Umræða fréttir

Að standa vörð um hagsmuni stéttarinnar

Kæru félagar. Ég er ný í stjórn Læknafélags Íslands og spennt að taka þátt í starfinu en er ennþá óslípuð í rennslinu. Ég hef verið að velta því fyrir mér svona í upphafi stjórnarsetu hvernig félag LÍ sé? Hvernig er félagið uppbyggt, hvað á það að gera, hverjir eru sameiginlegir hagsmunir lækna, hvaða sérhagsmuni og réttindi er brýnast að standa vörð um? Er uppbygging félagsins rétt eins og hún er nú þannig að sem flestir félagsmenn finni sér stað sem þeir eru sáttir við?

Að standa vörð um hagsmuni félagsmanna er eitt höfuðmarkmið regnhlífarsamtaka eins og Læknafélags Íslands. Lesa meira
 

Eins og annað fólk

Evrópsku heimilislæknasamtökin, UEMO, hafa lagt heilmikla vinnu í að móta stefnu um jafnréttismál, jöfn tækifæri. Nefnd á vegum samtakanna, undir stjórn Christinu Fabian frá Svíþjóð, vann að stefnumótuninni og skilaði stefnumarkandi áliti og tillögum sem samþykktar voru samhljóða. Lesa meira
 

Skrifræði og fag í heilbrigðisþjónustu

Margir hafa áhyggjur af vaxandi skrifræði í heilbrigðisþjónustu þegar það er á kostnað fagmennskunnar. Nokkur dæmi um hvernig getur farið ef svo fer fram, verða nefnd hér. Lesa meira
 

Læknadeild Háskóla Íslands: Numerus Clausus lagður niður - Nýtt inntökupróf verður tekið upp í vor

Á síðastliðnu ári var ákveðið að breyta reglum um inntöku nýnema í læknadeild Háskóla Íslands og taka upp inntökupróf að sumri í stað þess að beita Numerus Clausus á miðju fyrsta ári námsins eins og verið hefur. Lesa meira
 

Af lyfjakynnum og líflækni Viktoríu drottningar

Í síðasta Læknablaði andaði köldu að norðan frá Pétri Péturssyni í garð lyfjafyrirtækja, og um samskipti starfsmanna þeirra við lækna. Lesa meira
 

Fjömennasta árshátíð LR frá upphafi

Árshátíð Læknafélags Reykjavíkur var haldin laugardaginn 19. janúar á Broadway-Hótel Ísland í lok Læknadaga. Þátttaka var mjög góð og komu 645 gestir en það er besta þátttaka á árshátíð í sögu félagsins. Lesa meira
 

Frá Læknadögum Hjálækningar, steratröll - og svo ball á eftir

Það fer ekkert á milli mála að Læknadagar eru einn veigamesti þátturinn í fræðslustarfi og jafnframt félagslífi lækna. Í heila viku eru þeir í félagsskap kollega og ræða fagið, fræðast um nýjungar og skiptast á skoðunum. Lesa meira
 

Þegar læknirinn breytist í sjúkling

- Fróðlegt og velheppnað málþing um veikindi, starfslok og annan vanda sem læknar lenda í ekki síður en aðrar stéttir



Hver á að græða græðarann þegar hann veikist eða verður af öðrum ástæðum ófær um að gegna störfum sínum? Hvernig bregðast læknar við þegar þeir breytast í sjúklinga? Hvernig gengur að samræma læknisstarfið fjölskyldulífinu og hvenær eiga læknar að hætta að lækna? Þessum spurningum velti fullur salur af læknum fyrir sér einn eftirmiðdag á Læknadögum. Lesa meira
 

Þrúgur reiðinnar

Nafn þessarar greinar, þrúgur reiðinnar, er bókmenntaleg skírskotun. Ég ætla að fjalla um reiðina í samskiptum fólks, ekki sízt reiði sem komið getur upp í samskiptum læknis og sjúklings, og minnast á mikilvægi bókmennta fyrir önnum kafna lækna. Lesa meira
 

Eðlilegt að ferliverkin flytjist út á stofurnar - Rætt við Guðmund Inga Eyjólfsson á Læknasetrinu í Mjódd

Í undanförnum tölublöðum hefur verið fjallað nokkuð um þær breytingar sem eru að verða á heilbrigðisþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu. Lesa meira
 

Reglur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs sjúkrahúslækna og heilsugæslulækna

Fjölskyldu og styrktarsjóður sjúkrahúslækna og heilsugæslulækna er stofnaður annars vegar með kjarasamningi Læknafélags Íslands við sjúkrahúslækna og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og St Fransiskusspítala og hins vegar með úrskurði kjaranefndar við heilsugæslulækna. Lesa meira
 

Smásjáin 1

Kulnun í starfi

Vinnueftirlitið gengst fyrir málþingi um kulnun í starfi í Norræna húsinu 8. febrúar nk. Lesa meira
 

Tímarit á sviði taugalæknisfræði: Krefjast yfirlýsingar um frelsi höfunda

Ritstjórar 14 leiðandi tímarita á sviði taugalækninga hafa ákveðið að krefjast þess af höfundum fræðigreina að þeir undirriti yfirlýsingu þess efnis að þeir hafi óskoraðan rétt til að birta öll sín rannsóknargögn og niðurstöður og að þeir þurfi ekki að leita leyfis þess sem fjármagnar rannsóknina. Lesa meira
 

Íðorð 141: Endurkoma sjúkdóms

Tryggvi Stefánsson læknir hringdi fyrir nokkru síðan og óskaði eftir umfjöllun um recurrence, endurkomu sjúkdóms eða einkenna. Lesa meira
 

Faraldsfræði í dag Aldursstöðlun

Aldur er oft mjög sterkur raskandi þáttur í faraldsfræðilegum rannsóknum og getur haft mikil áhrif á niðurstöður, svo sem dánartíðni (mortality rate) og nýgengi sjúkdóma. Lesa meira
 

Lyfjamál 101: Lyf við sársjúkdómi (A02B)

Þrátt fyrir að notkun á címetidíni og ranitidíni fari nú jafnt og þétt minnkandi heldur kostnaður vegna lyfja við sársjúkdómi stöðugt áfram að hækka eins og sjá má á súluritinu hér að neðan. Lesa meira
 

Broshorn 23: Af litlum körlum og hausverk

"Læknir, þú mátt til með að hjálpa mér. Ég get bókstaflega ekkert sofið af því að það er fullt af litlum körlum sem eru á fleygiferð undir rúminu mínu alla nóttina," sagði konan og var greinilega áhyggjufull. Lesa meira
 



Flýtival


Þetta vefsvæði byggir á Eplica