09. tbl. 90. árg. 2004

Gifs og tóm glös

Í minnisprófi

Farið var að slá út í fyrir gömlu konunni og læknirinn var að reyna að átta sig á því hversu vel áttuð hún væri. Dóttir konunnar var henni til halds og trausts en hélt sér til hlés. Skyndilega fór píptæki læknisins í gang og hann brá sér út úr herberginu. Gamla konan sneri sér að dótturinni og sagði: "Svona, vertu nú snögg, hvaða dagur er í dag?"

"Af hverju spyrðu?" spurði dóttirin.

"Ég er viss um að læknirinn spyr mig um það næst," sagði sú gamla.

Fljót að fæða

Það var komið fram yfir áætlaðan fæðingardag. María ætlaði svo sannarlega að hafa vaðið fyrir neðan sig í þetta skipti og flýtti sér upp á fæðingardeild um leið og hún fann fæðingarhríðarnar byrja. Hún komst inn á fæðingarganginn og var á leið inn á fæðingarstofuna í hjólastól þegar kollur kom í ljós. Konunni var mjög brugðið og fór öll hjá sér.

"Þetta er nú ekkert til að skammast sín fyrir," sagði ljósmóðirin hughreystandi. "Það var nú ein sem fæddi barn í bíl úti á bílaplani í fyrra." Þá brast konan í grát og sagði: "Það var einmitt ég."

Þvagi safnað

Eiginmaður sem var yfirleitt talsmaður þeirra hjóna hringdi á rannsóknastofuna og sagði við meinatækninn. "Konan mín er að safna sólarhringsþvagi til rannsóknar. Hún er búin að bíða í tuttugu og þrjár klukkustundir með að pissa og nú getur hún ekki beðið lengur."

Gifsið af

lbl-forsida 7-2004Áttræður karlmaður kom í endurkomutíma á slysadeild eftir handleggsbrot á hægri og hélt á gifsinu í vinstri hendinni. Maðurinn greindi frá því að fyrr um daginn hefði eiginkonan sagað gifsið af handleggnum. Sjúkraliðinn spurði manninn af hverju hann hefði ekki beðið með að láta fjarlægja gifsið þangið til hann kæmi í endurkomuna. "Ég hef þekkt konuna mína yfir sextíu ár og treysti henni fullkomlega. Ég þekki þig hins vegar ekki neitt."

Tómt glas

Kandídat á lyflækningadeild var orðinn illa lúinn og lítt sofinn í lok strangrar vaktar. Hann fyllti út beiðni fyrir rannsókn á saursýni en var svo óheppinn að beiðnin var send af stað á rannsóknastofuna með tómu saursýnisglasi. Húmoristi á rannsókn gat ekki setið á sér og sendi svar til baka: "Aðeins prump í glasinu."

Fyrir nokkrum áratugum

Kona sem var komin hátt á fimmtugsaldurinn og búsett á bóndabæ í afdal norðan heiða kom í kaupstað til að fæða fjórtánda barn sitt á sextán árum. Ungi læknirinn sem tók á móti hjá konunni spurði hana eftir fæðinguna hvort hún vildi eitthvað af getnaðarvörnum vita eða jafnvel fara í ófrjósemisaðgerð. Konan horfði undrandi á lækninn og spurði: "Og sleppa fríinu mínu?"

Vindlosun

Sjúklingur sem var lagður inn með þarmastíflu fór loksins að rétta úr kútnum fjórum dögum eftir komu á spítalann, án þess að til aðgerðar kæmi. Starfsfólki deildarinnar létti mjög þegar það spurðist að sjúklingurinn hefði leyst vind og leyfði sér meira að segja að gleðjast yfir því. Hjúkrunarfræðingur á kvöldvakt kom til sjúklingsins og sagði: "Ég frétti að þú hefðir leyst vind í morgun." "Ja, það var annaðhvort ég eða sjúkraþjálfarinn," svaraði sjúklingurinn áhugalítill.

Ein örvhent

Sérfræðingur á kvennadeildinni var að leiðbeina aðstoðarlækni hvernig taka ætti krabbameinssýni frá leghálsi. Aðstoðarlæknirinn fylgdist gaumgæfilega með öllu og tók sérstaklega eftir því hvernig sérfræðingurinn beitti skoðunaráhaldinu.

"Ertu örvhent?" spurði aðstoðarlæknirinn.

Konan í skoðunarstólnum reisti sig upp með undrunarsvip og spurði: "Hvernig í ósköpunum gastu vitað það?"

Leiðbeininga þörf

Heimilislæknirinn rétti unga manninum þvagsýnisglas í plastpoka og bað hann um að koma með morgunþvag á rannsóknastofuna daginn eftir. Meinatæknirinn rak upp stór augu þegar maðurinn birtist með plastpokann fullan af hlandi og tómt glasið á floti í pokanum.

Hvaða stærð?

Faðir unglingsdrengs kom í Lyfju og bað um íþróttabindi fyrir soninn.

"Hvaða stærð?" spurði afgreiðslustúlkan.

Maðurinn hélt vísifingri og þumli rúma fimm sentimetra í sundur. "Um það bil svona."

"Nei, ég meina mittismálið," sagði stúlkan.

bjarni.jonasson@hg.is



Þetta vefsvæði byggir á Eplica