Geðdagurinn 2026
Ágrip
Tilfinningavandi, orðræða og meðferðarumhverfi: Frá vanmætti til verkfæra
Ragnheiður H. E. Bjarman, Gunnhildur Gunnarsdóttir
Geðþjónusta Landspítala
Einstaklingar með alvarlegan tilfinningavanda og endurtekna sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun eru meðal þeirra sem oft upplifa brotakennda þjónustu innan geðheilbrigðiskerfisins. Hópurinn mætir gjarnan neikvæðum viðhorfum, misskilningi og orðræðu sem getur ýtt undir skömm, útilokun og vantraust gagnvart þjónustunni.
Á sama tíma upplifir fagfólk sem þjónustar þessa einstaklinga oft sterkar tilfinningar á borð við vanmátt, óöryggi, ótta og kulnun. Slík viðbrögð eru skiljanleg í ljósi þess hversu flókinn og krefjandi tilfinningavandi getur verið, sérstaklega þegar starfsfólk skortir fræðslu, stuðning eða samræmda meðferðarnálgun. Þegar þessum viðbrögðum er ekki mætt geta þau birst í orðræðu og viðhorfum sem viðhalda neikvæðri sýn á fólk með tilfinningavanda og grafa undan árangursríkri þjónustu.
Atferlisvirkjun við þunglyndi í geðhvörfum
Halla Ósk Ólafsdóttir1,2, Brynja Björk Magnúsdóttir1,2
1Landspítali, 2Háskólinn í Reykjavík,
Inngangur: Fólk með geðhvörf ver stórum hluta ævinnar með þunglyndiseinkenni sem skerða lífsgæði þeirra verulega. Þunglyndi er sú birtingarmynd geðhvarfa sem er hvað mest íþyngjandi, er kosnaðarsamt fyrir einstaklinginn sjálfann og samfélagið auk þess að valda aukinni sjálfsvígshættu. Þrátt fyrir alvarlegar afleiðingar hefur þunglyndi í geðhvörfum verið lítið rannsakað og eru fáar árangursríkar meðferðir í boði. Atferlisvirkjun er gagnreynd meðferð við einskauta þunglyndi og benda fyrstu athuganir til þess að atferlisvirkjun geti einnig verið árangursrík og hagkvæm meðferð við þunglyndi í geðhvörfum.
Markmið: Að kanna árangur, fýsileika og hentugleika atferlisvirkjunar sem meðferðar við þunglyndi í geðhvörfum meðal göngudeildarsjúklinga í geðhvarfateymi Landspítala. Megintilgátan var að hið minnsta kosti 60% þátttakenda sýndu klínískt marktæka breytingu á PHQ-9 þunglyndismælingu eftir meðferð.
Aðferðir: Þátttakendur voru 12 göngudeildarsjúklingar með yfirstandandi þunglyndi í geðhvörfum og fengu þeir allt að 20 meðferðartíma af atferlisvirkjun. Notast var við einliðasnið með margfaldri grunnlínu þar sem biðtími eftir meðferð var á bilinu 2-5 vikur og ákvarðaður með slembiröðun. Mat á sjúkdómseinkennum, líðan og lífsgæðum var gert við inntöku í rannsókn, upphaf meðferðar, um miðbik og eftir meðferð, ásamt vikulegum einkennamælingum á meðan á meðferð stóð.
Niðurstöður: Meðferðarheldni var góð; 11 af 12 þátttakendum luku meðferð og hátt hlutfall þátttakenda mat meðferðina hjálplega og viðeigandi. Alls sýndu 82% þátttakenda áreiðanlega framför (9/11) og 64% þátttakenda (7/11) sýndu klínískt marktæka breytingu á PHQ-9 fyrir og eftir meðferð.
Ályktun: Frumniðurstöður benda til að atferlisvirkjun við geðhvarfaþunglyndi sé líkleg til að bera árangur og sé hentug og fýsileg meðferð en frekari rannsókna er þörf.
Árangur esketamínmeðferðar (Spravato®) á Íslandi: afturskyggn rannsókn á tímabilinu 2025-2026
Katrín Birna Jónsdóttir1, Oddur Ingimarsson1,2, Astrid Gesine Elisabeth Freisen1
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Geðþjónusta Landspítala
kbj20@hi.is
Bakgrunnur: Þunglyndi er alvarlegur og erfiður sjúkdómur. Fjölbreytt meðferðarúrræði eru ekki alltaf árangursrík, einkum hjá einstaklingum með meðferðarþrátt þunglyndi (TRD; Treatment Resistant Depression). TRD hefur verið skilgreint sem ófullnægjandi svörun við að minnsta kosti tveimur tegundum þunglyndislyfja þrátt fyrir viðunandi meðferðartilraun og meðferðarheldni. Fyrir þessa einstaklinga hefur esketamín, S-handhverfa ketamíns, sýnt árangur í samsettri meðferð með þunglyndislyfi. Spravato® sem er nefúði sem inniheldur esketamín, kom á markað hér á landi árið 2020.
Esketamín verkar á glutamat-kerfið og hefur því annan verkunarmáta en hefðbundin þunglyndislyf sem flest verka á monoamín-kerfið. Klínískar rannsóknir hafa sýnt að esketamín getur leitt til skjótrar minnkunar á þunglyndiseinkennum. Meðferðin krefst þó náins eftirlits vegna mögulegra aukaverkana. Raungögn um árangur esketamínmeðferðar eru takmörkuð, sérstaklega á Íslandi og þörf á að meta árangur hennar hérlendis.
Markmið: Að meta árangur Spravato/esketamínmeðferðar við þunglyndi ásamt mati á svörun og bata. Kanna tíðni og ástæður meðferðarrofs, áhrif aldurs, kyns, samhliða lyfjameðferðar og aukaverkana á meðferðarárangur.
