2025 og greindist SAB hjá 3,4%. Nýgengi SABU var 104,9/100.000. Sjúklingar sem voru inniliggjandi, á sterameðferð, með sögu um vímuefnanotkun í æð eða þvagfæraskurðaðgerð innan árs voru líklegri til að vera með SAB. Þeir höfðu að meðaltali hærri blóðgildi hvítfrumna, bráðfasaprótína og hærri líkamshita. CFU <30.000/mL í þvagi tengdist lægri líkum á SAB. Á rannsóknartímabilinu var dánarhlutfall sjúklinga með SABU 10,9% en 36% með SABU og SAB.

Ályktun

Niðurstöður benda til þess að SABU sé oftast sýklun eða staðbundin sýking og algengi SAB í þýðinu lágt. Meta þarf SABU í klínísku samhengi þar sem rannsóknargildi sem benda til kerfisbundinnar sýkingar ættu að vekja grun um blóðsýkingu, sérstaklega hjá inniliggjandi sjúklingum með þekkta áhættuþætti. Sterkar vísbendingar eru um að lág gildi CFU tengist minni líkum á SAB. Þvagstrimlapróf og smásjárskoðun þvags komu ekki að gagni við tengslamat.

V26 Faraldsfræði og erfðafræði lungnatrefjunar á Landspítala

Úlfur Benedikt Fjölnisson 1

Gunnar Guðmundsson 1, 2 , Auður Gunnarsdóttir 1, 3

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

3 Skånes Universitetssjukhus

Inngangur: Lungnatrefjun er alvarlegur lungnasjúkdómur með flókna meingerð þar sem bæði umhverfis- og erfðaþættir spila saman. Markmið þessarar rannsóknar, sem hófst árið 2002, er að bera kennsl á faraldsfræði og erfðaþætti sem auka líkur á lungnatrefjun og finna einstaklinga í mestri áhættu á að þróa með sér sjúkdóminn síðar á ævinni.

Efniviður og aðferðir: Um er að ræða lýsandi, aftur- og framskyggna ferilrannsókn á sjúklingum með greiningu millivefslungnasjúkdóms með trefjun sem skráðir voru í Heilsugátt Landspítala. Klínískum gögnum var safnað á stöðluð skráningarform. Skráð var nákvæm greining lungnasjúkdóms, kyn, aldur við greiningu, einkennalýsing og lengd þeirra, lungnahlustun, lífsmörk og hjásjúkdómar. Jafnframt var safnað upplýsingum um inngripsgreiningaraðferðir (berkjuspeglun, vefjasýni með speglun eða með brjóstholsaðgerð), öndunarmælingar, myndgreiningu, hjartaómun, göngupróf, lyfjameðferð (lyf gegn lungnatrefjun, steraskammta og ónæmisbælandi lyf) og hvort lungnaígræðsla hafi verið gerð.

Niðurstöður: Alls voru 166 sjúklingar skráðir. Meðalaldur við greiningu var 68 ár. Karlar voru 105 (63,3%) og konur 61 (36,7%). Algengasta greiningin var sjálfvakin lungnatrefjun (IPF) í 93 tilfellum (56,0%). Þar eftir kom ósértæk millivefslungnabólga (NSIP) í 25 tilfellum (15,1%), millivefslungasjúkdómar tengdir gigtarsjúkdómum í 20 tilfellum (12,0%), samþætt lungnatrefjun og lungnaþemba (CPFE) í 16 tilfellum (9,6%) og langvinn ofurnæmislungnabólga í 9 tilfellum (5,4%). Aðrir sjúklingar voru án greiningar eða með sjaldgæfari undirgerðir.

Ályktun: Niðurstöðurnar sýna að lungnatrefjun á Íslandi greinist oftast hjá eldri einstaklingum, er algengari meðal karla og sjálfvakin lungnatrefjun (IPF) er helsta undirgerðin. Þessi skipting er í samræmi við erlendar rannsóknir og nýtist sem mikilvægur grunnur við frekara áhættumat og erfðarannsóknir á sjúkdómnum hér á landi.

V27 Þróun og breytileiki í lungnastarfsemi sjúklinga með sjálfvakta lungnatrefjun í Svíþjóð

Óskar Jóel Jónsson 1, 2

Magnus Sköld 3, 4 , Lisa Carlson 3, 4 , Emil Ekbom 5 , Andrei Malinovschi 6 , Össur Ingi Emilsson 1, 2, 5

1 Faculty of Medicine, University of Iceland, Reykjavik, Iceland

2 Department of Respiratory Medicine, Landspitali University Hospital, Reykjavik, Iceland

3 Department of Respiratory Medicine and Allergy, Karolinska University Hospital, Stockholm, Sweden

4 Division of Immunology and Respiratory Medicine, Department of Medicine Solna and Center for Molecul

5 Department of Medical Sciences, Respiratory, allergy and sleep research, Uppsala University, Uppsala

6 Department of Medical Sciences, Clinical Physiology, Uppsala University, Uppsala, Sweden

Bakgrunnur

Versnun sjálfvakinnar lungnatrefjunar (IPF) er oft metin út frá breytingum á heildarfrámáli (FVC). Lækkun á FVC ≥5% er talið skilgreina versnun, en ekki er vel skilgreint hver breytileiki FVC getur verið milli mælinga. Markmið rannsóknarinnar var að meta breytileikann hjá þessum sjúklingahópi, og tengsl við lifun.

Efniviður og aðferðir

Framkvæmd var þýðisrannsókn á sjúklingum með IPF sem höfðu gengist undir blásturspróf við a.m.k. þrjá aðskilda tímapunkta. Breytingar á lungnastarfsemi voru metnar sem prósentustigs breyting á FVC (% af spáðu gildi) frá fyrstu mælingu. Breytileiki FVC var reiknað út frá hallatölu FVC hvers og eins. Sjúklingar voru flokkaðir eftir lækkun FVC við fyrsta endurmat; bæting, lækkun um 0-3%, 3-8% og >8%. Cox aðhvarfsgreining var notuð til skoðunar á lifun.

Niðurstöður

Helmingur FVC mælinga sjúklings lenda um +/-3% út fyrir spálínu. 90% mælinga lenda +/-8% frá spálínu einstaklinga (u.þ.b. 3% meira en núverandi skilgreining á framgangi millivefssjúkdóma).

187 einstaklingar höfðu skráð FVC gildi við fyrsta (Fu1) og annað eftirlit (Fu2) (mynd 1). Marktækur munur var á lifun þeirra sem bættu FVC gildi sitt (5,88 ár) og þeim sem lækkuðu gildið, sérstaklega ef lækkaði um >8% við Fu1 (3,89 ár). Ekki var teljandi munur á lifun milli 0-3% lækkunar (HR 1.52) og 3-8% lækkunar (HR 2.02).

Ályktun

Breytileiki FVC gilda hjá sjúklingum með IPF við endurteknar fráblástursmælingar er meiri en 5%. Niðurstöðurnar benda til þess að flokkun sjúklinga í 3 hópa út frá breytingu í FVC gildi bæti nothæfi mælingar; Bæting, 0-8% versnun og >8% versnun.

V28 Háþrýstingur á meðgöngu og þróun nýrnabilunar síðar á ævinni

Auðbjörg Erla Karlsdóttir 1

Sunna Snædal 2 , Jóhanna Gunnarsdóttir 2 , Ólafur Skúli Indriðason 2 , Arnar Jan Jónsson 3

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

3 Sahlgrenska Háskólasjúkrahúsið

Inngangur

Tíðni háþrýstingsvanda á meðgöngu er talin vera 5-15%. Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt tengsl háþrýstingsvanda á meðgöngu við margfalda áhættu á langvinnum nýrnasjúkdómi (LNS). Íslenskar upplýsingar um háþrýsting á meðgöngu hjá konum með LNS vantar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hlutfall háþrýstingsvanda á meðgöngu meðal kvenna með LNS á stigi 3b-5 (gaukulsíunarhraði <45 ml/mín).

