Á undanförnum vikum hafa fleiri ungmenni látið lífið og örkumlast í umferðarslysum hér á landi en dæmi eru um í annan tíma. Landsmenn eru slegnir óhug við þessa atburði, leita skýringa og jafnvel sökudólga í hverju einstöku tilviki og komast oftar en ekki að þeirri niðurstöðu að slysinu hefði mátt afstýra, ef einhver hefði hagað sér á annan veg en raunin varð.
Lesa meira