„Mennskan má aldrei gleymast“

Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir tekur við forsetaembætti Alþjóðasamtaka lækna haustið 2027, önnur Íslendinga. Hún vill nýta rödd sína til að standa vörð um mennskuna í læknisfræði, á tímum örra tæknibreytinga, aukins álags og vaxandi áskorana. Læknablaðið ræddi við Steinunni
Við hittumst á heimili Steinunnar í Vesturbæ Reykjavíkur og ræddum læknisfræðina, leiðtogahlutverkið og nýtt ævintýri sem bíður hennar á alþjóðavettvangi. Samtalið fer víða, allt frá bernskuminningum og fjölskyldulífi til siðferðilegra álitaefna, starfsumhverfis lækna og framtíðar heilbrigðisþjónustunnar. En eitt stef liggur í gegnum frásögn hennar: Mennskan.
Steinunn er formaður Læknafélags Íslands (LÍ), framkvæmdastjóri lækninga hjá Hrafnistu og sérfræðingur í öldrunarlækningum. Nú hefur bæst við nýtt hlutverk, því hún var nýverið kjörin verðandi forseti Alþjóðasamtaka lækna, World Medical Association (WMA), með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Hún tekur við forsetaembættinu í október 2027 og verður annar Íslendingurinn til að gegna embættinu, en Jón Snædal læknir gegndi því árin 2007 til 2008. Steinunn er jafnframt önnur konan í rúmlega aldarlangri sögu LÍ til að gegna formennsku þess.
Þrátt fyrir annríkið hefur Steinunn fundið leið til að halda jafnvægi í lífinu og lært að setja eigin heilsu og vellíðan á dagskrá af sömu festu og vinnuna. „Ég er farin að lesa meira en áður og hlusta á hlaðvörp um eitthvað sem tengist ekki starfi mínu. Ég hef til dæmis mjög mikinn áhuga á mannkynssögu og grískri goðafræði“. Þá hreyfir hún sig reglulega, lyftir lóðum, hjólar og gengur. Útiveran sé sérstaklega góð leið til að losa um streitu. „Ég finn hvað ég hef miklu betri tök á álaginu þegar ég hef komist út og ég hef lært að setja hreyfinguna og útiveruna í dagatalið eins og hvað annað“.
Ætlaði að verða læknir eins og pabbi
Sex ára var Steinunn farin að lýsa því yfir að hún ætlaði að verða læknir, helst á sama vinnustað og faðir hennar. Hún rifjar upp skólaverkefni þar sem börnin áttu að teikna sjálf sig í framtíðarstarfi. Í framhaldinu voru nokkur þeirra valin til að klæðast búningum tengdum draumastarfinu og tekin af þeim viðtöl. Steinunn íklædd læknaslopp var spurð hvers vegna hana langaði að verða læknir. „Ég svaraði bara að pabbi væri læknir!“ Hún hlær dátt að minningunni. Í hennar huga var þetta ekkert flókið.
Faðir Steinunnar er Þórður Harðarson, fyrrum yfirlæknir á Landspítala og prófessor í lyflækningum. Frá unga aldri tók hún þátt í ýmsu sem tengdist starfi hans, fór meðal annars á læknaþing úti á landi og á viðburði hjá læknafélaginu. „Mér fannst þetta svo skemmtilegt fólk og svo mikil stemming. Svo fór maður líka að taka eftir því sem var að gerast á fundunum og vísindalegu umræðunni“.