Efniviður og aðferðir

Afturskyggn lýsandi þversniðsrannsókn á konum með LNS á stigi 3b-5 á árunum 2008-2016 sem áttu barn á Landspítala 1982-2002, alls 203 konur. Notuð voru gögn úr rannsókninni Langvinnur nýrnasjúkdómur á Íslandi. Gögnum um blóðþrýsting og próteinmigu var safnað úr sjúkraskrám Landspítala. Háþrýstingur á meðgöngu var skilgreindur sem slagbilsþrýstingur ≥ 140 mmHg og/eða hlébilsþrýstingur ≥ 90 mmHg í fleiri en einni mælingu. Notuð var lýsandi tölfræði.

Niðurstöður

Í rannsóknarþýðinu voru 26,1% kvennanna greindar með háþrýstingssjúkdóm á meðgöngu, 35,5% með háþrýstingsvanda án settrar sjúkdómsgreiningar og 38,4% voru ekki með háþrýsting á meðgöngu. Slagbilsþrýstingur var marktækt hærri í fyrstu mælingu hjá konum með háþrýstingsvanda hvort sem greining var sett eða ekki, borið saman við hóp án háþrýstings (p < 0,001). Hlutfall kvenna með próteinmigu var jafnframt marktækt hæst í hópnum með skráða greiningu á háþrýstingssjúkdómi á meðgöngu (p < 0,001).

Ályktun

Í þessari forrannsókn á tengslum háþrýstingsvanda á meðgöngum og LNS, byggð á íslensku þýði, var háþrýstingsvandi á meðgöngu margfalt algengari en almennt þekkist og vangreindur á Landspítalanum á tímabilinu. Frekari rannsókna er þörf til þess að meta ávinning af eftirfylgni kvenna sem greinst hafa með háþrýsting á meðgöngum.

V29 Lokastigsnýrnabilun á Íslandi 2020 – 2024: Nýgengi, meðferð og afdrif sjúklinga

Haraldur Orri Arnarsson 1

Ólafur Skúli Indriðason 2 , Runólfur Pálsson 1, 2 , Ásta Dögg Jónasdóttir 1, 2

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali Háskólasjúkrahús

Inngangur

Lokastigsnýrnabilun er lífshættulegt ástand en nýrnaígildismeðferð (e. renal replacement therapy) getur bætt og lengt líf sjúklinga. Samanburðarskýrslur bend þó til að lifun sjúklinga í nýrnaígildismeðferð á Íslandi sé lakari en í öðrum Evrópu löndum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna þætti sem tengjast lifun sjúklinga í nýrnaígildismeðferð á Íslandi.

Aðferðir

Rannsóknin var afturskyggn og náði til fullorðinna sjúklinga sem hófu nýrnaígildismeðferð á Íslandi á tímabilinu 2020-2024. Upplýsingar um orsök nýrnabilunar, fylgisjúkdóma, upphaf og lok skilunarmeðferðar og dánarorsök voru fengnar úr íslensku nýrnabilunarskránni og sjúkraskrám. Lifun var metin með Kaplan-Meier aðferð og Cox-aðhvarfsgreiningu.

Niðurstöður

Á tímabilinu hóf 191 einstaklingur ≥18 ára nýrnaígildismeðferð, þar af voru 138 karlar (72,3%). Algengasta orsök nýrnabilunar var háþrýstingur/nýrnaæðasjúkdómar (36,1%). Miðgildi (spönn) fylgisjúkdóma á hvern einstakling var fjórir (0–10). Háþrýstingur (89,5%), sykursýki (29,3%), kransæðasjúkdómur (25,1%) og hjartabilun (20,4%) voru algengustu fylgisjúkdómarnir. Alls létust 56 (29,3%) einstaklingar á tímabilinu. Algengasta dánarorsökin var hjarta- og æðasjúkdómar (35,7%). Lifun var 95,3% (öryggisbil 92,3%-98,3%) eftir 90 daga, 86,4% (81,5%-91,5%) eftir 1 ár, 75,6% (69,1%-82,6%) eftir 2 ár og 55,8% (46,5%-67,0%) eftir 4 ár. Þegar leiðrétt var fyrir aldri og kyni voru marktæk tengsl dauða við sögu um krabbamein (áhættuhlutfall 2,65, 95% öryggisbil 1,23-5,71), útæðasjúkdóm (2,76, 1,22-6,28) og bráðan nýrnaskaða (2,48, 1,11-5,53). Hærra serum albúmín (0,93, 0,88-0,99) og líkamshæð (0,95, 0,90-0,98) tengdust betri lifun.

