Fara í efni
Bréf til blaðsins

Vitundarvakning um sýklalyfjaónæmi og skynsamlega notkun sýklalyfja

Þann 18. nóvember er árlegur Evrópudagur vitundarvakningar um sýklalyf. Dagurinn minnir á að virk sýklalyf eru forsenda öruggrar heilbrigðisþjónustu og að varðveisla þeirra er sameiginlegt verkefni. Fyrir lækna felst það meðal annars í að endurmeta eigin ávísanavenjur og ræða við sjúklinga um ávinning og áhættu sýklalyfjameðferðar. 

Nýútkomin ársskýrsla sóttvarnalæknis um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería hjá mönnum og dýrum á Íslandi 2025 sýnir bæði jákvæða þróun og ástæður til árvekni. Sala skráðra sýklalyfja fyrir menn dróst saman um 4,6% milli ára og ávísunum utan sjúkrahúsa fækkaði um 8%. Um 29% íbúa fengu sýklalyf að minnsta kosti einu sinni á árinu, samanborið við 32% árið áður. Um 93% notkunarinnar er utan sjúkrahúsa og því skipta ákvarðanir lækna á þeim vettvangi miklu. 

Þó sýklalyfjaónæmi sé enn almennt lítið hérlendis í evrópskum samanburði gefur þróunin tilefni til áhyggna. Árið 2025 greindust 22 einstaklingar með karbapenemasa-myndandi Enterobacterales (CPE), fleiri en áður á einu ári (mynd 1). 

/cdn/media/07082026/u11-fig-3.jpg?v=1793635436

Meðal E. coli stofna sem tengjast ífarandi sýkingum hefur ónæmi gegn þriðju kynslóðar kefalósporínum aukist úr 4,2% árið 2016 í 11,6% árið 2025. Þessar niðurstöður undirstrika þörf fyrir öfluga vöktun, sýkingavarnir og sýklalyfjagæslu.1 

Mikilvægt er að vitundarvakning nái út fyrir heilbrigðisstofnanir. Ísland tekur þátt í EU-JAMRAI 2, evrópsku samstarfsverkefni gegn sýklalyfjaónæmi og sýkingum sem tengjast heilbrigðisþjónustu. Eitt af markmiðum verkefnisins er að gera þessa ósýnilegu ógn sýnilega með myndlist og sameiginlegu tákni sýklalyfjaónæmis. Tákninu er ætlað að vekja athygli á sýklalyfjaónæmi og ábyrgri notkun sýklalyfja.2 

Í verkefninu Skissum sýklalyfjaónæmi (Sketching Antimicrobial Resistance, #SketchingAMR) túlka 30 listamenn sýklalyfjaónæmi á myndrænan hátt, þar á meðal íslenski listamaðurinn Hugleikur Dagsson. Verkin hafa verið gefin út í myndskreyttri bók og birt á götusýningum víða í Evrópu. Í sumar var sýningin sett upp í Austurstræti í Reykjavík og færði þannig fræðsluna inn í daglegt líf borgarbúa og ferðamanna. Með áherslu á einnar heilsu nálgun er minnt á tengsl heilsu manna, dýra og umhverfis og mikilvægi þverfaglegs samstarfs.3 

Fræðsla getur auðveldað samtalið en daglegar ákvarðanir ráða miklu um árangurinn. Við hverja ávísun þarf að meta hvort sýklalyf séu nauðsynleg, velja eins þröngvirkt lyf og klínískt ástand leyfir og ákveða skammt og meðferðarlengd með hliðsjón af klínískum leiðbeiningum.4 Skráning ábendingar og fyrirhugaðrar meðferðarlengdar, ásamt endurmati þegar rannsóknarniðurstöður liggja fyrir, styður skynsamlega notkun. Þegar ekki er ábending fyrir sýklalyfjameðferð ættu útskýringar og ráðleggingar um meðhöndlun einkenna að vera hluti samtals við sjúkling.  

Þann 18. nóvember hvetjum við lækna til að nýta vitundarvakninguna til að minna á málefnið, bæði í samskiptum við sjúklinga og við samstarfsfólk. Með markvissri sýklalyfjagæslu og sýkingavörnum getum við verndað sýklalyfin fyrir komandi kynslóðir.  

Heimildir 

1. Sóttvarnalæknir. Sýklalyfjanotkun og sýklalyfjaónæmi baktería hjá mönnum og dýrum á Íslandi 2025. 2026. https://island.is/syklalyfjaonaemi-og-syklalyfjanotkun/skyrslur – október 2026. 

2.  EU-JAMRAI. The AMR Symbol. eu-jamrai.eu/raise- awareness/antimicrobial-resistance-symbol/  – október 2026. 

3.  Skissum sýklalyfjaónæmi. https://island.is/syklalyfjaanaemi-og-syklalyfjanotkun/skissum-syklalyfjaonaemi – október 2026. 

4.  Ráðleggingar um meðferð algengra sýkinga utan spít- ala. Endurskoðaðar 2026. https://throunarmidstod.is/svid-thih/lyfjasvid/leidbeiningar-um-lyfjaval/sykingar-strama/  – október 2026. 

Mynd 1. Fjöldi einstaklinga sem greindust í fyrsta sinn með karbapenemasa-myndandi Enterobacterales (CPE) á Íslandi árin 2016–2025, eftir því hvort greining varð við skimun eða almenna ræktun. Árið 2025 greindust 22 einstaklingar, fleiri en áður á einu ári. Heimild: Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Innfelld mynd er alþjóðlegt tákn sýklalyfjaónæmis.