Aðferð: Afturskyggn gagnarannsókn þar sem skoðaðar eru sjúkraskrár sjúklinga sem hófu esketamínmeðferð á Landspítala á tímabilinu 1. janúar 2025 til 1. mars 2026. Safnað verður upplýsingum um þunglyndiseinkenni fyrir og eftir meðferð samkvæmt sjálfsmatkvörðunum PHQ-9 og BDI-II og MADRS sem byggir á klínísku mati. Skoða gögn um meðferðarrof, aukaverkanir og aðrar klínískar breytur á borð við aldur, kyn, samhliða lyfjameðferð og sjúkdómsgreiningar. Niðurstöður verða metnar með lýsandi tölfræði.
Niðurstöður: Niðurstöður munu liggja fyrir á Geðdeginum.
Ályktanir: Rannsóknin mun veita mikilvægar upplýsingar um árangur og notkun esketamínmeðferðar hérlendis.
„Finnst þér ég hafa fitnað?“ Endurtekin hughreysting sem viðhaldsþáttur í átröskunum
Heiða Rut Guðmundsdóttir1,2 Brynjar Halldórsson1,2
1Geðþjónusta Landspítala, 2Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík
heidarg@landspitali.is
Bakgrunnur: Átraskanir eru alvarlegir geðsjúkdómar sem hafa veruleg áhrif á líkamlega heilsu og skerða lífsgæði. Árangur núverandi meðferða er takmarkaður og brýn þörf á rannsóknum sem styðja við þróun meðferðar og bættan árangur. Átraskanir sýna mikinn samslátt við kvíðaraskanir og rannsóknir benda til að þessar raskanir deili sálfræðilegum viðhaldsþáttum. Einn slíkur viðhaldsþáttur sem er vel rannsakaður hjá fólki með kvíðavanda, er endurtekin leit eftir hughreystingu. Einstaklingur leitar þá ítrekað til annarra eftir staðfestingu eða svörum um hluti sem valda þeim kvíða. Hughreystingin dregur tímabundið úr kvíðanum en getur viðhaldið vandamálinu til lengri tíma. Þrátt fyrir að sjúklingar með átraskanir sýni gjarnan þessa hegðun hefur hún lítið verið rannsökuð í þeim sjúklingahópi.
Markmið: Að rannsaka endurtekna hugreystingu sem mögulegan viðhaldsþátt í átröskunum, útbúa mælitæki sem metur þessa hegðun, þróa meðferðarinngrip þar sem unnið er með hana í meðferð og meta árangur af því.
Aðferð: Verkefnið samanstendur af fjórum rannsóknum. (1) Kerfisbundin samantektarrannsókn á kvíðatengdum hugrænum og atferlislegum viðhaldsþáttum í átröskunum. (2) Tekin verða eigindleg viðtöl við sjúklinga með átraskanir með það að markmiði að skilja hlutverk, kveikjur og afleiðingar endurtekinnar hughreystingar í átröskunum. (3) Út frá upplýsingum úr eigindlegu rannsókninni verður þróað mælitæki sem metur endurtekna hughreystingu í átröskunum. (4) Meðferðarinngrip sem tekur á endurtekinni hughreystingu við átröskunum þróað og árangursmetið.
Niðurstöður: Niðurstöður munu leggja grunn að auknum fræðilegum skilningi á viðhaldsþáttum átraskana og styðja við þróun marvissari og árangursríkari meðferðar.
Vímuefnaneysla sem viðbragð við vanlíðan? Ástæður neyslu meðal fólks með geðrofsraskanir
Birta Brynjarsdóttir, Brynjar Halldórsson1,2, Brynja B. Magnúsdóttir1,2, Ólína G. Viðarsdóttir², Jón Friðrik Sigurðsson¹
¹Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík ²Landspítali
birtabr@landspitali.is/birtab@ru.is
Bakgrunnur: Samhliða vímuefnavandi er algengur hjá fólki með geðrofsraskanir og tengist verri klínískum horfum. Þessi hópur glímir oftar við alvarlegri geðrofseinkenni, lakari meðferðarheldni og verri lífsgæði en fólk með geðrofsröskun án vímuefnavanda. Meðferðarárangur er oft takmarkaður og íhlutanir sem sýnt hafa árangur við vímuefnavanda eða geðrofseinkennum virðast ekki skila sama árangri þegar þessi vandi fer saman. Aukinn skilningur á ástæðum vímuefnaneyslu gæti nýst til að þróa markvissari meðferð.
Markmið: Að auka skilning á ástæðum vímuefnaneyslu meðal fólks með geðrofsraskanir með kerfisbundinni samantekt á fyrirliggjandi rannsóknum.
Aðferð: Framkvæmd var kerfisbundin leit í alþjóðlegum gagnagrunnum. Innifaldar voru rannsóknir á fullorðnum einstaklingum með geðrofsraskanir þar sem sjálfsskýrðar ástæður eða tilgangur vímuefnaneyslu voru metnar með megindlegum eða eigindlegum aðferðum.
Niðurstöður: 25 rannsóknir uppfylltu skilyrði. Þátttakendur notuðu vímuefni til að draga úr kvíða, þunglyndi og streitu, slaka á og takast á við leiða, einmanaleika, svefnvanda og tómleika. Einnig til að draga úr röddum, tortryggni eða ofsóknarhugmyndum. Félagslegar ástæður og ástæður tengdar vellíðan, vímu eða auknu sjálfstrausti voru einnig algengar, en höfðu almennt minna vægi en ástæður tengdar vanlíðan og tilfinningastjórnun. Rannsóknir bentu jafnframt til að ástæður tengdar tilfinningastjórnun tengdust alvarlegri geðrænum einkennum, einkum geðrofs- og þunglyndiseinkennum, verri sálfélagslegri virkni og alvarlegri vímuefnavanda.
Ályktanir: Vímuefnaneysla meðal fólks með geðrofsraskanir virðist oft gegna hlutverki bjargráðs gagnvart vanlíðan og stundum geðrofseinkennum. Niðurstöðurnar benda til að meðferð þurfi ekki eingöngu að beinast að neyslunni heldur einnig þeim þáttum er viðhalda henni. Slík nálgun gæti stuðlað að markvissari og árangursríkari meðferð fyrir fólk með tvígreiningu.
Stafrænar tæknilausnir við kvíðavanda – Tækifæri, áskoranir og framtíðarsýn
Brynjar Halldórsson1,2,3
1Geðþjónusta Landspítala, 2Háskólinn í Reykjavík, Sálfræðideild, 3University of Oxford, Department of Psychiatry
brynjarh@landspitali.is / brynjarha@ru.is
Inngangur: Stafrænar geðheilbrigðistæknilausnir hafa vaxandi hlutverk innan heilbrigðiskerfa og bjóða upp á aukið aðgengi, skilvirkni og sveigjanleika í meðferð. Samhliða þessum tækifærum eru flókin innleiðingarferli sem geta haft áhrif á árangur. Þetta erindi fjallar um þróun, innleiðingu og mat á ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka (FLIKK), fyrstu stafrænu heilbrigðistæknilausninni sem þróuð hefur verið hér á landi og sú fyrsta sinnar tegundar sem fer í gegnum landsinnleiðingu innan íslenska heilbrigðiskerfisins.
Markmið: Að meta notagildi FLIKK sem stafræns meðferðarúrræðis fyrir börn með kvíðavanda, greina helstu flækjustig við þróun og innleiðingu lausnarinnar og leggja mat á árangur hennar í landsinnleiðingu. Leitast er við að svara því hvaða tæknilegir, skipulagslegir og mannlegir þættir styðja eða hindra árangursríka notkun stafrænnar meðferðar á landsvísu.
Aðferðir: FLIKK er stutt, foreldraleidd hugræn atferlismeðferð sem veitt er í gegnum internetið undir leiðsögn sálfræðings. Rannsóknarverkefnið byggir á blönduðu rannsóknarsniði. Gögnum er safnað um innleiðingarferli, árangur, þátttöku, notkun lausnarinnar, tæknilega framkvæmd og samþættingu við núverandi þjónustu. Eigindleg og megindleg gögn eru greind samhliða.
Niðurstöður: Gagnasöfnun er í gangi og verður næstu árin. Þær niðurstöður sem munu verða kynntar fjalla um upplifun og viðhorf notenda, notkunarmynstur, þátttöku og hvaða hópar sækja meðferðina. Jafnframt verða greindar niðurstöður sem varða framkvæmd, innleiðingu og aðgengi að meðferðinni.
Ályktun: FLIKK er fyrsta tæknilausnin í heiminum við kvíðavanda barna sem fer í gegnum landsinnleiðingu. FLIKK hefur möguleika til að styrkja geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn með kvíðavanda á landsvísu. Rannsóknin mun veita mikilvæga þekkingu á bæði meðferðarárangri og flækjustigum landsinnleiðingar stafrænnar geðheilbrigðistæknilausnar.
Áhrif semaglutide á líkamsþyngd og efnaskipti hjá einstaklingum með alvarlega geðsjúkdóma
Ingi Hrafn Guðbrandsson1, Magnús Haraldsson1,2, Rannveig Þöll Þórsdóttir2, Oddur Ingimarsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands 2Geðþjónusta Landspítala
Bakgrunnur: Einstaklingar með alvarlega geðsjúkdóma eru í aukinni hættu á að þróa með sér offitu, efnaskiptasjúkdóma og hjarta- og æðasjúkdóma, m.a. vegna áhrifa geðrofslyfja. Semaglutide hefur sýnt marktæk jákvæð áhrif á líkamsþyngd og efnaskipti í almennu þýði, en rannsóknir á áhrifum lyfsins hjá einstaklingum með alvarlega geðsjúkdóma eru takmarkaðar.
Markmið: Að meta áhrif semaglutide á líkamsþyngd og efnaskipti hjá einstaklingum með alvarlega geðsjúkdóma á geðrofslyfjameðferð og meta aukaverkanir lyfsins.
Aðferð: Afturskyggn ferilrannsókn notenda í meðferð í geðrofs-, samfélags-, geðhvarfateymi og á Laugarás meðferðargeðdeild sem hófu meðferð með semaglutide árin 2020-2026. Byggt var á upplýsingum úr sjúkraskrá. Lýsandi tölfræði var notuð til að kanna breytur tengdar meðferðinni.
Niðurstöður: Alls hófu 63 einstaklingar meðferð með semaglutide á tímabilinu. Upphafsþyngd var ekki skráð hjá 7 einstaklingum og samanstóð lokaúrtakið af 56 einstaklingum. 26 hættu á meðferð, þar sem helstu ástæður voru aukaverkanir og höfnun á greiðsluþátttöku. Karlar voru 57% þátttakenda. Þessir 56 einstaklingar hófu alls 77 sinnum meðferð. Meðalþyngd við upphaf meðferðar var 125 (SD ± 36 kg) og við lok meðferðar 115 (SD ± 36 kg). Reiknað meðalþyngdartap eftir 6 mánaða meðferð var 7.8 (SD ± 7,3 kg) (n = 64), með miðgildi 7,3, og eftir 12 mánaða meðferð 15,1 (SD ± 12,2 kg) (n = 33), með miðgildi 15,8.
Ályktun: Niðurstöður benda til þess að semaglutide meðferð hafi jákvæð áhrif á líkamsþyngd, þar sem einstaklingar léttust að meðaltali um 10 kg. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að tryggja aðgengi einstaklinga með alvarlega geðsjúkdóma að semaglutide meðferð.