Ályktanir

Lifun sjúklinga í nýrnaígildismeðferð hérlendis er lakari en víða í Evrópu en fylgisjúkdómabyrði er mikil. Þörf er á samanburðarrannsóknum með ítarlegum upplýsingum um fylgisjúkdóma og fleiri þætti til að kanna orsakir verri lifunar hérlendis.

V30 Langtíma nýrnaheilsa fólks sem fæddust fyrirburar í samanburði við fullburða jafnaldra með eðlilega fæðingarþyngd

Dagur Tjörvi Arnarsson 1, 2, Viðar Örn Eðvarsson 1, 3

Ólafur Skúli Indriðason 2 , Kristófer Arnar Magnússon 2 , Baldur Bragi Sigurðsson 2 , Louisa Sif Jóhannesardóttir 2 , Þórður Björgvin Þórðarson 2 , Þórður Þorkelsson 3 , Runólfur Pálsson 1, 2

1 Læknadeild, Háskóli Íslands

2 Landspítali

3 Barnaspítali Hringsins

Inngangur: Lág fæðingarþyngd og fyrirburafæðing virðast tengjast lakari nýrnastarfsemi og albúmínmigu síðar á ævinni. Markmið rannsóknarinnar var að kanna nýrnastarfsemi og albúmínmigu fullorðinna sem fæddust fyrir tímann með lága fæðingarþyngd, í samanburði við fullburða jafnaldra.

Aðferðir: Þetta var samanburðarferilrannsókn á einstaklingum ≥18 ára, fæddum 1990–2008, úr þýði eldri rannsóknar á afdrifum fyrirbura á Íslandi. Hvert tilfelli er parað 1:1 eftir aldri og kyni við fullburða viðmið af sama kyni með eðlilega fæðingarþyngd. Reiknaður gaukulsíunarhraði (r-GSH) var fenginn með EKFC-jöfnum út frá kreatíníni (r-GSHkrea), cystatín C (r-GSHcys) og hvoru tveggja (r-GSHkrea-cys). Mældur gaukulsíunarhraði (m-GSH) var ákvarðaður með joðhexól-úthreinsun. Albúmín/kreatínín-hlutfall í þvagi (AKH) var mælt í fyrsta morgunþvagi. Hér eru kynntar frumniðurstöður fyrstu 25 þátttakenda í fyrirburahópnum þar sem r-GSHkrea var borinn saman við aldurs- og kynbundin viðmiðunargildi heilbrigðra Evrópubúa.

Niðurstöður: Af 25 þátttakendum voru 18 (72%) konur. Meðalaldur var 28,7±4,9 ár, miðgildi meðgöngulengdar 27 vikur (fjórðungabil 26–28) og miðgildi fæðingarþyngdar 786 (697–882) g. Miðgildi r-GSHkrea var 90,6 (80,7–105,4) ml/mín./1,73 m². Af þátttakendum voru 17 (68%) undir miðgildi viðmiðunarþýðis (100 ml/mín./1,73 m²) og tveir (8%) undir 2,5. hundraðshlutamarki fyrir aldur og kyn. Miðgildi r-GSHcys var 97,9 (86,9–108,6) og r-GSHkrea-cys 95,7 (91,1–104,4) ml/mín./1,73 m². m-GSH lá fyrir hjá 16 þátttakendum og var miðgildi 89,8 (78,9–100,7) ml/mín./1,73 m². Einn þátttakandi (4%) hafði AKH >3 mg/mmól.

