Fara í efni

Ritrýnt efni

Læknablaðið er fræðirit sem birtir vísinda og yfirlitsgreinar og annað efni sem byggir á rannsóknum innan læknisfræði eða skyldra greina.

Fræðilegt efni Læknablaðsins er skráð í alþjóðlegum vísindagagnagrunnum:

  • Medline (frá 2005),
  • Science Citation Index (frá 2009),
  • Scopus (frá 2009).

Blaðið fylgir reglum Vancouverhópsins um frágang, uppbyggingu og efnistök alþjóðlegra læknatímarita, International Committee for Medical Journal Editors, icmje.org, og alþjóðlegum siðareglum ritstjóra læknatímarita (Committee on Publication Ethics, COPE).

Aðgangur að ScholarOne Manuscript Central:
https://mc.manuscriptcentral.com/laeknabladid

Af þessum sökum er mikilvægt að ágrip, töflur og myndir séu sendar með fræðilegu efni, bæði á íslensku og ensku.

Efnisflokkar og leiðbeiningar 

Hér eru upplýsingar um ritrýnt efni, reglur um skil, hámarksfjölda heimilda og myndefnis og hámarkslengd í orðum. Allar myndir og töflur skulu sendar inn á íslensku og ensku. 

Athugið: Læknablaðið birtir ekki klínískar leiðbeiningar

EfnisflokkurHámarkslengd megintexta í orðumHámarkslengd ágrips í orðumMyndir og töflurHeimildir
Vísindagrein3000 250630
Yfirlitsgrein4000 2008 samtals. Hægt er að birta fleiri í netútgáfu blaðsins.30, en allt að 50 í netútgáfu.
Sjúkratilfelli og Tilfelli mánaðarins2500 1003 samtals.15
 

Ritrýni og ákvörðun um birtingu

Eftir að vísindagrein berst til Læknablaðsins er metið hvort hún mæti kröfum blaðsins um frágang, lengd og útlit. Geri hún það ekki, er hún send aftur til höfunda. Sé frágangur í samræmi við leiðbeiningar blaðsins, úthlutar ritstjóri henni til tveggja lækna í ritstjórn og ber annar þeirra meginábyrgð og velur ritrýna en hinn er til ráðgjafar gerist þess þörf. 

Ritstjórnarmeðlimir sem eru ábyrgir fyrir vísindagreinum eru valdir með tilliti til efnis greinar og þekkingar þeirra, um leið og reynt er að forðast hagsmuna og vinatengsl við höfunda. 

Sömu sjónarmið eru höfð að leiðarljósi við val á ritrýnum, en þeir eru alla jafna tveir til þrír fyrir fræðigreinar. Ritrýnar eru beðnir að skila verkefni sínu innan þriggja vikna. Nafnleyndar er gætt, þannig að ritrýnar sjá ekki hverjir eru höfundar efnis og höfundar vita ekki hverjir ritrýna handrit þeirra. Svo kallað tvíblint ritrýnt kerfi er viðhaft.

Ritrýni er oftast send til höfunda og þeim gefinn kostur á að svara henni og hafa til þess þrjár vikur. Þá skulu höfundar svara rýninni ítarlega, lið fyrir lið, á sérskjali og rökstyðja sín svör ef þeir eru ekki sammála ritrýninum. 

Þessa greinargerð þarf að senda blaðinu ásamt tveimur nýjum eintökum af handritinu í word-skjali: annað þeirra sé með þeim breytingum sem gerðar hafa verið án sérstakra merkinga, en í hinu eintakinu eru merktar inn allar breytingar sem höfundar hafa gert. Gott er að hafa einnig á sérblaði til ritrýna svör við þeim athugasemdum sem ritrýnar hafa gert, hver fyrir sig, og merkja hvar það er að finna í eintökunum sem fylgja með – Ritstjórn leggur þá mat á efnið að nýju og getur kallað til ritrýnana aftur til fara yfir efnið. Lokaákvörðun um birtingu tekur ritstjórnin.

Hafi endurbætt handrit ekki borist blaðinu aftur að þremur vikum liðnum túlkar ritstjórn það svo að höfundar hafi ekki lengur hug á að birtingu greinarinnar í Læknablaðinu. Ef höfundar velja að breyta greininni og senda inn aftur að þessum þremur vikum liðnum skal greinin send sem ný grein og undir nýju númeri.

Ákvörðun ritstjórnar um höfnun greinar er endanleg. Höfundar geta þó óskað eftir því með skýrum rökstuðningi að ritstjórn fjalli aftur um grein þeirra, finnist þeim ritrýnin beinlínis röng eða byggð á greinilegum misskilningi. Verður þá að fylgja með skrifleg röksemdafærsla höfunda.

Efnistök vísindagreinar

Hér er greint frá eigin athugunum og rannsóknum höfunda, helst rannsóknum sem eru líklegar til að hafa áhrif á greiningu eða meðferð sjúkdóma og sem hafa þýðingu fyrir læknisfræði og lýðheilsu á Íslandi.

Fyrst skal koma titilsíða, alla eftirfylgjandi kafla greinarinnar skal á nýrri blaðsíðu.

Titilsíða

Á titilsíðu skal vera heiti greinar (hámark 15 orð), nöfn, starfsheiti og háskólagráða höfunda, deild og stofnun höfunda, og nafn deildar/stofnunar þar sem rannsóknin var unnin. Einnig þarf að koma fram nafn, aðsetur og netfang höfudar sem sér um bréfaskriftir við Læknablaðið og svarar fyrir efni greinarinnar.

Lykilorð: Á titilsíðu skulu vera 4 – 6 lykilorð á ensku.

Vísindagrein samanstendur af eftirfarandi köflum:

Ágripi þarf að skila bæði á íslensku og ensku og skiptist í eftirfarandi kafla; inngang (introduction), efnivið og aðferðir (material and methods), niðurstöður (results) og ályktun (conclusion).

Enska ágripið á að vera efnislega samhljóða því íslenska en þarf þó ekki að vera bein þýðing. Enska ágripinu þarf að fylgja titill greinarinnar á ensku og starfsstöðvar á ensku. Mikilvægt er að vanda til enska titilsins og lykilorða, þar sem þau eru notuð við leit að greininni í leitarvélum eins og PubMed.

Í inngangi er greint frá forsendum rannsóknarinnar og ástæðum fyrir því að hún var gerð, gjarnan með tilvísun í helstu rannsóknir. Helstu rannsóknarspurningar eru kynntar fyrir lesandanum og hvað sé nýtt og einstakt við rannsóknina. Í lok inngangs á að koma skýrt fram hver sé megintilgangur rannsóknarinnar.

Inngangur á ekki að vera yfirlitsgrein um efnið. Mikilvægt er að texti inngangs sé stuttur og hnitmiðaður og leiði lesandann beint að megintilgátu rannsóknar með rökvísum hætti.

Útskýrt er hvernig markmiðum rannsóknarinnar var náð. Hér kemur fram lýsing á efniviði rannsóknar, til dæmis sjúklingahópum eða tilraunadýrum. Einnig verður að koma fram hvort viðmiðunarhópur var til staðar og hvernig hann var skilgreindur.

Lýsa ber aðferðum, tækjabúnaði (nafn framleiðanda og heimilisfang (borg, land í sviga)) og aðgerðum í nægilegum smáatriðum til að aðrir geti endurtekið rannsóknina. Aðeins þarf að vísa til heimilda um algengar og vel þekktar aðferðir en öðrum aðferðum sem ekki hafa verið birtar eða eru lítt kunnar er lýst stuttlega.

Einnig verður að greina frá samheitum á öllum lyfjum og efnum sem notuð voru (sérlyfjaheita má geta innan sviga), skömmtum og hvernig þau voru gefin.

