Í minningu Birnu Jónsdóttur – Kveðja frá Læknafélagi Íslands

Birna Jónsdóttir 1950-2026
Birna Jónsdóttir, röntgenlæknir og fyrrverandi formaður Læknafélags Íslands, er látin. Hún lést 30. september 2026 á heimili sínu í Reykjavík.
Birna var fædd 6. október 1950, elst fimm barna Lilju Maríu Petersen (1922-2009) læknis og kennara og Jóns Sigurðssonar bifreiðastjóra (1920-1990). Birna ólst upp í Reykjavík og gekk í grunnskóla þar. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð vorið 1970 og kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1977. Sérnámi í röntgenlækningum lauk hún 1985 í Uppsölum í Svíþjóð og starfaði samhliða því á Akademiska-sjúkrahúsinu þar í borg.
Á kandídatsári starfaði Birna á sjúkrahúsum í Reykjavík. Í læknanámi sínu var hún héraðslæknir í Búðardal og seinna á Húsavík. Á árunum 1985 til 1993 starfaði Birna á Borgarspítalanum og Landakoti.
Í félagi við aðra röntgenlækna stofnaði hún árið 1993 Röntgen Domus, fyrirtæki á sviði myndgreininga, sem hún rak með þeim í aldarfjórðung. Árið 2000 sinnti Birna rannsóknum við Smithsonian-stofnunina í Bandaríkjunum. Þar fékk hún það verkefni að nota nýtt Siemens tölvusneiðmyndatæki til að skoða múmíur frá Aleutaeyjum sem liggja milli Alaska og yfir að Síberíu og voru byggðar fólki af mongólskum uppruna líkt og indíánar og ínúítar. Frá þessu verkefni sínu sagði Birna á fundi hjá Öldungadeild lækna haustið 2017.
Þó Birna hafi lýst sjálfri sér sem róttækri og holdgervingi '68 kynslóðarinnar þá varð hún brautryðjandi í einkarekinni heilbrigðisþjónustu þegar hún stofnaði ásamt öðrum Röntgen Domus.
Í viðtali við Læknablaðið segir Birna að jafnaðarmaðurinn í henni hafi farið að blómstra við það að reka eigið fyrirtæki. Þar hafi hún með sameigendum sínum starfað eftir þeirri sannfæringu þeirra
„að einstaklingur eigi rétt á þjónustu strax og hann þarf á henni að halda, óháð því hvort hann er ungur eða gamall, inniliggjandi eða á göngudeild, frændi einhvers Pésa, sjúklingurinn hans Gumma eða er bara með svona fínan sjúkdóm að allir aðrir verða að víkja. Allir hafa sama rétt til sömu góðu þjónustunnar. Þegar ég hins vegar starfaði á spítala þá gat ég ekki unnið eftir þessari sannfæringu. Það voru svo margar girðingar á þeirri leið og eru enn. Í mínu fyrirtæki þolum við ekki biðlista. Virðingarleysi við tíma fólks er einnig yfirgengilegt í þjónustu hins opinbera spítala. Þar er fólk boðað í hverja rannsóknina af annarri með eins, tveggja daga eða viku millibili þegar alveg ætti að vera hægt að framkvæma þær í einni og sömu heimsókninni. Þetta kalla ég jafnaðarmennsku.“1
Birna var virk í félagsstörfum í þágu lækna. Á aðalfundi LÍ haustið 2001 var hún kosin gjaldkeri í stjórn félagsins og gegndi því embætti í sex ár uns hún var kjörin formaður félagsins, fyrst kvenna, á aðalfundi haustið 2007.
Birna kom eins og stormsveipur inn á skrifstofu Læknafélags Íslands og það gustaði af henni. Hún var þess fullviss að þar mætti taka til og breyta og það gerði hún. Henni þóttu eitthvað fátækleg og lítið smekkleg húsgögnin á skrifstofu formanns. Eitt hennar fyrstu verka var því að kaupa á eigin kostnað ný húsgögn á formannsskrifstofuna. Hún taldi félagið ekki eiga að standa undir kostnaði af hennar persónulega pjatti. Húsgögnin á formannsskrifstofunni báru smekkvísi hennar glögg merki, enda var Birna með eindæmum smekkvís og var einnig með mjög fallegan og persónulegan fatastíl. Húsgögnin tók Birna svo auðvitað með sér þegar hún hætti sem formaður haustið 2011.
Í formannstíð sinni réðst Birna í það að nútímavæða skrifstofu Læknafélagsins, sem meðal annars fólst í því að gera hana pappírslausa. Hún vildi að öll gögn væru aðgengilegt stjórn og starfsfólki á netinu. Byrjað var að flokka öll gögn félagsins eftir ákveðnu kerfi. Hún innleiddi rafræna geymslu og skráningu bréfa sem og annarra erinda til og frá félaginu. Öll pappírsgögn, sem hún stundum vísaði til sem „gamla pappírsdraslsins” lét hún einnig flokka og senda til varðveislu á Þjóðskjalasafnið.
Í formennskutíð sinni og raunar alla sína starfsævi var Birna ötull talsmaður lækna. Í öllum málum sem Birna beitti sér fyrir sem formaður Læknafélagsins var hún fylgin sér en um leið hreinskiptin. Birna sagði sína skoðun alltaf umbúðalaust. Birna hlustaði þó vel á skoðanir annarra þó hún væri ekki sammála þeim og sagði þá stundum „þú getur haft það fyrir skoðun” og svo kímdi í henni. Starfsmenn skrifstofunnar vissu alltaf hvar þeir höfðu Birnu og hún var óspör á hrós fyrir það sem henni þótti vel gert.
Að leiðarlokum sendir Læknafélag Íslands börnum Birnu, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Læknafélag Íslands og samstarfsmenn hennar á þeim vettvangi minnast Birnu með miklu þakklæti fyrir farsæl læknisstörf hennar, brautryðjendastörf í einkarekstri lækna og mikilvæg félagsstörf í þágu læknastéttarinnar.
Róttæk einstaklingshyggja, jafnaðarmennska og einkarekstur. Viðtal við Birnu Jónsdóttur, formann LÍ. Læknablaðið.2007:12. Aðgengilegt hér: https://www.laeknabladid.is/2007/12/nr/2986.