Vísinda- og gæðaverkefni heimilislækna í bland við nýsköpun og grósku

Þann 8.-9. október síðastliðinn var haldið 18. Vísindaþing Félags íslenskra heimilislækna í Gamla bíói. Þingið er haldið annað hvert ár og síðan sérnám í heimilislækningum hófst hér á landi er venja að heiðra þar nýja sérfræðinga í faginu
Fræðsludagskráin í ár var fjölbreytt og áhugaverð þar sem meðal annars voru kynnt 18 vísinda- og gæðaverkefni sérfræðinga og sérnámslækna í heimilislækningum. Dagskráin bar vitni um þá mikilvægu grósku sem skapast í samstarfi sérnámsins, akademíunnar og Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu til framfara og nýsköpunar innan fagsins. Fjallað var um andspyrnu gegn oflækningum en einnig mikilvægi heilsueflingar til að draga úr þróun langvinnra veikinda.
Fjögur verkefni tengdust ólíkum tæknilausnum til að auka skilvirkni í skráningu og einfalda pappírsvinnu heimilislækna. Einnig var fjallað um hvernig nýta mætti ómun í daglegu starfi. Gæðaverkefnin voru fjölmörg og snéru meðal annars að eftirliti með sykursýki 2 sem og meðgöngusykursýki, háþrýstingseftirliti og meðferð við járnofhleðslu. Þá var einnig fjallað um mígreni í börnum, þvagsýrugigt, tengsl næturvaktavinnu við svefnvanda, árstíðasveiflur í líðan, kæfisvefnsskimun, ávísun sýklalyfja, árangur lífstílssmóttöku fyrir börn með offitu og sérhæfða verkjamóttöku í heilsugæslu.
Sérnámslæknarnir Auður Jóna Einarsdóttir og Helga Hansdóttur fengu viðurkenningu fyrir besta vísindaverk- efnið. Verkefnið fjallaði um geðlyfjanotkun mæðra á meðgöngu á upptökusvæði Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og áhrif bæði á mæður og börn þeirra við fæðingu.
Vísindaþinginu lauk með hátíðarkvöldverði þar sem nýir sérfræðingar í heimilislækningum voru heiðraðir samkvæmt venju. Frá síðasta þingi haustið 2024 hafa 35 nýir sérfræðingar útskrifast úr sérnáminu hér á landi sem er meiri fjöldi en nokkru sinni fyrr.
Á mynd eru frá vinstri: Ívar Elí Sveinsson, Helga María Alfreðsdóttir, Unnar Óli Ólafsson, Elín Edda Sigurðardóttir, Sigríður María Kristjánsdóttir, Una Jóhannesdóttir, Ragnheiður Erla Magnúsdóttir, Borgný Skúladóttir, Unnur Tara Jónsdóttir, Sandra Seidenfaden, Telma Ingibjörg Sigurðardóttir, Ingibjörg Heiðdal, Íris Óskarsdóttir, Steinþór Runólfsson, Kjartan Bragi Valgeirsson, Hilmar Þór Dagsson, Eydís Ósk Jónasdóttir, Þórunn Jónsdóttir og Áslaug Katrín Hálfdánardóttir. Mynd/aðsend