Lýsing á tölfræðiúrvinnslu gagna er mikilvægur hluti kaflans um efnivið og aðferðir. Gæta þarf þess að persónueinkenni sjúklinga komi hvergi fram. Lýst er helstu aðferðum sem notaðar voru við rannsóknina, þannig að lesandinn geti endurtekið útreikninga upp á eigin spýtur.

Einnig þarf að geta tölvuforrita sem notuð voru við úrvinnslu gagna. Gæta skal nákvæmni eins og unnt er, án þess þó að tiltaka of marga aukastafi. Þegar við á er æskilegt að gefa upp mæliskekkju eða óvissumörk, til dæmis með staðalfráviki eða öryggismörkum (confidence interval).

Í texta um tölfræði skal geta p-gildis sem tölfræðilegt marktæki miðast við og rökstyðja val þess í stuttu máli ef þurfa þykir, til dæmis hvort leiðrétt hafi verið fyrir margþættum samanburði (multiple testing). Geta skal þess hvort gögn uppfylli forsendur þeirra tölfræðiprófa sem notuð eru.

Niðurstöðum er lýst í rökrænni röð í texta en jafnframt vísað í töflur og myndir, eigi það við. Áherslur beinast að helstu niðurstöðum rannsóknarinnar og reynt að forðast að tvítaka niðurstöður í texta sem lýst hefur verið í töflum eða myndum.

Mikilvægt er að allar niðurstöður sem ræddar eru í umræðukafla komi fram í niðurstöðukafla.

Í umræðu er mikilvægt að taka saman helstu niðurstöður rannsóknarinnar og bera þær saman við rannsóknir annarra með tilvísun í lykilheimildir.

Umræða á að vera hnitmiðuð og fjalla um þýðingu rannsóknar höfunda. Hún á ekki að vera yfirlitsgrein um efnið. Mikilvægt er að fram komi hvað sé nýtt og mikilvægt í niðurstöðunum og hvaða lærdóm megi draga af þeim. Einnig er mikilvægt að nefna takmarkanir og styrkleika rannsóknarinnar.

Fullyrðingar í texta verður að vera hægt að rökstyðja með vísun í niðurstöður rannsóknarinnar eða með tilvísun í aðrar rannsóknir. Sjálfsagt er að höfundar komi með ráðleggingar sem byggja á niðurstöðum rannsóknarinnar um greiningu vandamála og meðferð.

Oft er æskilegt að taka saman í lokin helstu niðurstöður og um leið benda á tækifæri til frekari rannsókna sem auka þekkingu á efninu eða tengjast frekari prófun rannsóknarspurningar.

Hérna er tilvalið að þakka samstarfsaðilum sem lagt hafa hönd á plóginn við framkvæmd og úrvinnslu rannsóknarinnar en uppfylla ekki þær kröfur sem Læknablaðið gerir til meðhöfunda (sjá að ofan).

Oft eru það aðilar sem veitt hafa tæknilega aðstoð, aðstoðað við hluta gagnasöfnunar eða hjálpað til við tölfræðilega útreikninga. Enn fremur er rétt að þakka þeim sem veitt hafa aðgang að tækjabúnaði í þeirra umsjá og greitt götu höfunda, til dæmis yfirmanni deildar. Yfirleitt er ekki ástæða til að þakka aðkeypta aðstoð sem greitt er fyrir fullu verði. Loks er sjálfsagt að geta allra styrkveitinga til rannsóknarinnar og þakka fyrir þær.


Ritreglur

Læknablaðið er alþjóðlegt vísindarit sem birtir vísindagreinar og annað fræðiefni sem nýst getur íslenskum læknum í starfi. Hér eru leiðbeiningar til að auðvelda höfundum vinnu við ritun, frágang og innsendingu handrita í Læknablaðið.

Greinar í Læknablaðinu eru birtar á íslensku og eiga að vekja áhuga lækna og skipta máli fyrir þróun læknisfræði og heilbrigðisþjónustu hér á landi. Jafnframt er horft til þess hvort efnið eigi erindi við aðra lesendur blaðsins, svo sem háskólanema í heilbrigðisvísindum og íslenskan almenning. 