Hún sá að læknar voru samfélag fólks sem skiptist á þekkingu, ræddu viðfangsefni sín og unnu saman. Með aldrinum varð henni ljósara hversu fjölbreyttra möguleika læknisfræðin bauð upp á. „Ég sá að með því að fara í læknisfræði væri ég nánast ekki að loka neinum dyrum. Ég gæti orðið vísindamaður, stjórnandi eða kennari, eða verið í fullu klínísku starfi með sjúklingum. Sérgreinarnar eru líka svo ólíkar.“
Litla skólastýran
Á barnsaldri hafði hún einnig áhuga á kennslu og stofnaði sinn eigin skóla fyrir börnin í hverfinu. „Ég bjó öll námsgögnin til sjálf og kenndi allar helstu kjarnagreinar og svo voru líka danstímar og íþróttir“. segir hún og skellihlær. „Ég var stórhneyksluð þegar foreldrarnir leyfðu ekki börnunum að mæta í skólann minn um helgar því þau þurftu að sinna einhverjum heimilisstörfum!“ Þessi áhugi á miðlun hefur síðan fylgt henni. „Ég hef haft gaman af því að kenna og finnst auðvelt og skemmtilegt að útskýra hluti fyrir öðru fólki“.

Þegar talið berst að leiðtogahæfninni sem hún er þekkt fyrir, kemur í ljós að Steinunn lítur á hæfileikann til að hlusta jafn mikilvægan og að tala. „Ég hef unnið mikið með það að hlusta. Ég held að það sé lykilatriði að leyfa öðrum að tala“. Þannig sé hægt að átta sig á hvað raunverulega skipti máli, greina heildarmyndina og finna sameiginlegan grundvöll. Hún telur að góður leiðtogi eigi að umkringja sig fólki með ólíka hæfileika. „Með aldrinum sér maður betur hverjir eigin styrkleikar eru og ber meiri virðingu fyrir fólki sem hefur aðra styrkleika. Mér finnst gaman að geta búið til teymi þar sem fólk hefur ólíka hæfileika en nær samt samhljómi“.
Þegar röddin varð leið út úr álaginu
Steinunn hefur ekki alltaf fundið þetta jafnvægi. Hún talar af hreinskilni um tímabil þegar álag, óánægja og erfiðar aðstæður í starfsumhverfinu voru farin að taka verulega á. „Ég var orðin mjög þreytt þar sem ég hafði verið í svo miklu uppnámi og verið reið og ósátt svo lengi. Það var á tímum Covid og áfalla sem fylgdu því í starfi mínu á Landakoti“,
Einmitt á þessum tíma fór fólk að hvetja hana til að sækjast eftir formennsku í LÍ. „Ég hugsaði með mér hvort kona sem væri búin á því og taldi sig jafnvel á leið í kulnun gæti farið að sækjast eftir slíku“. Hún ákvað engu að síður að láta vaða og ákvörðunin reyndist henni mikilvæg. „Þegar ég komst út úr þessu umhverfi og fékk formlegt umboð til að vera talsmaður og berjast fyrir málefnum sem eru mikilvæg fyrir stéttina, fór mér strax að líða miklu betur“.
Reynslan virðist líka hafa mótað sýn hennar á það hvernig skuli koma fram við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk. Hún segir að í starfi sínu hjá LÍ hafi hún fengið innsýn í fjölmargar krefjandi aðstæður sem læknar glími við. Þar sé meðal annars um að ræða álag, samskiptavanda, átök á vinnustöðum, alvarleg veikindi og afleiðingar erfiðra atvika í heilbrigðisþjónustu.
Enginn læknir er óskeikull
Steinunn hefur áhyggjur af hörku sem hafi færst í samfélagsumræðu, sérstaklega þegar alvarleg atvik verða í heilbrigðisþjónustu. Einstaklingar geti orðið fyrir opinberri fordæmingu áður en nægilega hafi verið farið yfir hvað raunverulega gerðist. „ Það er ekki hægt að sinna svona starfi án þess að eitthvað fari einhvern tímann úrskeiðis, jafnvel alvarlega. En við þurfum líka að gæta þess að kalla ekki öll alvarleg atvik mistök einstaklings“.