Ályktun: Þessar frumniðurstöður benda til þess að nýrnastarfsemi ungra fullorðinna einstaklinga sem fæddust fyrir tímann með lága fæðingarþyngd sé undir viðmiðunargildum en rannsóknin mun varpa betra ljósi á þessi tengsl þegar henni er lokið.

V31 Horfur sjúklinga á bráðamóttöku með minniháttar breytingar á kreatíníni í sermi

Telma Huld Ragnarsdóttir 1, Margrét Kristjánsdóttir 2, Gísli Gíslason 1, Ólafur Helgi Samúelsson 3, Vicente Sanchez-Brunete 1, Margrét Ólafía Tómasdóttir 4, Ólafur Skúli Indriðason 1, Runólfur Pálsson 1

 

1 Landspítali University Hospital

2 Karolinska institutet

3 Eir hjúkrunarheimili

4 Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Bakgrunnur

Minniháttar breytingar á kreatíníni í sermi (S-Kr) hafa verið tengdar verri horfum sjúklinga á sjúkrahúsi. Óljóst er hvert forspárgildi þeirra er hjá sjúklingum á bráðamóttöku (BMT).

Aðferðir

Rannsóknin byggir á gögnum um 1.008 fullorðna sjúklinga án bráðs nýrnaskaða (BNS) sem mynduðu samanburðarhóp í framsýnni rannsókn á BNS við komu á BMT. Sjúklingum var skipt í hópa eftir breytingu á S-Kr frá grunngildi: stöðugt, >10% lækkun eða 10–49% hækkun. Hópar voru bornir saman með Kí-kvaðrat prófi og lifunargreiningu.

Niðurstöður

Alls voru 608 (60,3%) með stöðugt S-Kr, 190 (18,8%) með lækkun og 210 (20,8%) með hækkun á S-Kr. Eins árs dánartíðni var einnig hærri hjá hópnum með lækkun á S-Kr (14,7% vs. 9,2%, p=0,030), en önnur skammtímaútkoma var sambærileg. Sjúklingar með væga hækkun á S-Kr höfðu hærri innlagnartíðni (68,6% vs. 57,1%, p=0,004) og lengri legutíma (3 vs. 2 dagar, p=0,027) en hópurinn með stöðugt S-Kr. Þeir höfðu einnig hærri dánartíðni á sjúkrahúsi (4,3% vs. 1,6%, p=0,028), innan 90 daga (8,1% vs. 4,1%, p=0,024) og innan árs (14,8% vs. 9,2%, p=0,024). Í leiðréttum Cox-líkönum tengdust bæði lækkun (áhættuhlutfall [HR] 1,69; 95% öryggisbil [CI] 1,06–2,70) og hækkun á S-Kr (HR 1,64; 95% CI 1,04–2,57) hærri eins árs dánartíðni. Leiðrétt bundið þriðja stigs hermifalls-líkan (restricted cubic spline) sýndi U-laga tengsl milli breytinga á S-Kr og eins árs dánartíðni.

Ályktanir

Einstaklingum með litla hækkun eða lækkun á S-Kr farnaðist verr en þeim með stöðugt S-Kr og geta slíkar breytingar gefið til kynna að aukinnar árvekni sé þörf við eftirfylgni þeirra.

V32 Greining sykursýki af tegund 2 hjá sjúklingum með brátt kransæðaheilkenni: 10 ára eftirfylgni

Atli Þór Jónsson 1, Karl Andersen 1, 2

Leon Heitmann 1, 2 , Þórarinn Bjarnason 3

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali

3 Eastern Maine Medical Center

BAKGRUNNUR

Truflanir á sykurefnaskiptum eru algengar meðal sjúklinga með brátt kransæðaheilkenni og tengjast verri horfum, en langtímaþróun þeirra og meðferð er minna rannsökuð. Markmið rannsóknarinnar var að meta þróun sykurefnaskipta, langtímahorfur, forspárgildi bráðafasamælinga og meðferð yfir 10 ára eftirfylgni.