Samsköpuð lífsstílsíhlutun í hjúkrunarstýrðri clozapine klíník: Rannsóknaráætlun fjölþrepa doktorsverkefnis
Rannveig Þöll Þórsdóttir¹,², Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir¹,², Oddur Ingimarsson¹,³, Marianne E. Klinke¹,², Steinunn Gróa Sigurðardóttir⁴, Brian Keogh⁵
¹Landspítali, ²Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, ³Læknadeild Háskóla Íslands, ⁴Háskólinn í Reykjavík, ⁵Trinity College Dublin
Bakgrunnur: Einstaklingar með alvarlegar geðrænar áskoranir búa við skertar lífslíkur sem tengjast m.a. fyrirbyggjanlegum líkamlegum sjúkdómum. Notkun clozapine eykur efnaskiptaáhættu og kallar á markvissan stuðning við líkamlega heilsu. Þrátt fyrir að lífsstílsíhlutanir geti borið árangur reynist innleiðing og viðhald breytinga krefjandi. Samsköpun getur verið lögð til grundvallar í þjónustuþróun, en er lítt rannsökuð í þessu samhengi.
Markmið: Að þróa og meta samskapaða, hjúkrunarstýrða lífsstílsíhlutun í clozapine klíník með það að markmiði að styðja við sjálfbæran lífsstílsstuðning.
Aðferðir: Rannsóknaráætlunin samanstendur af þremur samtengdum rannsóknum: (1) eigindlegri fýsileikarannsókn byggðri á ramma Bowen; (2) megindlegri útkomurannsókn með hálftilraunasniði; og (3) eigindlegri gagnrýninni þátttökurannsókn sem kannar reynslu af samsköpunarferlinu.
Niðurstöður: Gagnasöfnun fyrir fyrsta áfanga stendur yfir. Íhlutunin er 16 vikur og felur í sér einstaklingsviðtöl, hópastarf, jafningjastuðning og þverfaglegt samstarf. Niðurstöður fýsileikarannsóknar munu nýtast til frekari þróunar íhlutunarinnar áður en útkomumat fer fram. Í síðari áföngum verður m.a. skoðað hvort breytingar verði á vellíðan, bata, lífsstíl og líkamlegri heilsu.
Ályktanir: Íhlutunin byggir á grunngildum geðhjúkrunar, þar á meðal meðferðarsambandi, einstaklingsmiðaðri nálgun og batahugmyndafræði, og er þróuð í samstarfi við þjónustuþega og jafningja. Þrepaskipt hönnun styður við stigvaxandi þróun og lærdóm innan klínískrar framkvæmdar. Verkefnið miðar að því að styðja við sjálfbærari og samstarfsmiðaðri nálganir innan sérhæfðrar geðheilbrigðisþjónustu.
Virkni sem hluti af endurhæfingu á geðsviði: hvernig deildir geta nýtt hreyfingu, minnkað kyrrsetu og byggt á núverandi mannauði
Björn Orri Hermannsson
Geðþjónusta Landspítala
bjornoh@landspitali.is
Inngangur: Sjúklingar með alvarlega geðsjúkdóma búa oft við mikla kyrrsetu, litla hreyfingu og auknar líkur á lífsstílstengdum sjúkdómum. Nýjar klínískar yfirlitsgreinar benda til þess að hreyfing og minnkun kyrrsetu eigi að vera grunnstoð í geðþjónustu. Rannsóknir og reynsla íþróttafræðinga benda til þess að stærsta áskorunin sé oft ekki hvort virkni gagnist, heldur hvernig virkni verður framkvæmanleg í daglegu starfi.
Markmið: Að hjálpa deildum að sjá hag þess að nýta virkni í meðferðarlegum tilgangi, draga úr kyrrsetu og nýta fagþekkingu íþróttafræðinga ásamt þeim mannauði sem þegar er til staðar innan deilda geðþjónustu.
Aðferð: Byggt er á samþættingu ritrýndra yfirlitsgreina um hreyfingu, kyrrsetu og geðheilbrigði, ásamt þróunarvinnu, aðgerðaáætlun og vinnuskjölum um innleiðingu nýs starfs teymisstjóra íþróttafræðinga. Sérstök áhersla er á skimun, raunhæf fyrstu skref, sameiginlegt tungumál, fræðslu og samstarf við tengiliði á deildum til að aðlaga nálgun að mismunandi sjúklingahópum, rýmum og starfsaðstæðum.
Niðurstöður: Gögn styðja að hreyfing nýtist best þegar hún er studd af fagaðilum með sérþekkingu á hreyfingu, nálgun er einstaklingsmiðuð og hún er innleidd inn í meðferðaráætlun. Rannsóknir benda til þess að kyrrseta sé sjálfstæður áhættuþáttur sem huga þarf að, t.d. með kyrrseturofum og litlum raunhæfum skrefum. Innleiðing virkniúrræða verður líklegri til árangurs þegar deildir byggja á núverandi mannauði, hafa skýr hlutverk, tengiliði, einfalt flæði og sameiginlega ábyrgð.
Ályktanir: Virkni á ekki að vera aukaatriði í geðþjónustu heldur sýnilegur hluti bata og meðferðar. Erindið styður þá sýn að virkni verði eðlilegur hluti meðferðar þvert á geðþjónustu.
Fjölskylduíhlutanir í geðheilbrigðisþjónustu: Þarfir og reynsla aðstandenda einstaklinga með geðrofssjúkdóma
Snæfríður Jóhannesdóttir2, Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir1, Rannveig Þöll Þórsdóttir2
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Geðþjónusta Landspítala
Bakgrunnur: Geðrofssjúkdómar eru alvarlegir og langvinnir geðsjúkdómar sem hafa oft neikvæð áhrif á lífsgæði. Umönnun einstaklinga með geðrofssjúkdóma er gjarnan sinnt af aðstandendum. Umönnunarstörf aðstandenda geta haft neikvæð áhrif á líkamlega, tilfinningalega og félagslega heilsu þeirra. Fjölskylduíhlutanir í formi stuðnings og fræðslu hafa reynst árangursrík inngrip til að styðja í senn við einstaklinga með geðrofssjúkdóma og aðstandendur þeirra.
Markmið: Að varpa ljósi á þarfir aðstandenda og kanna hvaða fjölskylduíhlutanir eru árangursríkar til að mæta þeim þörfum. Jafnframt að nýta niðurstöðurnar til að þróa og innleiða fjölskylduíhlutanir í geðþjónustu Landspítala.