Hún bendir á að þegar eitthvað fari úrskeiðis í heilbrigðisþjónustu sé orsökin oftast flókin. Að baki geti legið margir samverkandi þættir í skipulagi, verkferlum og starfsumhverfi. Því sé nauðsynlegt að byggja upp öryggismenningu þar sem hægt sé að ræða atvik opinskátt, rannsaka og læra af þeim, án þess að umræðan snúist sjálfkrafa um að finna sökudólg. Ef heilbrigðisstarfsfólk óttist að verða úthrópað fyrir að viðurkenna að eitthvað hafi farið úrskeiðis geti það grafið undan öryggi sjúklinga. Alvarleg atvik verði rannsökuð vandlega og dreginn af þeim lærdómur, en það verði að gerast með sanngjörnum og málefnalegum hætti. Sömuleiðis telur hún mikilvægt að læknar sem lendi í erfiðum atvikum fái stuðning frá vinnustað sínum. Sá stuðningur sé ekki alltaf fyrir hendi.
Hver heilbrigðisstarfsmaður er dýrmætur
Steinunn segir heilbrigðiskerfið standa frammi fyrir miklum áskorunum vegna öldrunar þjóðarinnar og fyrirsjáanlegs skorts á heilbrigðisstarfsfólki. Því sé ekki nóg að hugsa um hvernig fjölga megi starfsfólki. Það verði líka að tryggja að þeir sem fyrir eru vilji og geti haldið áfram störfum. „Við erum lítið samfélag og höfum ekkert of mikið af fólki til að sinna þessu“.
Hún segir það sérstaklega sárt þegar fólk hverfur úr starfi vegna þess að vinnustaðurinn hafi ekki komið nægilega vel til móts við þarfir þess. Þetta geti til dæmis átt við um einstaklinga sem snúa aftur til vinnu eftir alvarleg veikindi. Ekki sé alltaf nægilega vel staðið að því að aðlaga verkefni og vinnufyrirkomulag að getu fólks meðan það byggir sig upp að nýju. „Við viljum auðvitað fá þetta fólk aftur og við viljum að það nái heilsu og geti haldið áfram að vinna. En það eru ekki alltaf til nægilega góðir verkferlar í kringum þetta“.
Steinunn hefur sömuleiðis lagt áherslu á áhrif næturvinnu á heilsu lækna. Sjálf hætti hún að taka næturvaktir þegar hún lét af störfum á Landspítala og segir það hafa breytt miklu. „Maður áttar sig eiginlega ekki á því hversu mikið álag næturvaktirnar eru fyrr en maður er hættur þeim“. Hún hefur talað fyrir því að læknar geti dregið úr eða hætt næturvöktum með aldrinum og að störf á óþægilegum vinnutímum séu metin til launa í samræmi við álagið.
Þrátt fyrir allt þetta vill Steinunn að umræðan um heilbrigðiskerfið sé einnig jákvæð. „Við erum svo ótrúlega heppin á Íslandi. Við höfum náð einstökum árangri í heilbrigðisþjónustu. Þegar maður horfir á stóru mælikvarðana erum við algjörir dúxar og við mættum tala miklu meira um það.“ Slík umræða skipti líka máli fyrir framtíð stéttarinnar. Ungt fólk þurfi að sjá að störf í heilbrigðisþjónustu séu bæði gefandi og eftirsóknarverð.
Frá Íslandi til forystu lækna heimsins
Starfsferill Steinunnar hefur verið fjölbreyttur. Hún lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands árið 2004 og starfaði á Landspítala og hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins áður en hún hélt til Svíþjóðar árið 2008. Þar stundaði hún sérnám í öldrunarlækningum við Karolinska-sjúkrahúsið í Stokkhólmi, samhliða doktorsnámi. Hún sneri heim árið 2014 og starfaði á öldrunarlækningadeild Landspítala. Árið 2018 tók hún við stöðu yfirlæknis heilabilunareiningar spítalans og frá árinu 2023 hefur hún verið framkvæmdastjóri lækninga hjá Hrafnistu.
Valið á öldrunarlækningum segir hún hafa verið mun erfiðara en ákvörðunina um að fara í læknisfræði. „Mig langaði að vinna á sjúkrahúsi og fást við flókin læknisfræðileg vandamál. Mér finnst öldrunarlækningar skemmtilegar vegna þess hvað þær eru fjölbreyttar“. Hún líkir sérgreininni að nokkru leyti við heimilislækningar innan sjúkrahússins. Þær fáist við fjölbreytt heilsufarsvandamál þar sem bæði líkamlegir, andlegir og félagslegir þættir fléttist saman.
Steinunn tók við formennsku í siðfræðinefnd WMA árið 2023 og gegndi henni í tvö ár. Hún segir starfið hafa veitt sér dýrmæta reynslu af alþjóðlegu samstarfi, auk þess sem hún kynntist fjölda fólks úr læknasamtökum víðs vegar um heim. Norðurlöndin hafi lengi haft sterka stöðu innan samtakanna, ekki síst í siðfræðimálum. Steinunn telur það meðal annars endurspegla það traust sem ríki Norðurlanda njóta þegar kemur að mannréttindum, persónuvernd og siðferðilegum viðmiðum.
Þegar formennska siðfræðinefndarinnar losnaði árið 2023 voru Ísland og Finnland bæði með fulltrúa í stjórn samtakanna. Finnar sóttust ekki eftir formennskunni og Steinunn var hvött til að taka hana að sér. „Það auðveldaði ákvörðunina að Jón Snædal, fyrrverandi forseti WMA, hafði sjálfur gegnt því og getur miðlað mér af reynslu sinni“.
Smám saman óx henni ásmegin í alþjóðastarfinu. „Ég kynntist því hvernig samtökin störfuðu og þegar fólk fór síðar að hvetja mig til að gefa kost á mér til forsetaembættisins kom það mér nokkuð á óvart, því ég hafði ekki sjálf séð það fyrir mér. „Þegar maður finnur að fólk treystir manni, þá gefur það manni auðvitað mikið sjálfstraust“. Hún segir fyrri reynslu sína einnig hafa skipt sköpum og hún sé því ekki að stíga inn í alveg ókunnugt umhverfi.
Mennskan á tímum gervigreindar
Þegar Steinunn er spurð hvaða mál hún vilji leggja mesta áherslu á í forsetatíð sinni nefnir hún mennskuna án þess að hika. „Ég sagði í ræðunni minni að ég ætlaði að leggja áherslu á mennskuna. Það er eitthvað sem ég ætla klárlega að gera, því mér finnst það tala inn í svo margt sem skiptir máli“. Hún nefnir gervigreind sem eitt stærsta viðfangsefnið fram undan. Tækninni fleygi fram og hún telur að læknastéttin þurfi að bregðast hraðar við en hingað til. Það þurfi að móta skýra stefnu undir forystu lækna um hvar og hvernig gervigreind verði notuð í heilbrigðisþjónustu, hvaða öryggiskröfur skuli gerðar og hvar mörkin eigi að liggja. Sérstaklega leggur Steinunn áherslu á að tæknin megi ekki grafa undan sambandi læknis og sjúklings. Sem öldrunarlæknir og sérfræðingur í heilabilunarsjúkdómum þekki hún vel mikilvægi mannlegra samskipta, tengsla og samkenndar.
Sterkari rödd í heimi ójöfnuðar

Áskoranirnar sem bíða Steinunnar á alþjóðavettvangi eru þó mun fleiri. Hún nefnir vaxandi útbreiðslu rangra upplýsinga, tilraunir til að grafa undan vísindalegri þekkingu og ofbeldi og hótanir gegn heilbrigðisstarfsfólki. Þá hafi hún miklar áhyggjur af ójöfnuði í aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu eftir félagslegri stöðu og því hvar það býr í heiminum.