AÐFERÐIR

Afturskyggn undirrannsókn á 250 sjúklingum án þekktrar sykursýki sem skimaðir voru fyrir truflunum á sykurefnaskiptum eftir brátt kransæðaheilkenni á Landspítala 2013–2014. Þátttakendum var skipt í þrjá hópa samkvæmt HbA1c, fastandi blóðsykri og sykurþolsprófi: eðlileg sykurefnaskipti, forstig sykursýki og sykursýki. Tíðni truflana var kortlögð úr sjúkraskrám og lyfjameðferð úr lyfjagagnagrunni landlæknis í tíu ár. Dánartíðni og MACE (hjartadauði, heilablóðfall, kransæðainngrip) voru borin saman milli hópa með Kaplan-Meier aðferð. ROC greining mat forspárgildi bráðafasamælinga fyrir langtímaþróun.

NIÐURSTÖÐUR

Af 250 þátttakendum höfðu 178 (71,2%) truflun á sykurefnaskiptum, þar af 42 (23,6%) með sykursýki. Yfir eftirfylgdartímann greindust trufluð sykurefnaskipti hjá 9 (12,5%) þeirra með eðlileg sykurefnaskipti og 37 (27,2%) þeirra með forstig sykursýki við skimun (p=0,018). Sykurefnastaða hafði ekki fylgni við langtímadánartíðni eða MACE. HbA1c og fastandi blóðsykur í bráðafasa höfðu takmarkað forspárgildi fyrir langtímaþróun (AUC 0,597 og 0,594). Af 42 sjúklingum sem mættu greiningarskilmerkjum sykursýki fengu 18 (42,9%) aldrei meðferð með sykursýkislyfi.

ÁLYKTUN

Truflun á sykurefnaskiptum er algeng hjá sjúklingum með brátt kransæðaheilkenni án þekktrar sykursýki. Flokkun við skimun spáði fyrir um þróun þeirra, en stök bráðafasamæling gerði það ekki, sem undirstrikar mikilvægi endurmats. Rúmlega fjórir af hverjum tíu sem uppfylltu greiningarskilmerki fengu aldrei meðferð. Markviss skimun, endurmat og eftirfylgd eru forsenda þess að nýta forvarnartækifærin í þessum áhættuhópi.

V33 Kólesteról meðferð eftir brátt kransæðaheilkenni: Árangur, tímasetning og innleiðing blóðfitulækkandi meðferðar hjá sjúklingum eftir kransæðainngrip

Ásta Rakel Birgisdóttir 1

Karl Andersen 2, 3 , Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir 3, 4 , Leon Arnar Heitmann 3, 4

1 Háskóli Íslands

2 Landspítali Háskólasjúkrahús

3 Háskóli Íslands

4 Landspítali Háskólasjúkrahús

Inngangur: Sjúklingar með brátt kransæðaheilkenni (ACS) eru í mikilli áhættu á endurteknum hjarta- og æðaatburðum og mæla klínískar leiðbeiningar því með snemmbærri og öflugri blóðfitulækkandi meðferð. Markmið rannsóknarinnar var að kortleggja blóðfitulækkandi meðferð eftir ACS á Íslandi og meta tengsl hennar við LDL-kólesteról og hjartatengd dauðsföll.

Efniviður og aðferðir: Afturskyggn ferilrannsókn á einstaklingum sem gengust undir fyrstu kransæðavíkkun vegna ACS á Landspítala 2020-2024. Gögn fengust úr gagnagrunni hjartaþræðingarstofu Landspítala, Lyfjagagnagrunni og Dánarmeinaskrá Embættis landlæknis. Kortlögð var notkun háskammta blóðfitulækkandi meðferðar innan 90 daga, breyting á LDL-gildum, hlutfall sjúklinga sem náði meðferðarmarkmiðum og hjartatengdur dauði. Meðferðarmarkmið voru skilgreind sem LDL-kólesteról <1,4 mmól/L og ³50% lækkun frá grunngildi. Tengsl meðferðar við hjartatengd dauðsföll voru metin með Cox-aðhvarfsgreiningu.

