Fylgirit 127 Vísindi á vordögum

Ávarp

Velkomin á Vísindi á vordögum, uppskeruhátíð vísinda á Landspítala!

25 ár eru liðin frá því að fyrst var haldin vísindadagskrá að vorlagi undir heitinu Vísindi á vordögum. Var hún skipulögð af læknunum Gísla Einarssyni og Sigurlaugu Sveinbjörnsdóttur sem í ár veita í fyrsta sinn vísindastyrk úr sjóði sem stofnað var til vegna strokerannsókna á Landspítala og SHR í samstarfi við deCode genetics.

Vísindi á vordögum er sýnigluggi þeirrar vísindastarfsemi sem fram fer á Landspítala. Þar gefst okkur kostur á að sjá það sem best er gert í vísindastarfi spítalans, skiptast á hugmyndum, mynda tengsl milli rannsóknarhópa og læra helstu nýjungar á öllum fræðasviðum. Samskiptin við háskólana og nýsköpunarfyrirtæki innan lands og utan er mikilvæg og stuðlar að því að brúa bilið á milli grunnvísinda og klínískra rannsókna. Hagnýting vísindalegrar þekkingar stuðlar að nýsköpun og er forsenda framþróunar, öryggis og gæða í heilbrigðisþjónustu. Þannig myndar vísindastarfið einn af þremur grunnstoðum háskólasjúkrahússins, sem eru klínísk þjónusta, menntun heilbrigðisstétta og vísindastarf.

Vísindaráð Landspítala hefur nýlega sent forstjóra og framkvæmdastjórn uppfærða vísindastefnu spítalans og hefur hún verið kynnt stjórn og fagráði spítalans. Í vísindastefnunni eru sett fram rúmlega fjörutíu markmið og leiðir í framþróun vísindastarfs á spítalanum. Næsta skref er að setja fram aðgerðaráætlun til að framfylgja vísindastefnunni þar sem samráð verður haft við forstöðumenn fræðasviða og yfirmenn klínískra eininga. Fyrstu áhersluatriði sem hrint verður í framkvæmd er að skapa aðstöðu til klínískra rannsókna á spítalanum, að stofna fjórar nýdoktorastöður til klínískra rannsókna á næstu tveimur árum, að í starfslýsingum og ráðningarsamningum verði skilgreint starfshlutfall til kennslu og rannsókna, formlegu samstarfi verður komið á við nýsköpunarfyrirtæki og breytingar verða gerðar á úthlutunarreglum Vísindasjóðs með það að markmiði að veita stærri rannsóknarstyrki til öflugra og metnaðarfullra vísindaverkefna.

Vísindastarf á Landspítalanum er fjölbreytt, þverfaglegt og af háum gæðum. Við horfum til framtíðar og stefnum á að vísindastarf á Landspítalanum nái aftur fyrri stöðu að vera sambærilegt við háskólasjúkrahús á hinum Norðurlöndunum að magni og gæðum. Til þess þarf að bæta fjármögnun og er stefnt að því að hlutfall vísinda í heildarveltu spítalans nái 3% innan fárra ára.

Uppskeruhátíð vísindanna hefur ekki síst það hlutverk að efla vísindastarfið með því að gera það sýnilegra og aðgengilegra, vekja áhuga ungra og upprennandi vísindamanna og skapa tengsl og samstarf milli rannsóknarhópa. Þar höfum við öll hlutverki að gegna.

Gleðilega hátíð.

Karl Andersen,

Formaður Vísindaráðs Landspítala




Þetta vefsvæði byggir á Eplica