Fræðigreinar blaðsins geta byggst á eigin athugunum og rannsóknum höfunda eða verið yfirlitsgreinar. 

Gerð er sú krafa að efnið hafi ekki birst í öðrum vísindaritum.

Læknablaðið birtir ekki klínískar leiðbeiningar.

Blaðið fylgir reglum Vancouverhópsins um frágang, uppbyggingu og efnistök alþjóðlegra læknatímarita, International Committee for Medical Journal Editors, icmje.org, og alþjóðlegum siðareglum ritstjóra læknatímarita (Committee on Publication Ethics, COPE).

Greinar í blaðinu eru á íslensku en hverri grein fylgir ágrip á ensku. Í netútgáfu blaðsins eru töflur og myndir jafnframt birtar á ensku. 

Ef höfundar óska eftir að grein þeirra sé einnig birt á ensku getur ritstjórn í völdum tilvikum ákveðið að gera svo í netútgáfu blaðsins, og birtist greinin þá ávallt á íslensku í prentútgáfu blaðsins. Höfundar geta þá valið að þýða greinina sjálfir eða fá til þess löggiltan
skjalaþýðanda á eigin kostnað. Grein má ekki þýða með aðstoð gervigreindar. Að lokinni þýðingu sendir Læknablaðið greinina til yfirlesturs hjá löggiltum skjalaþýðanda á kostnað höfunda. Nota má gervigreind til yfirlestrar eða aðstoð við ritun texta en aðstoð gervigreindar skal haldið í lágmarki.

Mikilvægt er að greinar séu á góðri íslensku og verður að íslenska öll erlend orð og heiti verði því við komið. Hægt er að nálgast Íðorðasafn lækna í Orðabanka Íslenskrar málstöðvar á heimasíðu stofnunarinnar: ismal.hi.is/ob/uppl/laekn.html. 

Sé íslenska heitið ekki vel þekkt er alþjóðlega heitið sett í sviga strax í ágripi, komi heitið fyrir þar, og aftur þegar það kemur fyrir í fyrsta skipti í megintexta. Ef ekki er til gott íslenskt heiti er alþjóðaheitið notað og skrifað með skáletri (latneskt eða enskt). Hugtök sem ekki verða íslenskuð með góðu móti er best að skilgreina í stuttu máli og er alþjóðaheitið sett í sviga aftan við skilgreininguna.

Skammstafanir eru ekki notaðar í megintexta og skal skrifa til dæmis í stað t.d. Undantekningar eru viðurkenndar fræðilegar skammstafanir, til dæmis á sjúkdómaheitum (til dæmis MS-sjúkdómur) eða meðferð. 

Er þá óstytt heiti látið standa á undan skammstöfun þegar hún er notuð í fyrsta sinn í textanum, til dæmis positive endexpiratory pressure (PEEP). Stundum getur útskýring á skammstöfunum þó verið óþörf, til dæmis DNA, RNA og svo framvegis.

Tölur undir 10 eru skrifaðar með bókstöfum í megintexta þegar rætt er um fjölda. 

Þegar setning byrjar á tölugildi eru tölur þó alltaf skrifaðar með bókstöfum. 

Tugabrot eru rituð með kommu í  íslenskum texta (0,4 og 10,3), töflum og myndum, en í ensku ágripi, töflum og myndum eru tugabrot rituð með punkti (0.4 og 10.3). 

Á eftir mælieiningu kemur bil, til dæmis 12 cm, 13 kg/m(²).

Lyfjaheiti ber að rita samkvæmt samheitum eins og gert er í Sérlyfjaskrá, til dæmis atenólól, amíódarón og svo framvegis.

Hver kafli greinar skal byrja á nýrri síðu. 

Töflur og myndir skulu standa aftast í handritinu. Myndir skal einnig senda í fullri upplausn sem sérstök jpg-skjöl (sjá síðar) á íslensku og ensku. Töflur og myndir skulu hafa heiti og númer og geta skýrt sig sjálfar án skýringa í texta greinar. Skýringartexti standi við töflur eða myndir eftir þörfum.

