Stöðuauglýsingar
Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Hvammi
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Hvammi. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nýsköpun og framþróun. Til greina kemur að ráða áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sérnámslæknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og riturum. Heilsugæslunni Hvammier fyrst og fremst ætlað að veita íbúum Kópavogs þjónustu en allir eru velkomnir á stöðina.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu og kennslu nema. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Hæfniskröfur
· Íslenskt lækningaleyfi
· Sérfræðimenntun í heimilislækningum
· Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
· Reynsla af kennslu er æskileg
· Góð hæfni í mannlegum samskiptum
· Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
· Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
· Góð almenn tölvukunnátta
· Íslenskukunnátta skilyrði
· Góð enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í
starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Umsóknarfrestur er til og með 12.03.2026
Nánari upplýsingar veita Sigrún Kristín Barkardóttir, forstöðumaður-Sigrun.Kristin.Barkardottir@heilsugaeslan.is Guðný Ásgeirsdóttir, fagstjóri lækninga-gudny.asgeirsdottir@heilsugaeslan.is