Aðferð: Stuðst var við rannsóknaraðferðina kerfisbundin blönduð heimildasamantekt sem sameinar eigindlegar- og megindlegar rannsóknir. Rannsóknarspurningin byggir á PICOT-viðmiðum. Leitað var að rannsóknum frá 2019-2025 í þremur gagnasöfnum. PRISMA flæðirit var notað við val og mat á rannsóknunum. Skilgreind inntöku- og útilokunarskilyrði ákvörðuðu val á rannsóknum. Greinarnar voru metnar með gæðamatsmælitæki JBI.
Niðurstöður: Tólf rannsóknir uppfylltu inntökuskilyrði: sex eigindlegar- og sex megindlegar rannsóknir. Þátttakendur voru aðstandendur einstaklinga með geðrofssjúkdóma. Heildarfjöldi var 476 einstaklingar, 70% konur og 30% karlar. Aldur var 23 til 88 ára. Aðstandendur upplifðu mikið álag og skort á stuðningi frá heilbrigðisþjónustunni. Fjölskylduíhlutanir reyndust árangursrík inngrip sem juku þekkingu þátttakenda á geðrofssjúkdómum, bættu lífsgæði þeirra og drógu úr umönnunarbyrði.
Ályktanir: Þörfum aðstandenda einstaklinga með geðrofssjúkdóma er ekki alltaf mætt. Fjölskylduíhlutanir bæta líðan aðstandenda og stuðla að betri umönnun einstaklinga með geðrofssjúkdóma. Hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í að veita aðstandendum einstaklinga með geðrofssjúkdóma stuðning og fræðslu. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar leggi áherslu á fjölskylduíhlutanir í sínu meðferðarstarfi.
Krefjandi hegðun og velferð starfsfólks: Skiptir ótti við samkennd máli?
Sólveig Fríða Kjærnested1,2, Berglind Sveinbjörnsdóttir³, Gísli Kort Kristófersson⁴, Halldóra Jónsdóttir1,2, Jon Taylor, Berglind Guðmundsdóttir1,2
Landspítali¹², Læknadeild Háskóla Íslands², Háskólinn í Reykjavík³, Háskólinn á Akureyri⁴
Bakgrunnur: Sjúklingar á legudeildum geðþjónustu glíma oft við flókinn geðvanda og geta sýnt krefjandi hegðun. Slíkar aðstæður geta haft neikvæð áhrif á velferð starfsfólks. Mikilvægt er að rannsaka nánar tengsl milli krefjandi hegðunar sjúklinga og velferðar starfsfólks. Rannsóknir hafa bent til þess að ótti við samkennd geti haft áhrif á velferð einstaklinga.
Markmið: Að kanna hvort tengsl milli tíðni krefjandi hegðunar sjúklinga (X) og velferðar starfsfólks (Y) séu miðluð af ótta við samkennd (M), þ.e. ótta við samkennd í eigin garð, gagnvart sjúklingum og frá öðrum.
Aðferð: Þátttakendur voru 159 starfsmenn á legudeildum geðþjónustu. Tíðni krefjandi hegðunar var mæld með sjálfsmatskvarða, velferð starfsfólks með DASS-21 (þunglyndi, kvíða og streitu) og BAT (kulnun), og ótti við samkennd með Fears of Compassion Scale, (hræðslu við samkennd í eigin garð, til sjúklinga og frá ). Til að kanna miðlunaráhrif var notuð aðferð Barons og Kenny (1986) og Sobel-próf.
Niðurstöður: Ekki fundust marktæk tengsl á milli tíðni krefjandi hegðunar og ótta við samkennd í eigin garð eða gagnvart sjúklingum. Marktæk tengsl fundurst milli tíðni krefjandi hegðunar og ótta við samkennd frá öðrum (B =1.38, t(156) = 2.80, p<.006) og miðlaði sú breyta að fullu tengslunum milli tíðni krefjandi hegðunar og þunglyndis, að hluta til kvíða og kulnun. Samkvæmt Sobel (1982) prófinu þá er hlutfallsleg miðlun kvíða 35%, streitu 29% og kulnun 27%.
Ályktun: Niðurstöðurnar benda til þess að ótti starfsfólks við að þiggja samkennd frá öðrum geti haft áhrif á hvernig krefjandi hegðun sjúklinga tengist velferð þeirra. Að efla menningu samkenndar innan teymis gæti dregið úr neikvæðum áhrifum krefjandi hegðunar á líðan starfsfólks á legudeildum geðþjónustu.
Að allir komi heilir heim: Stuðningur við starfsfólk Geðþjónustu Landspítala eftir alvarleg atvik.
Hjördís B. Tryggvadóttir
Geðþjónusta Landspítala
hjordbt@landspitali.is
Upphaf aðkomu höfundar að stuðningi við starfsfólk eftir alvarleg atvik má rekja til ársins 2017, en þá urðu tvö alvarleg atvik á legudeild við Hringbraut. Áður hafði höfundur unnuið í stuðnings og ráðgjafateymi spítalans og í teymi Neyðarmóttöku vegna kynferðisofbeldis. Þarna hafði orðið til þekking á stuðningi við starfsfólk og á áföllum og afleiðingum þeirra. Við úrvinnslu atvikanna 2017 varð til grunnur að þekkingu og reynslu sem hefur leitt til þess að alloft hefur verið óskað eftir aðkomu höfundar eftir alvarleg atvik í Geðþjónustunni.
Það geta verið krefjandi verkefni sem mæta starfsfólki Geðþjónustunnar, allt frá álagi við að sinna mjög veiku fólki sem fær meðhöndlun gegn vilja sínum, verða fyrir ofbeldi eða verða vitni að ofbeldi og koma að alvarlegum sjálfsskaða, sjálfsvígstilraunum og sjálfsvígum. Allt er þetta reynsla sem reynir á starfsfólk og mikilvægt er að bjóða uppá ólíkar leiðir fyrir starfsfólk til að vinna úr reynslu sem þessari þannig að allir komi heilir heim á sál og líkama.