Allar töflur og myndir skulu vera á íslensku og ensku.

Efni sem skal fylgja 

Við innsendingu á fræðilegu efni.

Bréf til ritstjórnar skal ávalt fylgja innsendu fræðiefni. Í bréfinu skal koma fram titill greinarinnar og nöfn höfunda. Æskilegt er að greina í stuttu máli frá tilurð rannsóknarinnar, niðurstöðum og sérstöðu, borið saman við aðrar greinar sem birst hafa um efnið. Skýra þarf fyrir ritstjórn af hverju þessi grein á erindi í *Læknablaðið.* Tilgreina þarf leyfi til rannsókna með númerum, til dæmis frá vísindasiðanefnd (sjá síðar). 

Einnig er æskilegt að fram komi hvort leitað hafi verið aðstoðar tölfræðings og hvort sérfræðingur í ensku hafi lesið yfir enskt ágrip, töflu og myndatexta. Stundum kjósa höfundar að nefna aðila sem koma til greina sem ritrýnar eða óska eftir að verði ekki valdir sem ritrýnar vegna til dæmis mögulegra hagsmunaárekstra og skal þá  gera það í bréfi til ritstjórnar, helst með netfangi viðkomandi aðila. 

Þessar upplýsingar er einnig hægt að gefa á ScholarOne. Aðalábyrgðarmaður greinar í ritstjórn tekur ákvörðun um hvort hann nýtir slíkar uppástungur eða ekki. Undir bréf til ritstjórnar skrifar yfirleitt sá höfundur sem annast bréfaskipti við blaðið.

Tvö handrit að grein með töflum og myndum, annað með höfundanöfnum, hitt án þeirra.

Hið síðara er sent til ritrýna.

Yfirlýsing þar sem allir höfundar staðfesta hlutdeild sína í efninu, að efni greinarinnar hafi ekki birst annars staðar og að þeir afsali sér birtingarrétti að texta og myndefni til Læknablaðsins.

Höfundayfirlýsing fylgi með handriti greinar þegar það er sent til blaðsins. Eyðublaðið má finna á heimasíðu *Læknablaðsins*. Einfaldast er að skanna eyðublaðið með undirskriftum höfunda og senda til blaðsins með tölvupósti, en einnig má senda það í pósti til ritstjórnar.

Allir höfundar skulu skrifa undir höfundayfirlýsinguna og staðfesta um leið að þeir hafi tekið þátt í gerð rannsóknarinnar/greinarinnar og á hvaða hátt, til dæmis aflað gagna, skrifað handrit, unnið úr gögnum og svo framvegis. Almennt gildir sú regla að allir höfundar hafi tekið það mikinn þátt í gerð vísindagreinar að þeir geti borið ábyrgð á öllu efni hennar og rætt það opinberlega. Höfundar að grein ættu því einungis að vera þeir sem lagt hafa mikið af mörkum til greinarinnar, það er grunnhugmynd, hönnun og skipulagningu rannsóknar eða túlkun og framsetningu niðurstaðna. Flestir höfundar hafa einnig safnað gögnum eða unnið rannsóknarvinnu, og tekið þátt í ritun uppkasts og lesið yfir handritið. Yfirmenn deildar eða rannsóknarstofu sem hafa ekki að öðru leyti komið að rannsóknarvinnunni, styrktaraðilar og þeir sem einungis hafa tekið lítinn þátt í rannsókninni, ættu ekki að teljast höfundar greinar. Þeim er hins vegar hægt að færa þakkir í lok handrits (sjá síðar).

Í höfundayfirlýsingu verða höfundar einnig að staðfesta að efni greinarinnar hafi ekki birst í öðru vísindariti og að þeir afsali sér birtingarrétti á efni greinarinnar (bæði texta og myndefni) til Læknablaðsins.