Niðurstöður: Alls mættu 1873 þátttökuskilyrðum. Innan 90 daga frá ACS voru 78,7% sjúklinga á háskammta blóðfitulækkandi meðferð, þar af 4,0% á ezetimíbi og 0,4% á PCSK9-hemli. Notkun ezetimíbs jókst úr 1,4% árið 2020 í 13,2% árið 2024 (p<0,001). Við 3-18 mánaða eftirfylgd lækkaði LDL að meðaltali um 1,12 mmól/L (n=798; p<0,001). Alls náðu 23,4% LDL <1,4 mmól/L og 17,4% báðum meðferðarmarkmiðum. Háskammta blóðfitulækkandi meðferð með ezetimíbi tengdist auknum líkum á að ná báðum markmiðum (OR 6,45: 95% ÖB 1,83-30,59; p=0,008). Háskammta blóðfitulækkandi meðferð tengdist minni áhættu á hjartatengdum dauða (HR 0,47: 95% ÖB 0,28-0,78; p=0,004).

Ályktun: Háskammta blóðfitulækkandi meðferð er vel innleidd eftir ACS á Íslandi en fáir sjúklingar nær LDL-markmiðum klínískra leiðbeininga. Niðurstöðurnar styðja mikilvægi öflugrar blóðfitulækkandi meðferðar og benda til þess að snemmbærari viðbót ezetimíbs geti aukið hlutfall sjúklinga sem nær ráðlögðum LDL-markmiðum.

V34 Sykursýkismeðferð eftir brátt kransæðaheilkenni

Birna Hrólfsdóttir 1, Karl Andersen 1

Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir 1 , Leon Heitmann 1

1 Landspítali

Inngangur:

Skert sykurefnaskipti eru algeng hjá sjúklingum með brátt kransæðaheilkenni (ACS) og tengjast verri horfum. Ný sykursýkislyf af flokki SGLT2-hemla og GLP-1 viðtakaörva hafa bætt horfur sjúklinga með skert sykurefnaskipti og eru hvati fyrir bættri skimun. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni blóðsykurskimunar, notkun sykursýkislyfja og meðferðarárangur eftir ACS á Íslandi.

Efniviður og aðferðir:

Afturskyggn ferilrannsókn á sjúklingum sem gengust undir fyrstu kransæðavíkkun vegna ACS á Landspítalanum 2020-2024. Sjúklingar með þekkta sykursýki eða sykursýkismeðferð fyrir inngrip voru útilokaðir. Klínísk gögn fengust úr gagnagrunni hjarta- og æðaþræðingarstofu Landspítala og lyfjagagnagrunni landlæknis. Blóðrannsóknir fengust frá Landspítala, Læknasetrinu og Sameind. Skimun var skilgreind sem HbA1c-mæling innan sjö daga frá kransæðavíkkun og eftirfylgni sem mæling 3-24 mánuðum síðar. Lyfjameðferð og blóðsykurstjórnun voru metin með bæði grunn- og eftirfylgnimælingu á HbA1c. Meðferðarmarkmið var HbA1c <53 mmol/mol innan tveggja ára. Cox aðhvarfsgreining var notuð til samanburðar á lifun.

Niðurstöður:

Af 1486 sjúklingum voru 57,1% skimaðir fyrir sykursýki. Skimun og eftirfylgnimæling var gerð hjá 523 sjúklingum og uppfylltu 17,2% þeirra skilmerki sykursýki. Af þeim fengu 96,7% sykursýkislyf og 68,9% SGLT2-hemla innan árs en notkun SGLT2-hemla jókst marktækt á rannsóknartímabilinu. Miðgildi HbA1c hjá sjúklingum með sykursýki lækkaði um 4,5mmol/mol (p<0,001) og 94,4% náðu meðferðarmarkmiðum innan tveggja ára. Ekki var marktækur munur á lifun eftir því hvort meðferðarmarkmiði var náð.

Ályktun:

Skimun fyrir sykursýki með HbA1c í tengslum við ACS var ábótavant. Notkun SGLT2-hemla var mikil og jókst verulega á rannsóknartímabilinu í samræmi við ráðleggingar klínískra leiðbeininga. Blóðsykurstjórnun var almennt góð hjá sjúklingum með eftirfylgni mælingu.