Í erindinu verður fjallað um þróun á aðkomu sálfræðinga að stuðningi við starfsfólk eftir alvarleg atvik í Geðþjónustunni. Rætt verður um hvaða atriði er mikilvægt að hafa í huga eftir eðli atvika þegar metið er hverskonar stuðning starfsfólk þarf. Þetta getur verið allt frá jafningjastuðningi samstarfsfólks og stuðningi frá yfirmanni yfir í aðkomu fagaðila með góða þekkingu á áfallaeinkennum í kjölfar þungbærrar reynslu og fræðslu um hjálpleg bjargráð til að auka líkur á farsælli úrvinnslu reynslunnar.
Innleiðing Bröset matslistans á Legudeild Geðrofssjúkdóm
Hrafnhildur Benediktsdóttir, Guðfinna Betty Hilmarsdóttir, Katrín Blöndal og Amelia Samuel
Landspítali
Bakgrunnur: Bröset matslistinn er gagnreynt skimunartæki sem metur hættu á ofbeldi eða árásargirni hjá sjúklingum næstu 24 klukkustundir. Bröset hefur verið í notkun á geðgjörgæslu og RÖG, en verður innleitt á allar legudeildir geðþjónustu. Deild 33A var pilot-deild innleiðingar. Á deildinni hafði notkun listans verið ómarkviss og mat oftast framkvæmt þegar sjúklingur var orðinn æstur. Þetta gat valdið seinkuðum viðbrögðum og aukið líkur á ofbeldisatvikum og þvingun. Þörf var á markvissri innleiðingu og samræmdri notkun matslistans.
Markmið: Markmið verkefnisins var að auka hlutfall inniliggjandi sjúklinga á deild 33A með virkt Bröset mat (styttra en 8 klukkustundir) í ≥90% innan þriggja mánaða. Jafnframt var stefnt að því að efla skilning starfsfólks á notagildi Bröset sem stuðningstæki við klíníska ákvarðanatöku og fyrirbyggjandi meðferð.
Aðferð: Aðferðarfræði Model for Improvement með endurteknum PDSA-hringjum (Plan-Do-Study-Act) var notað. Framkvæmdar voru ferlimælingar þar sem fylgst var reglulega með hlutfalli sjúklinga með virkt Bröset mat. Íhlutanir fólust í fræðslu til starfsfólks á íslensku og ensku, skýrri vinnulýsingu um framkvæmd matsins, áminningum og reglulegri endurgjöf um árangur með sýnilegum hætti á deild.
Niðurstöður: Innleiðingin skilaði skjótum og varanlegum árangri. Eftir fyrstu umbótahringina sást marktæk hækkun á hlutfalli virkra Bröset mata og átta samfelldar mælingar yfir miðgildi bentu til raunverulegrar breytingar á ferlinu. Meðalhlutfall virkra mata eftir innleiðingu var 94,7% og markmið verkefnisins náðist. Starfsfólk tók verkefnið smám saman að sér og sameiginleg ábyrgð jókst.
Ályktanir: Markviss innleiðing Bröset matslistans jók notkun listans verulega og bætti samræmi í framkvæmd áhættumats. Verkefnið undirstrikar að breytingar á vinnulagi taka tíma og að mælingar geti sjálfar verið áhrifarík íhlutun. Niðurstöðurnar nýtast við frekari innleiðingu Bröset á legudeildum geðþjónustu.
Innlagnir ferðamanna á geðdeildir á Íslandi 2004-2024
Harpa Dís Hákonardóttir1, Engilbert Sigurðsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Geðþjónusta Landspítala
Inngangur: Innlögnum ferðamanna á geðdeildir hér á landi hefur fjölgað í takt við aukinn fjölda ferðamanna á síðustu tveimur áratugum. Á sama tíma hefur fjöldi innlagnarplássa dregist saman þrátt fyrir mikla fólksfjölgun. Skortur á baklandi og þekkingu á hvert er best að leita við slíkar aðstæður gera veikindin flókin viðureignar auk tungumálaþröskulds.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var lýsandi faraldsfræðirannsókn sem náði yfir tímabilið 1. janúar 2004 - 31. desember 2024. Allar innlagnir ferðamanna á geðdeildir Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri á rannsóknartímabilinu voru yfirfarnar og nýgengi innlagna á geðdeildir hér á landi reiknað á hverja 100.000 ferðamenn á ári.
Niðurstöður: Alls var um 256 innlagnir 230 ferðamanna að ræða, 57% karlar. Flestir ferðamannanna voru á aldrinum 18-29 ára, 36,9%. Meðalinnlagnafjöldi ferðamanna á geðdeildir á ári óx úr 7,5 á fyrsta fjórðungi tímabilsins, 2004-2009, í 17,4 á síðasta fjórðungi tímabilsins, 2020-2024. Nýgengi innlagna, þar sem leiðrétt er fyrir fjölda ferðamanna á ári, lækkaði hins vegar á sama tíma úr 1,7/100.000 2004-2009 í 1,17/100.000 2020-2024. Það bendir til hækkunar innlagnarþröskulds vegna vaxandi skorts á innlagnarrýmum og/eða áhrifa annarra breytinga í þjónustu eins og upptöku bráðaeftirfylgdar í bráðamóttöku. Miðgildi lengdar innlagna var 5 dagar (IQR 3,10; spönn 1,98). Geðrofsveikindi voru algengasta innlagnarástæðan (n=119, 46,5%), en lyndisraskanir næstalgengastar (n=68, 26,5%).
Ályktanir: Hærra hlutfall bráðra geðrofsveikinda og lægra hlutfall innlagna á geðdeildir á hverja 100.000 ferðamenn í þessari rannsókn en í flestum erlendum rannsóknum bendir til þess að of margar hindranir séu í vegi innlagnar hjá ferðamönnum sem veikjast á geði hér á landi.
Hverjir leita til Heilaheilsu eftir heilahristing? Lýsing á hópnum og árangursmat.
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir1, Karl Fannar Gunnarsson2, Rafn Haraldur Rafnsson1, Indíana Lind Gylfadóttir2, Ásgeir Kristjánsson2
1Heilaheilsa, 2Háskóli Íslands
olina@heilaheilsa.is
Inngangur: Talið er að allt að 30% fái heilahristing einhvern tímann á lífsleiðinni. Erlendar rannsóknir benda til þess að um 65-70% af þeim þrói með sér langvarandi einkenni en lítið er vitað um þennan hóp hér á landi. Rannsóknir sýna að snemmtæk sérhæfð inngrip hafi jákvæð áhrif á bata en takmarkað framboð er af slíkri meðferð hér á landi og skortur er á rannsóknum á langtímaafleiðingum heilahristings og árangri meðferðarúrræða.
Markmið: Að lýsa þeim hópi sem leitar til Heilaheilsu vegna heilahristingseinkenna, skoða breytingar á alvarleika og fjölda heilahristingseinkenna og hvað spáir fyrir breytingu á einkennum.
Efniviður og aðferðir: Um er að ræða afturskyggða langtímarannsókn á 410 einstaklingum sem sóttu þjónustu hjá Heilaheilsu vegna heilahristingseinkenna á tímabilinu 2021 til 2026. Allir þátttakendur fylltu út sjálfsmatslista fyrir fyrsta viðtal sem innihélt meðal annars spurningar um lýðfræðilegar upplýsingar, fyrri greiningar, svefn, fyrri þjónustu sem og DASS-21, SCAT-5 einkennalisti, PCL-5, og CP-SCREEN. Inngripið fólst í 75 mínútna viðtali hjá sérfræðingi í klínískri sálfræði þar sem vandi var kortlagður, fræðsla veitt og tillögur að næstu skrefum í meðferð settar fram. Þar að auki fengu þátttakendur aðgang að netfræðslu og meðferðarhandbók. Hluti þátttakenda kom í annað viðtal og svaraði SCAT-5 einkennalista.
Niðurstöður og ályktun: Í erindinu verða frumniðurstöður kynntar, ýmsir þættir rannsóknarinnar ræddir og tillögur að frekari rannsóknum settar fram. Rannsóknin getur gefið mikilvægar upplýsingar um þennan skjólstæðingahóp, mögulegan árangur af nýju sérhæfðu inngripi Heilaheilsu, sem og gefa vísbendingar um helstu þarfir í meðferð langvarandi heilahristingseinkenna.
Árangur hugrænnar atferlismeðferðar fyrir háskólanemendur sem greinst hafa með ADHD
Sylvía Ingibergsdóttir1, Eiríkur Örn Arnarson2, Landspítali Erla Kolbrún Svavarsdótir2
Geðþjónusta Landspítala1, Háskóli Íslands 2
Bakgrunnur: Athyglisbrestur með ofvirkni (ADHD) getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf og hamlandi áhrif á bæði nám og starf. Lyfjameðferð hefur oft verið eina meðferðarúrræðið fyrir fullorðna sem greinst hafa með ADHD, en úrræðið gagnast hins vegar ekki hluta þessa hóps. Því er mikilvægt að kanna mögulega gagnsemi annarra meðferða, svo sem hugrænnar atferlismeðferðar, sem hefur reynst árangursrík við sumum öðrum geðröskunum.
Markmið: Kanna áhrif hugrænnar atferlismeðferðar á einkenni ADHD fyrir háskólanema með ADHD. Einnig voru skoðuð áhrif á fylgikvilla ADHD, þ.e. þunglyndis, kvíða, neikvæðra hugsana og trú á eigin getu.
Aðferð: Um slembiraðaða tilraunarannsókn var að ræða þar sem sjötíu og fjórum háskólanemum sem höfðu verið greindir með ADHD var skipt með slemibiúrtaki í tvo hópa. Auglýst var eftir þátttakendum í tveimur háskólum í Reykjavík. Annar hópurinn fékk hugræna atferlismeðferð sem veitt var í hóptímum, einu sinni í viku í sex vikur, 90 mínútur í senn. Hinn hópurinn fékk ekkert inngrip, en var boðin þátttaka í hópmeðferð síðar. Sumir þátttakendur voru á lyfjameðferð, aðrir ekki.
Niðurstöður: Marktæk minnkun á einkennum ADHD sem og einkennum fylgikvilla þunglyndis og neikvæðra hugsana í meðferðarhópnum samanborið við samanburðarhópinn. Einnig var marktæk hækkun á kvarða sem mælir trú á eigin getu.
Ályktanir: Hugræn atferlismeðferð fyrir háskólanema sem greinst hafa með ADHD getur dregið úr einkennum ADHD og einkennum þunglyndis og neikvæðum hugsunum, með eða án lyfjameðferðar. Vísbendingar voru um að lyfjameðferð auki áhrif hugrænu atferlismeðferðarinnar.
Bættar útskriftir úr eftirfylgd á Bráða- og ráðgjafarþjónustu geðsviðs– Gæðaverkefni
Þórey Rósa Einarsdóttir
Geðþjónusta Landspítala
Bakgrunnur: Fagaðilar Bráða- og ráðgjafarþjónustu geðsviðs sinna stuttri eftirfylgd einstaklinga sem komið hafa á Bráðamóttöku geðþjónustu vegna geðræns vanda. Eftirfylgdin er skammtíma úrræði í 1-4 skipti og háð alvarleika vanda. Við útskrift fá sjúklingar ráðleggingar og leiðbeiningar um næstu skref. Ekki hefur verið til staðlað form fyrir útskriftir en rannsóknir sýna að vandaðar leiðbeiningar við útskrift geta fækkað endurkomum, bætt meðferðarheldni og aukið ánægju sjúklinga.
Markmið: Innleiða skriflegar útskriftarleiðbeiningar fyrir sjúklinga sem útskrifast úr bráðri eftirfylgd. Á tímabilinu frá október 2025 – mars 2026 var stefnt að 80% útskrifta innihéldi eyðublaðið „bréf til sjúklings“ með formlegum leiðbeiningum og ráðleggingum til sjúklings.
Aðferð: Innleiðingunni var stýrt í gegnum A3 verkefnastjórnunar tækni. Vandamál voru greind og árangur mældur reglulega. Flýtitexti var hannaður til að samræma verklag.
Niðurstaða: Á innleiðingar tímabilinu nýttu fagaðilar bráða- og ráðgjafarþjónustu sér í auknum mæli flýtitextann og fleiri sjúklingar fengu skriflegar leiðbeiningar við útskrift. Upphaflegu markmiði um fjölda útskriftabréfa náðist og eru skriflegar útskriftarleiðbeiningar nú hluti af verklagi fyrir úrræðið.
Ályktun: Markviss innleiðing gæðaverkefnis með verkefnastjórnunartæki A3 styður við markmiðasetningu og árangur.
Notendastýrðar stuðningsinnlagnir á Landspítala – þróun verklags og innleiðing
Ragnheiður H. E. Bjarman
Geðþjónusta Landspítala
ragnheei@landspitali.is
Bakgrunnur: Notendastýrðar stuðningsinnlagnir (NS) eru hjúkrunarstýrðar, tímabundnar innlagnir þar sem þjónustuþegi getur óskað eftir 2–3 nátta dvöl á geðdeild við versnandi líðan, áður en brátt ástand skapast. NS hafa verið í notkun á Geðsviði Landspítala frá 2015, einkum fyrir einstaklinga með tilfinningalegan óstöðugleika. Skortur var þó á samræmdu verklagi, formlegu gæðaskjali og skráningarkerfi sem styður gagnasöfnun.
Markmið: Að staðla framkvæmd NS, efla öryggi þjónustuþega og starfsfólks, styrkja samvinnu milli legu- og göngudeilda og leggja grunn að gæðaeftirliti og rannsóknum.
Aðferð: Verkefnið var unnið þverfaglega með þátttöku DAM-teymis, legudeilda og gæðastjóra. Stuðst var við alþjóðlegar bestu starfsvenjur, m.a. frá Svíþjóð og Bretlandi, með sérfræðiráðgjöf frá Dr. Joachim Eckerström við Karolinska Institutet. Þróað var heildstætt gæðaskjal með viðaukum, þar á meðal stöðluðum samningi, upplýsingablaði, lýsingu á upphafsfundi og leiðbeiningum um skráningu. Nýtt skráningarmerki [STU] var innleitt í sjúkraskrárkerfi. Einnig var þróað þjálfunarefni, þar á meðal netnámskeið og vasakort.
Niðurstöður: Verklagið tryggir skýrar aðgangsleiðir, samræmda samningagerð í tengslum við göngudeildarteymi og staðlað viðbragð við krefjandi aðstæðum. Þjálfun er hafin og gæðamat í gangi. Verkefnið sýnir að hægt er að innleiða hjúkrunarstýrt úrræði á kerfisbundinn hátt með hliðsjón af alþjóðlegum viðmiðum.
Ályktanir: Staðlað verklag fyrir NS-innlagnir er mikilvægt skref í átt að öruggari og samræmdri geðþjónustu. Kerfisbundin nálgun með samningum, skráningu, þjálfun og gæðaeftirliti eykur öryggi og gagnsæi og getur nýst öðrum stofnunum við innleiðingu sambærilegra úrræða.
Notendaráð styður við sjálfbæra innleiðingu jafningjastuðnings á Landspítala
Nína Eck, Halldóra Friðgerður Víðisdóttir
Geðþjónusta Landspítala
ninaa@landspitali.is, halldorafv@landspitali.is
Inngangur: Jafningjastuðningur hefur verið hluti af þverfaglegu samstarfi í Geðþjónustu Landspítala í 5 ár. Útbreiðsla starfsins hefur verið hröð og eru nú 8 starfandi jafningjar á 7 einingum. Jafningjastuðningur er veittur á legu og göngudeildum og hefur haft áhrif á ákvarðanatöku og notendasamráð innan þjónustunnar, auk þess að minnka fordóma í garð notenda.
Markmið: Að auka notendasamráð, minnka fordóma og jaðarsetningu geðveikra (e. mad) í samfélaginu.
Aðferð: Hugmyndafræði Intentional Peer Support er grunnurinn að jafningjastarfi á Landspítala. Innihald hennar miðar að því að horfa á notendur geðheilbrigðisþjónustu sem pólítískt jaðarsettan hóp. Stjórnendur Geðþjónustu settu völd í hendur fyrrum notenda með því að hlusta á sjónarhorn þeirra, bjóða þeim að taka þátt í úrbótastarfi og með því að jafningjar fræði fagfólk um sjónarhorn notenda.
Niðurstöður: Innleiðing jafningjastuðnings á einingar Geðþjónustu Landspítala hefur gengið vel og eru jafningjar starfandi á 7 innlagnar- og göngudeildum. Þeir eru hluti af þverfaglegu samstarfi, eru álitsgjafar í umbótaverkefnum og taka virkan þátt í fræðslu og kennslu fagaðila í Geðþjónustu. Mikil ánægja er með þessa viðbót í þjónustunni, bæði á meðal sjúklinga og starfsfólks.
Ályktanir: Jafningjastuðningur er mikilvæg viðbót við þverfaglegt samstarf í geðheilbrigðisþjónustu og mætti draga þá ályktun að gífurlegt traust stjórnenda og sterkt notendasamráð hafi orðið til þess að innleiðing hefur gengið mjög hratt. Jafningjar eru stétt álitsgjafa, málsvara, stuðningsaðila og aktívista sem hafa mótað sér mikilvægan sess innan Geðþjónustu Landspítala.