Rannsóknarráðstefna sérnámslækna 2025 - Ávarp
Kæru sérnámslæknar í lyflækningum, aðrir vísindamenn og gestir ráðstefnunnar.
Verið öll velkomin á Rannsóknarráðstefnu sérnámslækna í lyflækningum og til hamingju með daginn.
Rannsóknarráðstefna sérnámslækna í lyflækningum er árlegur viðburður þar sem sérnámslæknar kynna sínar rannsóknir. Sumir eru rétt að byrja og flytja styttri erindi. Aðrir eru lengra komnir, jafnvel komnir með niðurstöður og geta þar með byggt ályktanir til kynningar og einhverjir jafnvel komnir langt að doktorsgráðu með sína vísindavinnu, æðsta menntunarstigi hvers háskóla. Þessi uppskeruhátið lýsir því vel þróun vísindaverkefna sem verður samhliða sérnáminu.
Ráðstefnan er mikilvægt lærdómsferli þar sem ungur vísindamaður fær athugasemdir og uppástungur frá bæði samnemendum og merkum vísindamönnum innan sem utan Landspítala. Árum saman hafa virtir vísindamenn frá Landspítala, Hjartavernd og fleiri stofnunum tekið þátt í ráðstefnunni og gefið umræðunni aukið vægi þar sem ungur vísindamaður getur tekið með sér uppbyggilegar athugasemdir inn í framhald sinnar rannsóknar.
Verkefni sérnámslæknanna eru ýmist uppsprottin úr sjúkraskrám Landspítala og eru þá ýmist aftursæjar rannsóknir eða jafnvel framsýnar með tilliti til eftirfylgni sjúkdóma eða meðferðar en geta einnig verið verkefni frá öðrum stofnunum. Mikilvægt vísindasamstarf hefur árum saman verið við aðrar stofnanir svo sem Hjartavernd og Íslenska erfðagreiningu auk erlendra vísindastofnana. Mikilvægt samstarf er einnig við Háskóla Íslands og erlendar háskólastofnanir.
Kennslugildi ráðstefnunnar er mikið. Kynning hvers erindis fer fram með tilheyrandi tímamörkum og skipulagðri framsetningu. Ágripin sem kynnt eru á ráðstefnunni hafa verið birt sem fylgirit við Læknablaðið frá árinu 2023. Þannig verða ágripin stærri hluti af ferilskrá hvers sérnámslæknis og stuðningur fyrir umsóknir um styrki og störf til framtíðar.
Í ár verður í fyrsta sinn veitt verðlaun fyrir besta vísindaerindið, bæði efnislega, framsetningu og kynningu. Sérstök dómnefnd skipuð af Birni Guðbjörnssyni professor, Dr. Dóru Lúðvíksdóttur, Karli Andersen prófessor, Sigurði Guðmundssyni professor emeritus, Einari S. Björnssyni prófessor og undirritaðri velur út besta erindið og gefur öllum erindum ráðstefnunnar umsögn sem fer í skjalabók (Portfolio) sérnámslæknisins..
Við á Landspítala erum afar stolt af rannsóknum sérnámslæknanna sem er vaxtarbroddur innan vísindasamfélagsins og stuðlar að viðhaldi og uppbyggingu góðs heilbrigðiskerfis til framtíðar. Án vísinda verður styrku heilbrigðiskerfi ekki viðhaldið eða byggt upp og ungir vísindamenn tryggja framtíð þess undir dyggri og metnaðarfullri leiðsögn virtra vísindamanna innan sem utan Landspítala. Leiðbeinendur verkefnanna, bæði innan sem utan Landspítala, skila fórnfúsri vinnu í gegn um hvert verkefni og eiga miklar þakkir skildar fyrir jákvæðar móttökur þegar til þeirra er leitað varðandi vísindaverkefni.
Rannsóknarráðstefna sérnámslækna í lyflækningum er mikilvægur viðburður í sérnámi lyflækna á Íslandi og hefði ekki verið hægt að viðhalda á eins metnaðarfullan hátt án stuðnings utanaðkomandi styrktaraðila. Þar hefur Vistor hf verið dyggur stuðningsaðili til fjölda ára og eru sendar miklar þakkir.
Án fjárhagslegs stuðnings verður vísindavinna ekki unnin og ljóst er að frítimi fjölskyldufólks sem og annarra verður minna og minna aðlaðandi til slíkra starfa. Augljóst er að auka þarf fé til vísindarannsókna innan Landspítala og mikilvægt að þeir sem því stjórna taki á því. Sjúkrahús án vísindarannsókna er ekki háskólasjúkrahús. Vísindavinna sérnámslækna í lyflækningum skilar sér inn í framtíðaruppbyggingu heilbrigðiskerfisins.
Kæru sérnámslæknar, þetta er ykkar dagur - gleðilega hátíð!
Með vísindakveðju,
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, klínískur prófessor
umsjónarlæknir rannsóknarráðstefnu og vísindaverkefna
sérnámslækna í lyflækningum