Staðfesting á því að tilskilin leyfi séu til staðar fyrir rannsókninni frá vísindasiðanefnd og hlutaðeigandi sjúkrastofnunum eða annarra siðanefnda í viðeigandi tilfellum. Fyrir sjúkratilfelli þarf skriflegt leyfi sjúklings eða forsjármanns fyrir birtingu efnisins.

Þetta eyðublað má nálgast á heimasíðu *Læknablaðsins* og verða allir höfundar að tiltaka hvort þeir hafi tengsl við fyrirtæki eða einstaklinga sem gætu haft áhrif á rannsóknina, annaðhvort framkvæmd hennar eða túlkun niðurstaðna. Í vafatilvikum er betra að tilgreina ákveðin hagsmunatengsl og er ritstjórn síðan látið eftir að meta hvort nefna þurfi þessi tengsl með greininni eða ekki. 

Dæmi um fjárhagsleg tengsl sem höfundar þurfa að tilgreina eru ferðastyrkir frá fyrirtækjum, laun fyrir fyrirlestra, greiðslur fyrir ráðgjöf eða einkaleyfi og er miðað við þrjú ár frá því handritið er sent til *Læknablaðsins*. 

Tekið er hart á því ef höfundar láta hjá líða að tilgreina hagsmunatengsl og getur þá komið til þess að Læknablaðið birti sérstaka yfirlýsingu. Ef engin hagsmunatengsl eru til staðar þarf einnig að tiltaka það á eyðublaðinu.

Undir liðnum Þakkir er tilvalið að tilgreina þá sjóði og einstaklinga sem styrktu rannsóknina.

Í bréfi til ritstjórnar verður að koma fram hvort tilskilin leyfi til rannsóknarinnar liggi fyrir, til dæmis frá vísindasiðanefnd eða siðanefnd Landspítala, og yfirmanni eða lækningaforstjóra viðkomandi stofnunar þar sem rannsóknin var unnin. Í bréfi til ritstjórnar verður að tilgreina númer leyfa, en númerin eru ekki birt í blaðinu nema höfundar óski þess sérstaklega.

Þegar um íhlutandi rannsókn á sjúklingum er að ræða, þar sem þurfti leyfi siðanefndar, eða þegar þörf er á upplýstu skriflegu samþykki sjúklings sem fjallað er um í sjúkratilfelli, þarf að senda slík leyfi (afrit) bréflega til ritstjórnar. Undirritað samþykki sjúklings þarf fyrir birtingu sjúkratilfella í *Læknablaðinu*. Ef sjúklingur er látinn eða ófær um að gefa upplýst samþykki, þarf að skýra slíkt í bréfi til ritstjórnar.

Óski höfundar eftir því að birta myndefni sem birst hefur í öðrum vísindaritum verður skriflegt leyfi viðkomandi tímarits fyrir birtingu í Læknablaðinu að liggja fyrir. Slíkt leyfi þarf einnig þótt höfundar beggja greina séu þeir sömu, enda tilheyrir birtingarréttur því blaði þar sem myndin birtist fyrst.

 

Gátlisti og eyðublöð

 

Próförk og prentun

Blaðið er sent í prentsmiðju í kringum 20. hvers mánaðar. Viku fyrr þarf allt efni frá höfundum að liggja fyrir.
Greinar eru lesnar og lagfærðar á öllum stigum hjá Læknablaðinu.

Höfundar fá fyrstu próförk af grein sinni og eru beðnir að lesa hana vandlega og yfirfara sérstaklega vel myndir og töflur, bæði innihald og staðsetningu á síðu. Leiðréttingar á próförk berist blaðinu sem fyrst.

Eftir að starfsfólk blaðsins hefur fært inn leiðréttingar fá höfundar aðra próförk til frekari skoðunar og samþykkis. Höfundar bera ábyrgð á að engar villur séu í efni frá þeim fyrir prentun.Allt efni blaðsins er sent í prófarkalestur en lokapróförk les ritstjórnarfulltrúi.