Fylgirit 130 – Rannsóknarráðstefna sérnámslækna í lyflækningum

Ávarp

Kæru sérnámslæknar, aðrir vísindamenn og gestir ráðstefnunnar

Gleðilega hátið!

Það er sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin á þessa uppskeruhátíð vísindavinnu sérnámslækna í lyflækningum á Landspítala. Þessi árlegi viðburður er alltaf jafn ánægjulegur og gaman að fylgjast með ungum vísindamönnum þroskast með sínum vísindaverkefnum og framþróun þeirra.

Það er ekki auðvelt að stunda vísindavinnu samhliða sérnámi þega vinnuálagið er eins og við þekkjum til í dag og lítið er um möguleika til styrkja til að skapa rými til vísindavinnu án þess að klínískar skyldur fylgi á sama tíma. En það eru þó möguleikar og það er þakkarvert að Landspítali styðji við unga vísindamenn með framlagi til vísindastyrkja þó verulega vanti upp á svo að vel sé og það erum við öll meðvituð um. Augljóst er að auka þarf fé til vísindarannsókna frá opinberum aðilum.

Á þessa ráðstefnu sem er haldin sérnámslæknunum til heiðurs hafa þekktir vísindamenn þegið að koma og vera með í umræðum um verkefnin nú sem áður. Til þess er leikurinn gerður. Það er lærdómsríkt að fá spurningar um vísindavinnu sína frá aðilum sem ekki tengjast henni á beinan hátt. Þá vakna oft spurningar sem vert er að velta fyrir sér.

Sumir eru hér að stíga sín fyrstu spor við kynningu á sínu efni, aðrir eru lengra komnir og það er einmitt eitt af því skemmtilegasta við þessa ráðstefnu að sjá hvernig vísindavinnunni fleytir fram á milli ára.

Visindarannsóknirnar í ár eru sem fyrr byggðar á gögnum frá ýmsum stöðum svo sem sjúkraskýrslum Landspítala, gögnum frá Hjartavernd og einnig gögn frá Svíþjóð. Það lýsir fjölbreytileika þess grunns sem vísindavinna sérnámslæknanna byggir á.

Þetta árið verður veitt viðurkenning í annað sinn, fyrir besta vísindaerindið, bæði efnislega, framsetningu og kynningu. Dómnefndin í ár er skipuð af Agnari Bjarnasyni smitsjúkdómalækni, prófessor Birni Guðbjörnssyni gigtarlækni, Dóru Lúðvíksdóttur lungnalækni, Prófessor Einari Björnssyni, Hilmu Hólm hjartalækni, Margréti Birnu Andrésdóttur nýrnalækni og prófessor Vilmundi Guðnasyni forstjóra Hjartaverndar. Þau munu einnig aðstoða við mat á hverju erindi, sem fer í „Portfolio“ hvers sérnámslæknis sem „Teaching observation“- blað. Öll ágrip ráðstefnunnar eru einnig birt í fylgiriti Læknablaðsins sem auðveldar tilvitnun í ferilskrá hvers og eins. Dómnefndinni eru færðar þakkir fyrir aðkomu sína að ráðstefnunni.

Svona ráðstefna verður ekki haldin án fjárhagslegs stuðnings og við erum Vistor enn á ný þakklát fyrir að gera ráðstefnuna mögulega.

Við lokum ráðstefnunni með heiðurserindi til sérnámslæknanna frá prófessor Birni Guðbjörnssyni heiðursvísindamanni Landspítala 2025 en hann hefur með löngum vísindaferli sínum sýnt ungum vísindamönnum dyggan stuðning við vísindavinnuna og við eigum honum mikið að þakka.

Kæru sérnámslæknar - enn segjum við – þetta er ykkar dagur sem við erum stolt af að vera þátttakendur í. Þið eruð framtíð okkar í vísindum.

Með vísindakveðjum,

Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, klínískur prófessor

Umsjónarlæknir rannsóknarráðstefnu og vísindaverkefna

Sérnámslækna í lyflækningum Landspítala




Þetta vefsvæði byggir á Eplica