Annað siðferðilegt álitaefni sé flutningur heilbrigðisstarfsfólks milli landa. „Ríkari þjóðir geta boðið menntuðu heilbrigðisstarfsfólki frá fátækari löndum betri kjör og starfsaðstæður. Um leið getur brottflutningurinn aukið enn frekar á skort í löndum sem hafa síst efni á að missa starfsfólk sitt. Við erum að laða til okkar fólk frá ríkjum þar sem skorturinn er jafnvel miklu meiri en hjá okkur. Þetta er eitthvað sem við þurfum að hugsa um á heimsvísu“. Á sama tíma sé ferðafrelsi einstaklinga mikilvægt og fólk eigi auðvitað rétt á að leita sér betri tækifæra. „Þetta er bara flókið. En þetta skiptir máli“.
Hún vill einnig beita sér fyrir því að WMA verði sýnilegri og rödd þeirra sterkari, bæði alþjóðlega og innan aðildarlandanna, sem nú eru 117. WMA hafi unnið umfangsmikið stefnumótunarstarf sem geti verið læknafélögum um allan heim mikilvæg stoð. LÍ hafi til dæmis ítrekað nýtt ályktanir og stefnu WMA í erindum til heilbrigðisráðuneytisins. Hún nefnir sérstaklega stefnu samtakanna um þátttöku lækna í stjórnun heilbrigðisþjónustu og ákvarðanatöku um verkaskiptingu milli heilbrigðisstétta. „Það er mikill styrkur í því að geta vísað til þess að þetta sé ekki bara eitthvað sem okkur finnst hér á Íslandi, heldur stefna sem læknar víðs vegar um heim hafa sameinast um“. Hún vill að WMA geri læknafélögum auðveldara að nýta sameiginlega stefnu og þekkingu í málflutningi sínum gagnvart stjórnvöldum og öðrum aðilum. „Við þurfum að gera röddina sterkari og koma henni lengra“.
Að fara úr búningnum
Forsetaár Steinunnar á alþjóðavettvangi verður annasamt. Fundirnir verða víðs vegar um heiminn og ferðalög milli tímabelta geta tekið á. Hún er þó þakklát fyrir að skipulag WMA gefur nýjum forseta gott svigrúm til undirbúnings. „Fyrst tekur við ár sem verðandi forseti, síðan eitt ár í embætti og loks ár sem fráfarandi forseti. Á öllum þessum þremur árum situr viðkomandi í framkvæmdastjórn samtakanna. Hún telur þetta afar skynsamlegt fyrirkomulag.
Steinunn ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku í LÍ og lætur af því embætti haustið 2027 og segir það ákveðinn létti að þurfa ekki að sinna báðum þessum krefjandi hlutverkum samtímis. Stjórnendur Hrafnistu hafi sýnt henni mikinn skilning og veitt henni svigrúm til að taka að sér forsetaembættið. „Þetta verður krefjandi ár, en þetta er eitt ár. Þá gefur maður sig bara allan í það“. Hún hefur lært ýmislegt um það að takast á við álag í gegnum tíðina. Eitt ráð sem henni hefur þótt sérstaklega gagnlegt fékk hún á námskeiði í samningatækni. „Fyrirlesari lýsti því fyrir okkur hvernig fólk gæti lært að skilja erfiðleika vinnunnar eftir í vinnunni. Hann líkti starfinu við búning sem maður klæðist á meðan maður sinnir hlutverki sínu, en fer úr þegar heim er komið. Mér fannst þetta svo frábær hugsun“.
Á heimilinu tekur svo við allt annað líf. Steinunn á þrjú börn, dóttur á þrítugsaldri og tvo syni, annan á menntaskólaaldri og hinn yngri. Eiginmaður hennar er einnig læknir en elsta dóttirin hefur valið allt aðra leið og stundar myndlistarnám við Listaháskóla Íslands. Steinunn segir það hafa opnað fyrir sér nýjan og spennandi heim. „Það er svo ótrúlega gaman að fylgjast með henni og sjá hvað það er margt hægt að gera“.