11. tbl. 104. árg. 2018

Umræða og fréttir

Óskráðir innflytjendur í skjóli innan heilbrigðiskerfisins

                                          
                                           Jóhanna Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur hugar að flóttamönnum í
                                           leiðangri sendifulltrúa Rauða kross Íslands á Miðjarðarhafi í nóvember
                                           2016. Mynd/Rauði krossinn

Það á ekki að vera hlutverk heilbrigðisstarfsmanna að tilkynna óskráða innflytjendur, segir sérfræðingur í málefnum þeirra.

Gerðu vinnustaðinn þinn að öruggu svæði fyrir óskráða innflytjendur, hvatti Alyna Smith til. Hún er ráðgjafi hjá PICUM sem eru frjáls félagasamtök sem vinna að því að auka virðingu fyrir mannréttindum óskráðra innflytjenda í Evrópu.

                                           
                                            Alyna Smith með Tomas Linden frá sænska læknafélaginu á vinstri hönd
                                            og Ulrich Clever frá því þýska á hægri. Mynd/gag

Umræða um heilbrigðisþjónustu fyrir óskráða innflytjendur fór fram í Kaldalóni undir stjórn Andrésar Magnússonar læknis á öðrum degi ráðstefnunnar og voru þrjú í pallborði. Auk Alynu, Tomas Linden frá sænska læknafélaginu og Ulrich Clever frá því þýska.

Tomas Linden sagði að aldrei ætti að velja lakari meðferð fyrir þá sem standa verr í samfélaginu. „Við eigum alltaf að velja bestu mögulegu lausnina fyrir einstaklinginn, óháð lagalegri stöðu hans.“

Clever benti á að Jórdanía, Líbanon og ríki í kringum Venesúela væru í meiri vandræðum vegna innflytjenda en Þýskaland eða önnur Evrópuríki. „En Þýskaland hefur tekið við flestum vegna Sýrlandsstríðsins.“ Það hafi verið afar krefjandi að taka á móti einni milljón flóttamanna á einu bretti árið 2015. Aldrei höfðu fleiri sótt til landsins, ekki einu sinni vegna stríðsins í Júgóslavíu.  Reglur voru aðlagaðar svo flóttamenn sem þurftu heilbrigðisþjónustu gætu sótt sér aðstoð.

Alyna greindi frá því hvernig ýmis evrópsk stjórnvöld hefðu á síðustu árum reynt að fá heilbrigðisyfirvöld til þess að tilkynna ef óskráðir innflytjendur nýttu þjónustuna. Skýrasta dæmið hefði verið í Bretlandi. Fjölmargir læknar hefðu mótmælt þessu hlutverki.

„Þú hefur rödd og það sem þú gerir skiptir máli,“ sagði Alyna og benti á að ekki þyrfti að standa úti á götu til þess að mótmæla slíku athæfi. Fjöldi leiða væri innan hverrar heilbrigðisstofnunar til að berjast gegn slíku hlutverki. Hún gaf heilræði, meðal annars:

  • Verndaðu heilbrigðisgeirann fyrir því að vera handbendi yfirvalda gegn innflytjendum.
  • Settu þig í samband við samtök sem þekkja hvernig komið er í veg fyrir að óskráðir innflytjendur njóti heilbrigðisþjónustu og finndu út úr því hvað þú getur gert í því.
  • Bentu yfirvöldum á skuldbindingar sínar á sviði mannréttinda og lýðheilsu, sem og læknisfræðilegrar siðfræði og samfélagsleg gildi.
  • Veittu örugga þjónustu með því að vernda friðhelgi einkalífsins og persónuupplýsingar viðkomandi.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica