Umræða og fréttir

Broshorn 46. Af beinagrind og hægðatregðu

Beinagrind í skápnum

Fimm ára læknissonur er að leika við jafnaldra sinn í vinnustofu læknisins. Sonurinn opnar einn skápinn og kemur þá í ljós beinagrind í fullri stærð. Leikfélaginn hrekkur í kút og verður ofsahræddur en róast þegar læknissonurinn segir honum að pabbinn hafi átt beinagrindina árum saman.

"Einhverra undarlegra hluta vegna heldur pabbi mikið upp á þessa beinagrind," sagði sonur föður síns.

"Af hverju?" spurði vinurinn.

"Ég veit það ekki," sagði drengurinn. "Kannski var þetta fyrsti sjúklingurinn hans."



Líkamsrækt og kynlíf

Kona um þrítugt kom til læknis og var hrædd um að hún væri ófrísk. Rannsókn leiddi í ljós að svo var ekki, til mikils léttis fyrir konuna. Læknirinn ræddi síðan um ýmsar tegundir getnaðarvarna en konunni hugnaðist engin þeirra.

"Getur þú ekki ráðlagt mér neitt annað?" spurði konan.

"Jú, líkamsrækt," sagði læknirinn.

"Líkamsrækt?" spurði konan undrandi. "Áður eða eftir að ég stunda kynlíf?"

"Í staðinn fyrir kynlíf," sagði læknirinn.



Í sumarfríi á ströndinni

Læknir nokkur sem þótti ekkert mjög sleipur í faginu en hafði þó komist í gegnum langa starfsævi án þess að verða illa á í messunni var í sumarleyfi á sólarströnd. Á göngu sinni eftir ströndinni kom hann að björgunarliði sem var að reyna endurlífgun á manni sem lá lífvana í flæðarmálinu. Þeir notuðu að sjálfsögðu munn-við-munn aðferðina og beittu hjartahnoði í gríð og erg án þess að maðurinn sýndi nokkur viðbrögð. Þegar þrýst var á bringu mannsins kom sjór, sandur og meira að segja smáskeljar úr munni hans. Læknirinn varð mjög hissa, tróð sér aðeins nær og sagði:

"Fyrirgefið að ég skuli trufla ykkur, en ég er læknir og ég held að það mundi hjálpa ef þið lyftuð afturenda mannsins upp úr sjónum."



Hægðatregða

Eldri herra kom til læknis og kvartaði um mikla hægðatregðu. Læknirinn skoðaði manninn og ávísaði honum síðan töflum sem taka ætti inn áður en hann gengi til náða á hverju kvöldi.

Tveimur vikum seinna kom maðurinn til eftirlits og læknirinn spurði hvernig gengi með hægðirnar. Læknirinn varð undrandi þegar maðurinn svaraði frekar önugur að töflurnar virkuðu vel og hann fyndi kallið koma klukkan hálf átta á morgnana.

"En mér finnst þú ekki vera neitt hress með það," sagði læknirinn.

"Nei, af hverju ætti ég að vera það?" spurði maðurinn. "Ég vakna ekki fyrr en klukkan átta."



Karlremba

Kalli var þekkt karlremba og fór í taugarnar á flestum sem hann þekkti. Hann kom til Lalla læknis í árlega skoðun og létti mjög þegar læknirinn tjáði honum að allt væri í stakasta lagi með skrokkinn.

"En mundu það, Karl," sagði Lalli læknir, "þú verður að hugsa um líkama þinn alveg eins og heimili þitt. Haltu honum vel við, snyrtilegum og hreinum.

"Ég skil hvað þú ert að fara, Lárus minn. Ég fæ mér konu til að hjálpa mér tvisvar í viku."



Sagt og meint

Læknir segir: "Það er best að við tökum blóðprufur".

Hann á við: "Ég finn ekki hvað er að þér. Kannski meinatæknirinn geti reddað okkur."



Læknir segir: "Við skulum sjá til hverju fram vindur."

Hann á við: "Ef til vill breytist þetta á nokkrum dögum í eitthvað sem ég get læknað."



Læknir segir: "Ef einkennin hverfa ekki pantar þú aftur tíma í næstu viku."

Hann á við: "Þetta er eitthvað það ógeðslegasta sem ég hef séð. Guði sé lof að ég á frí í næstu viku."



Ökklabrotinn lítilmagni

Maður kom til læknis og verkjaði rosalega í ökklann.

"Hvað hefur þú eiginlega verið svona lengi?" spurði læknirinn.

"Í rúma viku," sagði maðurinn.

"Þú ert ökklabrotinn. Hvers vegna í ósköpunum komstu ekki til mín í síðustu viku?"

"Af því að í hvert skipti sem ég orða það við konuna að eitthvað ami að mér segir hún að ég verði að hætta að reykja."



Dílar

Sjúklingurinn: "Ég sé ennþá díla fyrir augunum."

Augnlæknirinn: "Lagaðist þú þá ekkert við leiseraðgerðina?"

Sjúklingurinn: "Jú, jú, dílarnir eru orðnir miklu skýrari."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica